blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 7

blaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 7
blaðið FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 SUMARBLAÐIÐ • 31 Garðheimar: Nýjar rósir og góð ráð Nú er sá tími upprunninn þegar fólk er að hefja vorverkin í garðinum og það hefur svo sannarlega ekki farið framhjá starfsfólki Garðheima sem er um þessar mundir í óðaönn að hjálpa fólki að takast á við hin margvíslegu vorverk. Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri garðyrkjudeildar hjá Garðheimum, segir að starfsfólkið reyni eftir bestu getu að svara þeim fjölmörgu spurningum sem brenna á vörum ney tenda. „Fólk er mjög mikið að leita sér ráða varðandi garðyrkjuna. Margir vilja til dæmis vita hvernig best sé að taka á þeim málum þegar mikill mosi er í grasinu." Steinunn segir að hvað þá spurningu varði sé erfitt að lofa fr amtíðarlausn til þess að losna alfarið við mosann en þó getur fólk gripið til ýmissa ráða til að berjast við mosann. „Við ráðleggjum fólki að reyna að raka upp mesta mosann, annað hvort með hrífu eða mosatætara. Það sem er gott við mosatætarann er að þá gatar fólk aðeins flötina þannig að það kemst aðeins meira loft ofan í hana. Síðan er gott að bera kalk á flötina, næringu á borð við blákorn eða lífrænan áburð.“ Fólki er líka umhugað að sporna við framgangisniglaígarðinum.Steinunn segir að gott ráð gegn sniglunum sé að bjóða þeim í glas, þannig séð. „Það hefur reynst ágætlega að egna fyrir sniglana bjórgildrur." Sniglar sækja í bjór og með því að grafa ílát með bjór ofan í jörðina er hægt að lokka sniglana ofan í ílátið. Þaðan eiga sniglarnir ekki afturkvæmt. En það eru ekki bara góð ráð sem fólk sækir í Garðheima því þar er einnig að finna glæsilegt úrval verkfæra, blóma og í raun alls sem þarf til að gera garðinn enn smekklegri. Nýverið var tekin inn ný, stór plöntusending hjá Garðheimum og þar kennir ýmissa grasa. „Við erum með töluvert mikið magn Steinunn Reynisdottir Kann mörg góð ráð fyrir garðyrkjuna. af nýjum rósartegundum sem við fluttum inn frá Noregi. Þarna eru meðal annars nokkur ný afbrigði sem hafa ekki verið á markaðnum undanfarið. Svo erum við líka með nokkrar nýjar tegundir af reyni þannig að það er margt nýtt að sjá.“ Garðaeigendur sem og blómaáhugamenn ættu því að gera sér ferð í Garðheima til að skoða glæsilegt úrval verslunarinnar og ekki skemmir fyrir að geta gengið að svörunum við erfiðum garðyrkjuspurningum á vísum stað. Hellulögn er mikil list: Vel þarf að vanda til verks Um þessar mundir fagnar Félag skrúðgarðyrkjumeistara 40 ára afmæli sínu. Margir gera sér ekki grein fyrir því að hellulagnir, gróð- ursetning og fleira í þeim dúr er viðurkennd iðngrein en svo hefur það verið síðastliðin 40 ár. Hellur setja fagran svip hvar sem þær eru settar niður en vel þarf að vanda til verksins svo að afraksturinn verði til sóma. í tilefni afmælis félagsins er kjörið að láta fylgja með smá fróðleik varðandi hellulagnir í boði Félags skrúðgarðyrkjumeistara. Notkun á hellum og steinum má í stórum dráttum skipta í tvo meg- inflokka, til að auka styrk yfirborðs og til að minnka umhirðuþörf á svæði. Á svæðum þar sem mikil umferð er skiptir miklu máli að valdar séu hellur með sem mestan styrk og að vel sé staðið að undir- búningi hellulagnarinnar. Styrkleiki þessara lagna ræðst af mörgum þáttum svo sem formi, stærð, þykkt, vinnubrögðum og frágangi jaðra. Par sem fólk vill minnka umhirðu- þörfina er hins vegar ekki þörf á eins sterkum hellum. Þá er samt mikilvægt að vinna alla grunnvinnu vel því eins og náttúrunni er einni lagið þá leitar hún sífellt leiða til að láta gróðurinn blómstra. Besta aðferðin til að hindra gróðurvöxt er að hindra að Ijós komist að plönt- unum. Þá þarf að hylja jörðina og það er hægt að gera með mörgu móti en það hefur margsýnt sig að hellulögnin er árangursríkust og endist lengst. Undirlag hellulagnarinnar er gífurlega mikilvægt þar sem krafist er mikils styrks af hellunum. Lagið undir hellunum skal helst vera þrískipt. Fyrst er neðra burðarlagið þar sem óhætt er að notast við stóra hnullunga en í efra burðar- laginu er mælt með því að ekki séu notuð korn sem eru stærri en 35 millimetrar. Ofan á það kemur síðan sléttunarlagið en þar á kornastærð helst ekki að vera yfir 8 millimetrum og það lag skal vera í kringum 30 millimetrar að þykkt. Hellurnar skulu vera lagðar með smá bili á milli og þar þarf að setja fúgusand. Eins og sjá má þá er það ekki heiglum hent að helluleggja svo að sómi sé að. Því er gott að vita til þess að í Félagi skrúðgarðyrkju- meistara er að finna fagmenn sem eru sérfróðir um hellulangir og margt fleira. Horfðu til himins Gæða þakgluggar á frábæru tilboðs verði. Margar stærði til á lager. 55x78 • 55x98 •66x118*78x98 78 x 140 • 94 x 118 • 114 x 118 « 94 x 140 HÚSASMIÐJAN Slmi 525 3000 • www.husa.is Söluaðili: Verslanir Húsasmiöjunnar um land allt Áltak býöur breiða línu af gæöa byggingarvörum m.a. utanhúsklæðningar, undirkerfi fyrir utanhúsklæöningar, kerfisloft, kerfisveggi, innihurðir, reyklúgum, reykræsti- búnaö og brunakerfi, einnig glugga, huröir, samloku- einingar, kerfisgólf o.fl. Áltak hefur það að markmiði að bjóða eingöngu gæðavörur fró viðurkenndum framleiöendum. Skoðaöu úrvaliö á www.altak.is A ~ALC ALCAN V NOV Á14*1* okk<Ti« mál Stórhöfða 33 • 110 Reykjavík • Sími: 577-4100 • www.aKak.is “ j Alið er ma hð Stallað þakefni Valsað báruál Litað valsað báruál í 0,7 mm þykkt á svipuðu verði og stál. Áltak valsar báruál og afgreiðir pantanir I réttum lengdum með 2-4 daga fyrirvara. Eigum eftirfarandi liti til á lager: Ólitað ál RAL1013 Perluhvítt RAL 3002 Rautt RAL 3009 Mórautt RAL 5009 Blátt RAL 6003 Ólívugrænt RAL7011 Koksgrátt RAL7016 Dökkgrátt RAL 9006 Silfurmetalic RAL9010 Hvítt RAL 9007 Dökkur Metalic • >i.i •• ” Áltak á til á lager, stallað þakefni úr áli í eftirfarandi litum: RAL 3009 Mórautt RAL 9005 Svart RAL9010 Hvítt

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.