blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 4
eBepnfQuc] + 28* SUMARBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 blaöiö oggel leggja á flótta Slálð 3 flugur í elnu höggl Fælir f burtu flugur Góður ilmur Verndar húðina Einnig ætiað börnum Drelflngarsíml: 698 7999 Fæst í öllum apótekum E Auglýsingasíminn er 510 3744 Notalegur vatns- niður í garðinum Fátt skrautlegra og eftirtektar- verðara er hægt að setja í garðinn heldur en gosbrunna og tjarnir. Svavar Björgvinsson, eigandi Gos- brunna ehf., hefur lengi unnið við gosbrunna- og tjarnagerð hér á landi enda afar hrifinn af slíkum fyrirbærum. „Vinsældir tjarna og gosbrunna eru vissulega að aukast hér á fs- landi, enda gerir hvort tveggja mikið fyrir garðinn. Fólk er oft með minna gras og gróður í görðunum sínum en áður og er þess í stað með stóra palla og þá skapar smá vatnsniður svolitla náttúrulega stemningu og meira líf,“ segir Svavar og bætir því við að tjarnir og gosbrunnar séu langt frá því að vera alltaf íburðarmikil og viðhaldsfrek. „Þetta er til í svo mörgum mismunandi stærðum og gerðum núna og það þarf orðið ekki að hafa risastóran garð til þess að geta komið upp smá gosbrunni. Núna er til dæmis hægt að setja smá gosbrunn í ferkantaðan blómapott til að setja fyrir framan innganginn, á pallinn eða svalirnar. Við erum með ýmsar tilbúnar einingar sem taka lítið pláss og margir eru jafnvel með inni- tjarnir og innigos- brunna. Það er líka algengt að fólk komi til okkar með teikn- ingar frá arkitektum þar sem búið er að gera ráð fyrir gosbrunni eða tjörn og þá erum það við sem útvegum rétta búnaðinn.“ Svavar hefur starfað við garðrækt í mörg ár og fékk fyrir tveimur árum umboð fyrir stærsta dælufram- leiðanda heims. „Til að byrja með bauð ég aðallega upp á þessa þjón- ustu á Netinu og slíkt en í byrjun þessa árs opnuðum við sýningar- salinn okkar við Langholtsveg og jukum vöruúrvalið til muna. Eftir- spurnin eftir þessu auk sérþekking- arinnar sem ég bý yfir á þessu sviði kallaði í raun á að ég færi út í þetta af fullum krafti.“ Spurður hver sé besti tíminn til þess að koma sér upp gosbrunnum og tjörnum segir Svavar að enginn tími sé betri en annar. „Það fer auð- vitað bara eftir því hvenær fólki hentar það best. Vinsælasti tím- inn til þess að gera þetta hefur þó hingað til verið á vorin og það er kannski ekkert skrítið. Þá er gróð- urinn ekki alveg farinn af stað og margir setja pressu á sjálfa sig að klára verkið fyrir 17. júní. Það er dagsetning sem gjarnan er miðað við.“ Hvað viðhald á tjörnum og gos- brunnum varðar segir Svavar að vissulega sé ýmislegt sem þurfi að gæta að. „Um hásumarið getur myndast slý í vatninu og sumar dælur geta eyðilagst í miklu frosti. En hér er þetta allt spurning um að vera með réttu græjurnar. Við bjóðum til dæmis upp á öflugan hreinsibúnað sem hægt er að setja upp við tjörnina án þess að það sjá- ist í hann auk þess sem hægt er að vera með hita í vatninu. Svo erum við komin með dælur sem þola frost, en slíkar dælur eru gjarnan settar inn í steina þannig að vatn dælist upp úr þeim, rennur niður þá og myndar klakabönd sem er mjög fallegt. Skrautdælur með grönnum pípum verður hins vegar að taka inn á köldum vetrardögum. En svo er það nú reyndar svo að það er sama sem ekkert frost á vet- urna hjá okkur hvort eð er, allavega hérna á suðvesturhorninu," segir Svavar að lokum. PRODERM Húðvörn gegn efnum á pH 1-12 #1 ■Gróðurofnæmi ■Molci ■Kláða ■Húðþurrk Engin fituáferð C€ Skráð lækningavara Fæst í apótekum 100 skammtar í brúsa www.celsus.is HELLULÖGN www.meistari.is © @ BM'VAILÁ Félag SkrúögarSyrkjumeistara Garöálfar í fangavist Garðálfar eru ekki mjög algeng sjón hér á landi en eru þeim mun vinsælli í Evrópu og Bandaríkj- unum. Enska orðið yfir álf, gnome, er talið koma af gríska orðinu gen- omus sem þýðir jarðarbúi. Fyrstu garðálfarnir voru framleiddir af Phillip nokkrum Griebel í bænum Gráafenroda í Þýskalandi á miðri nítjándu öld. Griebel hafði þann starfa að búa til styttur af dýrum sem fólk keypti til skrauts á heim- ilum sínum, en garðálfinn mótaði hann út frá þjóðsögum um litla, gamla álfa sem voru sagðir sitja á miklum fjársjóðum og vilja hjálpa til í görðum fólks á nóttunni. Garðálfurinn varð fljótt vinsæll í fleiri löndum á borð við England og Frakkland þar sem garðyrkja var vinsælt áhugamál. Garðálfa- verksmiðjur voru reistar víða í álfunni en lögðu flestar upp laup- ana í kjölfar seinni heimsstyrjald- arinnar. Afkomendur Phillips Griebels framleiða enn garðálfa og eru nú einu framleiðendurnir í Þýskalandi. Nú eru flestar verk- smiðjurnar staðsettar í Póllandi og Kína. Þó svo að fæstir trúi nú þjóð- sögum um álfa er enn þann dag í dag til hópur fólks sem berst fyrir frelsun garðálfa. Samtökin Garden Gnome Liberation Front, eða Frels- issamtök garðálfa, hafa nokkrum sinnum komist i heimsfréttirnar fyrir að stela álfum úr görðum fólks í viðleitni sinni til þess að frelsa þá frá þeirri „óréttlætan- legu fangelsisvist" sem þeir hafa að þeirra mati mátt sæta. Eitt fræg- asta atvikið tengt samtökunum átti sér stað í París árið 1997 þegar Frakki nokkur var handtekinn og ákærður fyrir að stela meira en 150 garðálfum á nokkrum árum. Sami maður var síðan grunaður um að hafa aftur látið til sin taka á garð- yrkjusýningu árið 2000 og stolið fjölmörgum álfum. Daear gönílu skurin.earfötunnar eru faldir I ‘ *' 1 • Skúringarfatan úrsögunni • Alltaf tilbúið til notkunnar ‘Gólfin þorna á augabragði • Fljótlegt og þægilegt Sölustadir: Húsusmiöjan - Byko Pottar og prik Akureyri • Rými Áfangar Keflavík - Eyjatölvur Vestmannaeyjum MiÖstödin Vestmannaeyjum - Fjarðarkaup - Litabúðin Ólafsvík Parket og gólf - SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki Skipavík Stvkkishólmi - Nesbakki Neskaupstað. Heildsöludreifinc: Ræstivörur ehf. 4

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.