blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007
blaðið
VEÐRIÐ I DAG
Á MORGUN
VÍÐA UM HEIM
Algarve 21 Glasgow 10 New Vork 18
Amsterdam 11 Hamborg 10 Orlando 22
Barcelona 23 Helsinki 12 Osló 14
Berlin 18 Kaupmannahöfn 12 Palma 27
Chicago 18 London 13 París 17
Dublin 10 Madrid 26 Stokkhólmur 12
Frankfurt 16 Montreal 17 Þórshöfn 7
Á FÖRNUM VEGI
Rigning
Rigning, einkum suðaustanlands.
Austan 8 til 15 á morgun. Hiti yfir-
leitt 5 til 10 stíg.
Hildur Dís Jónsdóttir
„Já, Áustur-Evrópulöndin kusu
greinilega bara hvert annað."
Eva Dögg Þorvaldsdóttir
„Mér fannst of léleg lög kom-
ast áfram."
Kristín Helga Ólafsdóttir
„Já, mér fannst að íslenska lagið
hefði átt að komast áfram."
Aron Gunnar Harðarson
„Nei. Mérfannst íslenska lagið ekki
nógu gott til að komast áfram."
Skilum ónýtu rafhlöðunum!
Það er einfaft mól að losa slg við ónýtar rafhlöður. Þú getur
t-d. farið með þasr á bensínstöðvar Olís eða söfnunarstöðvar
sveitarfélaga um land allt eða fenglð þór endurvinnslu-
tunnu fyrir flokkað heimiiissorp.
#
úrvinnslusjódur Kynntu þér málið á www.urvinnslusjodur.is
Efhamóttakan hf
«JsL.
. HRINGFtAS
Kólnar
Rigning með köflum sunnan-
og vestantil, en þurrt að kalla
norðantil. Hiti 1 til 7 stig.
Voru úrslitin í undan-
keppni Eurovision
ósanngjörn?
Gríðarlega vinsælt er orðið
meðal unglinga að fara í ævintýra-
ferðir að loknum sæmræmdum
prófum. Síðastliðinn fimmtudag
voru til að mynda yfir 400 ung-
lingar í skipulögðum ferðum með
fyrirtækinu Arctic Rafting, þar
sem meðal annars var farið í rat-
leik í Hveragerði, svifið yfir gil
í járnvír, farið í flúðasiglingar á
Hvítá og ýmislegt fleira. Að sögn
Stefáns Inga Óskarssonar, eins for-
eldranna sem fóru í ferðina fyrir
hönd Breiðholtsskóla, var gríðar-
leg ánægja með ferðina. „Sumir
voru reyndar pínu kvíðnir. En
vanir leiðsögumenn voru með í
för, og fyllsta öryggis gætt.“ Og
það eru fleiri ánægðir með þessar
ferðir. Geir }ón Þórisson, yfirlög-
regluþjónnhjálögreglunniíReykja-
vík, segir að eftir að ferðirnar fóru
Sturla Snær Magnússon
„Já, mér fannst undarlegt að Austur-
Evrópulönd kæmust bara áfram."
mmmmmmmmmmmmmm
rUnglingar á Hvítá Síðan skipu-
lagðar ævintýraferðir að loknum ■
I samræmdum prófum hófust hef- j-
ur ekki komið til vandræða vegna ■
■ prófiokafagnaðar.
I i .I
p. - 'l;:}NMM
að verða svona vinsælar hafi ekki áður fyrr voru oft mikil læti eftir
komið upp vandræði í tengslum prófin, en það eru orðin nokkur ár
við lok samræmdra prófa. „Hér síðan svoleiðis kom upp.“
Ráðningar í yfirmannastöður hjá lögreglu:
Björn skipaði í embætti
án þess að auglýsa
■ Heimilt samkvæmt lögum ■ Áberandi í vetur segir formaður BHM
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, skipaði Sigríði B.
Guðjónsdóttur í stöðu aðstoðar-
ríkislögreglustjóra í desember síð-
astliðnum án þess að staðan væri
auglýst. Sama var gert þegar Ásgeir
Karlsson var ráðinn yfirmaður
greiningardeildar ríkislögreglu-
stjóra í byrjun þessa árs, en hann
hóf störf 1. mars síðastliðinn.
Tilfærslur embættismanna
Björn segir að samkvæmt lögum
sé heimilt að færa embættismenn á
milli embætta og þá séu stöðurnar
ekki auglýstar. Sigríður var áður
sýslumaður á ísafirði og hafði
starfað tímabundið hjá embætti
ríkislögreglustjóra við undirbúning
þeirra breytinga sem gerðar voru
vegna nýskipunar lögreglumála
þegar hún var ráðin í stöðuna. Ás-
geir hafði áður verið yfirmaður
fíkniefnadeildar lögregiunnar í
Reykjavík um margra ára skeið.,
Með nýskipan lögreglumála sem
tóku gildi um síðustu áramót urðu
til tvær stöður aðstoðarríkislög-
reglustjóra. Sigríður gegnir líkt og
fyrr segir annarri þeirra, en hin
var auglýst til umsóknar í vefútgáfu
Lögbirtingablaðsins 20. apríl síð-
astliðinn. Hefðbundin útgáfa þess
kom ekki út fyrr en sama dag og
umsóknarfrestur um starfið rann
út. Blaðið sagði frá því á fimmtudag
að einungis einn umsækjandi hefði
verið um stöðuna, Páll Winkel, yf-
irmaður stjórnsýslusviðs ríkislög-
reglustjóra. Hann er sonur ritara
Björns Bjarnasonar.
Engar ákvarðanir enn
Þegar Björn var spurður um hve-
nær skipað yrði í þá stöðu var svarið
eftirfarandi: „Þegar ég hef tekið
ákvörðun." Sama svar var gefið
þegar hann var spurður um hvenær
skipað yrði í stöðu ríkissaksókn-
ara. Fjórir umsækjendur eru
um það starf.
Halldóra Friðjónsdóttir,
formaður Bandalags háskóla-
manna (BHM), segir það
ekki hafa verið að ástæðu-
lausu sem settar hefðu verið
reglur um auglýsingar á
lausum störfum innan
lögreglunnar. „Ég
held því miður að það
hafi verið sérstaklega
áberandi hjá dómsmála-
ráðuneytinu núna í vetur
að embætti hafi ekki verið
auglýst. Auðvitað er það ekki
samkvæmt góðum stjórn-
sýsluháttum. Við viljum að
störf séu auglýst og síðan sé
valið þannig að hæfasti einstak-
lingurinn verði fyrir valinu. Það er
auðvitað markmiðið með þessari
skyldu um auglýsingu starfa.
Að komast hjá því að það sé
verið að veita vinum
kunningjum stöðurnar
og stöðva pólitískar
veitingar. En þetta er
alltaf svolítið erfitt
mál því það er raun-
verulega ekki verið
að brjóta neinar
reglur. Það er búið
að gera miklar
breytingar með
nýju lögreglulög-
unum og því má
segja að það sé
eðlilegt að ein-
hverju leyti
að það fólk
sem er inn-
anbúðar sé nýtt. Þetta er auðvitað
samkomulag og því er ekkert verið
að brjóta lög.“
Með þvi að gera
þetta svona
þá skapast
tortyggnl
Halldóra Friöjónsdóttir.
(ormaður Bandalags
háskólamanna
Halldóra segir að tilgangur breyt-
inganna á þeim hluta laganna sem
snýr að stöðuveitingum hafi verið
sá að lögreglumenn gætu einnig
sótt um stjórnunarstöður innan
lögreglunnar, ekki einvörðungu lög-
fræðingar. „Með því að gera þetta
svona þá skapast tortryggni."
Hermann Karl$á)n, varaformaður
Landssambands íl lögreglumanna,
:kki ætla að tjá
r stöðuveitingar
r. „Þessari um-
segir sambandið
sig frekar um þesj
innan lögreglunl
fjöllun er lokið af okkar hálfu og við
tjáum okkur ekki frekar um
þessi mál að svo komnu.“
og
Björn Bjarnason Dómsmáiaráð-
herra skipaði í embætti aðstoðar-
ríkislögreglustjóra og yfirmanns
greiningardeildar ríkislögreglustjóra
án jbess að stööurnar væru auglýstar.
Lok samræmdra prófa:
f nl Ævintýraferðir koma
í veg fyrir læti