blaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 1
Háskólinn í Reykjavík - nútíma háskóli,
framúrskarandi menntun og frábærir atvinnumöguleikar
Háskólinn í Reykjavík býöur upp á gríðarlega
metnaðarfullt háskólanám, sem krefst mikils
af nemendum sínum.
HR leggur gríðarlegan metnað í að bjóða
upp á kennara í fremstu röð og skólinn býður
nemendum sínum frábæra aðstöðu til náms.
HR hefur alla tíð lagt mikla áherslu á öflug
tengsl við atvinnulífið. Þetta hefur m.a.
skilað sér í því að nemendum HR hefur
gengið afar vel að fá vinnu að loknu námi
og fjöldi fyrirtækja sækist beinlínis eftir því
að ráða nemendur sem lokið hafa prófi frá
Háskólanum í Reykjavík.
HR leggur ennfremur mikla áherslu og öfluga
fræða- og rannsóknarstarfsemi, sem lýsir.sér
einna best í því að í skólanum eru nú þegar
starfræktar á annan tug rannsóknarstofnana,
þar sem nemendur og kennarar vinna saman
að spennandi verkefnum.
Fjórar deildir eru starfræktar
í Háskólanum í Reykjavík:
Tækni- og verkfræðideild
Tækni- og verkfræðideild HR er ein af
stærstu háskóladeildum landsins. Þar er lögð
áhersla á að veita tæknifólki og stjórnendum
framtíðarinnar afburða háskólamenntun.
Ennfremur er mikið lagt upp úr því að
nemendur geti, sjálfstætt eða í samstarfi
við fræðimenn í fremstu röð, stundað
öflugar rannsóknir og sinnt nýsköpunar- og
þróunarstörfum í tæknifræði, tölvunarfræði
og verkfræði. Þeir sem mennta sig í þessum
greinum eiga stóran þátt í velgengni margra
íslenskra fyrirtækja á alþjóðamarkaði.
Viðskiptadeild
Viðskiptafræðinámið í Háskólanum í
Reykjavík er góður undirbúningur fyrir mikla
ábyrgð í atvinnulífinu. Það gefur duglegum
námsmönnum tækifæri til að ná langt í starfi
og er um leið góður undirbúningur fyrir
framhaldsnám í viðskiptafræði.
Framtíðarsýn Viðskiptadeildar er:
- Að vera fyrsta val fólks sem vill læra
viðskiptafræði á (slandi.
- Að vera fyrsta val fyrirtækja og stofnana
sem vilja ráða afburðafólk til starfa sem hefur
viðskiptamenntun.
Lagadeild
Við lagadeild Háskólans í Reykjavík er í
boði metnaðarfullt og nútímalegt laganám,
sem miðar að því að útskrifaðir nemendur
verði framúrskarandi lögfræðingar og í
fremstu röð á sínu sviði. Lagadeild HR er
brautryðjandi í nútímavæðingu laganáms
hér á landi, hvort sem litið er til skipulags
námsins eða kennsluaðferða. Vorið 2007
útskrifar lagadeild fyrstu laganemana með
fullnaðarpróf í lögfræði eftir fimm ára grunn-
og meistaranám.
Kennslufræði- og lýðheilsudeild
Kennslufræði- og lýðheilsudeild býður nýtt
og spennandi nám fyrir fagfólk, sem vinnur
að því að mennta börn og ungmenni, efla
þroska þeirra, heilsu og velferð. Námið
er ætlað þeim sem vilja vinna að velferð
einstaklinga í samfélaginu, svo sem í félags-
og heilbrigðisþjónustu og þeim sem vilja
afla sér kennsluréttinda og vinna innan skóla
kerfisins. Meginmarkmið deildarinnar er að
hafa áhrif á menntun og heilsu þjóðarinnar.
Við deildina er boðið upp á nám á fjórum
sviðum: Lýðheilsufræði, stærðfræði,
íþróttafræði og kennslufræði.
Nánari upplýsingar um nám f Háskólanum f
Reykjavík má nálgast á heimasíðu skólans,
www.hr.is
Atvinnuþjónusta HR
Innan veggja Háskólans í Reykjavík er
rekin Atvinnuþjónusta HR, en markmið
hennar er að greiða leið nemenda og
fyrirtækja að árangursríkum ráðningum.
Atvinnuþjónusta HR er góð viðbót við
þá margþættu þjónustu sem nemendum
skólans stendur til boða og er hún opin
bæði núverandi nemendum og þeim sem
þegar hafa útskrifast frá HR. Þjónustan er
ekki síður miðuð við þarfir fyrirtækjanna
sem hafa í töluverðum mæli leitað að
framtíðarstarfskröftum innan raða
útskriftarnemenda HR.
Það er Ijóst að nemendur frá HR eru
eftirsóknarverðir starfskraftar úti í
atvinnulífinu enda hafa útskrifaðir
nemendur HR almennt getið sér gott orð
á vinnumarkaðnum. Samkvæmt könnun
sem gerð var meðal útskriftarnemenda
í júní 2006 voru 90% nemenda í
viðskiptafræði komnir með vinnu eða
starfstilboð viku fyrir útskrift. önnur
könnun sýndi að í atvinnuleitinni höfðu
88% fengið 2-4 atvinnutilboð sem bendir
glögglega til þess að nemendur HR geti
valið úr störfum. Meðal þeirra fyrirtækja
sem ráðið hafa framtíðarstarfsfólk í
gegnum Atvinnuþjónustu HR á síðustu
mánuðum eru Glitnir, Landsbankinn,
Kaupþing, EJS, Eimskip, Visa, Deloitte og
Straumur-Burðarás svo nokkur séu nefnd.
T°gbest
*Þelm trsvQ
’ hvenatr sem er
a"arhugmyn(Jír
„Haqnýtu verkefnln:
okkur qriðarlequm j
reynslu. Éq ertll tlj
Lþrjár vlðsklptahuqi
Ihaqnýtu námskelð|
llykilllnn að því aM
Ihrlnda þelm í frail
„HR býður í
upp á endala
tæklfærl. Ha
.breytti mfnu
FJORUGT FELAGSLIF I HASKOLANUM I REYKJAVIK
HRAFNHILDUR OG GUNNAR EGILL HAFA
ÁKVEÐNAR (OG JÁKVÆÐAR) SKOÐANIR Á NÆR
ÖLLU ÞVÍSEM VIÐKEMUR HR.
i i skólanum oq
„m, hvad kennarar
allra nemenda oq
þvi þeqar éq byriao
i í 100 manna bekkj'
•rslu á ad læra nbfn
"4ðstada
er 'rarnúr
less*lu rini
n?Ur°9
-Jmynq hr
un9s fólks e
hann sé búlr
s,9 i sessi cf
„Madur heyrir ad fyrirtæki oq menntastof
atvinnulífid líti mjöq jákvædum
auqum á HR. Madur hefur heyrt
ad sum fyrirtæki vilji ekkert
annad en útskrifada HR-inqa."
Gunnar Egill Eqilsson er é 5. ári
i laqadeild HR. Hann stefnir ad
þvi ad útskrifast f vor og verður
þá i fyrsta utskriftarhópi sem
útskrifast med meistaraprof
i löqfrædi frá HR. Hann hefur
verid atkvædamikill i félagslifi
HR érum saman.
Hrafnhildur Jörqensdóttir
Moestrup er a'2. éri i HR
i vidskiptadeild. Hún var
ritstjóri Háskolablaðsins i
fyrra og er núna formadur
Stúdentafélaqsins.
UMSÓKNARFRESTUR UM NÁM í HR ER TIL 31. MAÍ
Kynntu þér námið á www.hr.is
HÁSKÓLINN ( REYKJAVlK
REYKJAVlK UNIVERSITY