blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 5
blaðið FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007
SUMARBUÐIÐ '29
Fjör fyrir bömin:
Mikilvægasta fólkið þarf sitt
ÍSRÖRehf | S. 565-1489 | Hringhella 12 | 221 Hafnarfjörður
Ein hugljúfasta bernskuminn-
ing margra tengist sumrinu. Hvort
sem það var fyrsta ástin, fyrsti
kossinn, fyrsti heilahristingurinn
eða bara fjörmikið sumar þá er
sumarið vettvangur margra bestu
minninga okkar. Allir vilja veita
börnum sínum allt það besta sem
völ er á og skemmtileg leiktæki og
leikföng í garðinn eða sumarbústað-
inn eru þar engin undantekning. I
hinum ýmsu netverslunum er hægt
að finna mörg sniðug leiktæki fyrir
börnin og er því ekki úr vegi að
kynna sér þá sniðugu hluti sem leyn-
ast þar.
Á undanförnum árum hafa
trampólín verið gífurlega vinsæl
og er varla sá bakgarður á höfuð-
borgarsvæðinu sem skartar ekki
forláta trampólíni. Þegar kemur að
þeim leiktækjum er mikilvægt að
hafa tvennt í huga. I fyrsta lagi á
öryggi barnsins ávallt að vera i fyrir-
rúmi. Með flestum trampólínum er
hægt að kaupa aukalega öryggisnet
sem fer hringinn í kringum tramp-
ólínið. Með þessu neti er hægt að
koma í veg fyrir að börnin detti
af trampólíninu og meiði sig eða
brjóti. Annað sem vert er að hafa í
huga er stærð trampólínsins. Það er
margsannað að smá hopp og skopp
er gott fyrir heilsuna, óháð aldri
fólks. Því er ekki verra að fjárfesta
í örlítið stærra trampólíni svo að
foreldrarnir geti líka hoppað með
börnunum.
Það er alltaf vinsælt hjá börnum
að eiga sitt eigið athvarf. Þetta at-
hvarf er oft í formi kofa sem þau
byggja sjálf með aðstoð foreldra eða
vina. Sumum hrýs þó hugur við þess
háttar byggingarháttum því trékofar
eru ekki alltaf þeir fegurstu og ef út-
lit garðsins skiptir miklu máli þá er
verra að hafa skakkan og skældan
mislitan kofa í honum miðjum. í
þeim tilfellum er hægt að fjárfesta
í tilbúnum trékofum sem fólk getur
sett saman sjálft eftir góðum leið-
beiningum. Hægt er að fá margar
mismunandi gerðir af kofum en
einn sá fallegasti á markaðnum er
án efa þessi margnota kofi frá fyr-
irtækinu AllOutPlay. Krakkar sem
dreymir um að vera geimfarar geta
þarna gefið draumum sínum byr
undir báða vængi en svo er líka hægt
að nota kofann sem turn í miklum
kastala og þá er hægt að bjarga hefð-
arfrúnni frá drekanum vonda. Með
svona kofa í garðinum mun börn-
unum líklega aldrei leiðast.
{ sandkassanum fær hugmynda-
flugið lausan tauminn. Það er þar
sem heilu þjóðvegirnir eru búnir
til og stærðar kastalar rísa með
einungis skóflu, fötu og smá vatni.
Góður sandkassi er nauðsynlegur
á hverju leiksvæði en mikilvægt er
að vanda valið. Vario Modular-sand-
kassarnir frá Kettler eru einstak-
lega sniðugir þar sem stærð þeirra
er hægt að breyta á auðveldan máta
og því hægt að búa til flennistóra
sandkassa á auðveldan máta. Sand-
kassinn samanstendur af fjórum
litríkum einingum sem festar eru
saman með barnvænum festingum.
Ef fólk vill svo stækka sandkassann
er einfalt að kaupa aukaeiningar
og þannig er hægt að byggja við
sandkassann.
Rólur og rennibrautir eru án
efa vinsælustu barnaleiktækin frá
upphafi. Það er vart hægt að finna
það leiksvæði í heiminum sem
ekki skartar öðru hvoru. Rólurnar
og rennibrautirnar er hægt að fá í
mörgum mismunandi útfærslum
en líklega væri best að fá eitt leik-
tæki sem skartar hvoru tveggja.
Þessi sambyggða róla og renni-
braut frá TP Activity Toys myndi
líklega gleðja mörg börnin og væri
frábær viðbót í garðinn eða fyrir
sumarbústaðinn.
Geymsluskápar fyrir gashylki.
Hanna&ir í samrábi vi& og samþykktur af Brunamálastofnun.
Henta fyrir sumarhús, íbúbarhús og húsbíla.
1,5 mm galvaníserab og duftlakkab stál.
Utanmál í mm: h: 850, b: 750 og d: 350.
Veggfestingar fáanlegar
Skápurinn er gerður fyrir tvær 11 kg gosflöskur
og er meb læsingu. Hann fæst í tveimur litum,
grár og grænn.
ÍSRÖR
HEILDVERSLUN
HotSpring
PortableSpas
y v.
. ■ w
Einangraöir útiskápar fyrir hita-
veituinntök og varmaskipta.
#
• kisSS&m
» m.
JetsettefSpa
3 mwvut 814 pottur
11 nuddKúur
2.M x 1.S7 • Km6 74 «n
Irtl í|lE,FUR
IVI JONSSON
Oragháls 14-16 -110 Rtykjtvfk
Slml 4 12 12 00 • wm.hoitpiin^M
1,5 mm stál,
galvaniserabir og
sprautulakkabir.
Þriggja punkta læsing.
Upphengigrind fáanleg.
Til í tveim stærbum.
A. h 94, b 79, d 32,5 sm
B. h 150, b 75, d 45 sm.
Einangruö
PEX-hitaveiturör
í sumarhús, bændabýli og íbúbarhús.
Hámarks einangrun - lágmarks
hitatap. Sérstök framleibsluabferb
tryggir einangrunargildib í áratugi.
Framleitt samkvæmt ISO 9001
gæbastabli.
Envoy'Spa
5 mxnrtt. 1703 Htr* pottur
3$ nudd-itútar
2,J6xJ.2«-h»b*1 un
Vanguard'Spa
6 niww>». ISUIItrx pottuf
31 nudd-stúuf v
a,»*uo.i«»i«*
Sovereign'Spa Prodigyspa
4 iwm, 1344 Mtr* pottur 5m*nn*, UJOSwpottur
[ 23 nudd-stOtar » nudd-stútar
2.03 x 2.34 - h»ö 44 wn 1.W x 2.21 • h»b »4 in
• Vista'Spa
6 manna, 1893 Kwa pottur
46 nudd-stútar
2.54x2.31 h*b97 tm