blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 6
r
111
LUGGARII&-
ARÐHUSllehf
2600 Itr. þriggja hólfa rotþrær fyrir sumarhús.
Framleiddar samkvæmt leiðbeiningum UST um
uppbyggingu rotþróa.
Seldar í byggingavöruverslunum um land allt.
Promens ráðleggur að ætíö sé leitað til fagaðila
um niðursetnlngu á rotþróm.
F^FROrvlEIhslS
PROMENS DALVÍK • GUNNARSBRAUT 12 • 620 DALVÍK
SÍMI: 460 5000 • FAX: 460 5001 • www.promens.is
Sólskálar
Garðhús
íslensk framleiðsla
íslcnsk hönnun
Sérsmíði
www.solskalar.is
solskalar@solskalar.is
Sfml: 554 4300 - Smiösbúö 10 - 210 Garöabæ
30* SUMARBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 blaöiö
Tugþúsundir fögnuðu sumri:
Góð aðsókn að
3 undir sama þaki
1 Hjónabandið skemmti
" fólki Sungu og trölluðu alla
j- helgina og slógu hvergi af.
fyrir hönnunarsamkeppni meðal
fjögurra skóla, Iðnskólans í Reykja-
vík, Iðnskólans í Hafnarfirði, Land-
búnaðarháskólans og Listaháskól-
ans. Nemendurnir spreyttu sig á
því að hanna umhverfislistaverk
með fræðslu- og notagildi. „Birna
Sigfríður Björgvinsdóttir, nemi í Iðn-
skólanum í Hafnarfirði, hlaut fyrstu
verðlaun í samkeppninni, en tæplega
fjörutíu nemendur tóku þátt í keppn-
inni,“ segir Páll og að tillögurnar
hafi verið fjölbreyttar og margar
nýstárlegar.
Ásta segir vakningu greinilega
byrjaða varðandi umhverfisvernd í
ferðaþjónustu því Hákarla- og ferða-
þjónustan Bjarnarhöfn vakti mikla
athygli, en hún býður upp á græna
ferðaþjónustu. Eins sóttu margir í
bás Hálendisferða, sem og í bás Fé-
lags leiðsögumanna. Auk þess sam-
einuðust lítil fyrirtæki frá hverjum
landsfjórðungi fyrir sig í bása og
kynntu sitt landsvæði og þau mörgu
tækifæri sem þar standa til boða.
Drangeyjarjarlinn Jón Eiríksson
var valinn ferðafrömuður ársins af
Heimi. Jón er vel að verðlaununum
kominn en hann hefur byggt upp
ferðaþjónustu þar um árabil og sagði
eftir móttöku viðurkenningarinnar
að það hefði ekki komið að sök öll
þau ár sem hann hafi tekið á móti
gestum, innlendum sem erlendum,
að hann væri ekki sleipur í enskunni,
þegar út í ey væri komið skipti ekki
máli hvaða tungu menn töluðu.
Það kemur víst engum á óvart að
golfsýningin vakti mikla athygli,
enda var þar margt að finna, hvort
heldur fyrir byrjendur eða lengra
komna. „Þar var bæði púttvöllur
og golfhermir og í raun myndaðist
þarna stærsta golfverslun íslands,”
segir Ásta og hlær.
Þau minnast bæði á hversu gaman
hafi verið að sjá metnaðinn sem sýn-
endur settu í básana sína.
„Við vildum minna Islendinga á
hversu margt spennandi er í boði
hér á landi, hvort sem það er fyrir gol-
farana, sumarhúsa- og garðeigendur
eða þá sem eru í framkvæmdahug
eða ferðast um landið. Við teljum
okkur eiga fallegasta land í heimi og
við ættum því að skoða það,” segir
Ásta.
„Og ég held okkur hafi tekist það
því viðbrögðin voru þannig frá
þessum mikla fjölda sem kom á sýn-
inguna,” bætir Páll við.
„Fólk kom og dvaldi hjá okkur lung-
ann úr deginum. Það mætti á stað-
inn, gekk um og skoðaði, tyllti sér
svo á kaffistofunni og fékk sér kaffi
og hélt svo áfram að skoða því það
var svo sannarlega af nógu að taka,“
segir Páll Pétursson hjá Sumarhús-
inu og garðinum, sem ásamt Ástu Ól-
afsdóttur hjá íslandsmótum var sýn-
ingarstjóri þriggja sýninga í Fífunni
í Kópavogi fyrir skömmu.
Rúmlega 21.000 manns sóttu sýn-
inguna heim sem haldin var í ríf-
lega 8000 fm rými í íþróttahúsinu
í Kópavogi. í ár voru sýningarnar í
raun þrjár, Sumar 2007, Golf 2007
og Ferðasýningin 2007. Fyrirtækið
Sumarhúsið og garðurinn hefur
haldið Sumarsýninguna í sex ár í röð,
en Golf og Ferðasýningin voru fyrst
haldnar í fyrra, þá í mun smærra
formi. I ár voru svo sýningarnar
þrjár allar haldnar undir sama þaki.
„Þetta var eiginlega sögulegur við-
burður hjá okkur því þetta var í fyrsta
sinn sem Samtök ferðaþjónustunnar
og Ferðamálasamtök Islands komu
saman í einni sýningu. Tilgangurinn
var sá að kynna íslendingum hversu
mikið býr í íslenskri ferðaþjónustu
og að við stöndum erlendum sam-
keppnisaðilum ekkert að baki,“ segir
Ásta sýningarstjóri Golfs og Ferða-
sýningarinnar. „Og árangurinn var
frábær, það er greinilega af nógu að
taka á íslenskum markaði og þessi
þrjú þemu eiga greinilega afskaplega
vel saman.”
Enda var mikið um dýrðir. Um
300 aðilar höfðu bása á sýningunni
og mátti finna allt frá sumarhúsum á
Spáni til þess hvernig best er að laða
auðnutittlinga í garðinn á veturna.
Þar á milli voru svo nýtískulegir
diskóljósa-nuddpottar, nýjustu hjól-
hýsin á markaðnum, moltukassar,
rotþrær, jarðhýsi, þakdúkar og leið-
beiningar um garðyrkju - allt frá
rósarækt á svölum fjölbýlishúsa til
skrúðgarða - auk ótal margs fleira.
Hjónabandið, sem er hljómsveit
tvennra hjóna frá Kaffi Langbrók í
Fljótshlíðinni, söng og trallaði alla
helgina og Félag blómaskreyta stóð
fyrir afar fallegri keppni meðal félags-
manna og fengu gestir bæði að fylgj-
ast með atvinnumönnum að verki
sem og að njóta skreytinganna það
sem eftir lifði helgarinnar.
Sumarhúsið og garðurinn stóð
Traktorskerra | "
Burear9.»M“kr'lerð!L '
W.
I\lý uerslun á Uagnhöfða 8
siaituueiamaphaðurínn
20hpBriggs & Stratton
Uökuaskiptur
sláttubreidd 107cm
UORTILBOÐ
2B9.900kr
Uagnhöfða 8,
110 Rvk, S. 5172010