blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 blaðið INNLENT VERÐBÓLGA Mælist nú 4,7 prósent Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,86 prósent í apríl en það er ívið meira en spáð hafði verið. Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1%, matvæli hækkuðu um 1,3% og bensín um rúm 3%. Verðbólga miðað við verðlag síðustu tólf mánuði hefur lækkað, er nú 4,7% en var 5,3% í síðasta mánuði. HUNAVATNSSYSLA Talsvert slasaður eftir bílveltu Karlmaður á tvítugsaldri slasaðist talsvert þegar bíll sem hann ók valt við bæinn Vindhæli á Skagastrandarvegi í gærmorgun. Vegfarandi gerði lögreglu viðvart um slysið. Maðurinn varfluttur á sjúkrahúsið á Blönduósi en þaðan á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Bíllinn er talinn gjörónýtur. FJAROARBGGÐ VIII selja veitufyrirtæki Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur ákveðið að selja bæði Rafveitu Reyðarfjarðar og Hitaveitu Eskifjarðar ef viðunandi tilboð fást. Þetta var samþykkt einróma á bæj- arstjórnarfundi Fjarðabyggðar. Hjá okkur fáiö þið mikið úrval af kerrum og vögnum fyrir börnin Babjfe am ® Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is_________ erjum Þjórsárver Enga Norðlingaölduveitu. Engar virkjanirí byggð. Kannanir sýna að mikill meirihluti heimamanna og þjóðarinnar allrar, vill að hér eftirfái Þjórsá að renna ífriði - alla leið. Kjósandi góður, þú getur varið Þjórsá SOL A SUÐURLANDI UNNENÐUR ÞJÓRSÁR Striidð yfir siðleysið Eftir Þórð Snæ Júliusson thordur@bladid.net ,Mér finnst einfaldlega nóg komið gagnvart mér og mínum,“ segir Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, sem setti fram áskorun til sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjör- dæmi suður í heilsíðuauglýsingu í dagblöðum gærdagsins með yfir- skriftinni „Strikið yfir siðleysið". Þar hvetur hann þá til að strika yfir nafn Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra, í kosning- unum í dag og segir að hann hafi mátt „að ósekju sitja á sakamanna- bekk í Baugsmálinu svokallaða vegna óvæginna aðgerða Haraldar Jóhannessens, ríkislögreglustjóra, Jóns H. B. Snorrasonar, saksókn- ara, og nú síðast Sigurðar T. Magn- ússonar, sem var settur í starf Jóns H. B. Snorrasonar eftir að hann var gerður afturreka með málatilbúnað sinn haustið 2005“ Þegar fram hafi komið í fjöl- miðlum að Björn ætlaði sér að skipa Jón H. B. Snorrason í emb- ætti ríkissaksóknara keyrði síðan um þverbak að sögn Jóhannesar og segir hann þá ætlun hafa verið helsta hvatann að auglýsingunni. ,Það er búið að henda þessu máli út úr Hæstarétti og héraðsdómi. Samt er haldið áfram fram í rauðan dauðann að reyna að kné- setja okkur með einhverjum hætti á kostnað ríkisins." Jóhannes segir það von sína að auglýsingin veki fólk til umhugs- unar í kjörklefanum. „Ég vona bara að sem flestir fari að mínum ráðum. Ég stend einn að þessari auglýsingu og geri það alfarið á minn kostnað. Ég er ekkert að hlaupa á bak við neinn annan og hef enga ríkisstjórn til þess að greiða þetta fyrir mig.“ Aðspurður hvort hann hafi af því áhyggjur að Björn muni mögulega fara í meiðyrðamál við hann vegna auglýsingarinnar sagði Jóhannes það þá bara vera hans mál. Björn Bjarnason sagði auglýsing- una tala sínu máli en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um hana. Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor, segir að auglýsingin kunni að vera á gráu svæði. „Ég myndi segja að þetta væri frekar óvenjulegt eins og málið liggur fyrir en í pólitískri umræðu er nú margt látið viðgangast sem ella myndi ekki vera gert. Það er nú yfirleitt frekar rúmt málfrelsi 1 opinberri umræðu Segir auglýs- inguna tala sínu máii Björn Bjarnason Dóms- og kirkjumálaráðherra og þetta er ekki neitt óvenjuleg orð- ræða í íslenskum stjórnmálum. Mér finnst því á mörkunum að ráðherra gæti farið í meiðyrðamál út af þessu. En auglýsingin er vissulega sérstök. Ég man ekki eftir svona löguðu áður.“ Kjósendum er heimilt að breyta röð frambjóðenda á þeim lista sem þeir kjósa eða strika yfir nafn þeirra frambjóðenda sem þeir vilja hafna. Þó er einungis heimilt að gera slíkar breytingar á þeim lista sem er kosinn. Ef breytingar eru gerðar á öðrum lista ógildir það kjörseðil- inn og þar með atkvæðið. Þar sem Björn situr í öðru sæti á lista síns kjördæmis þarf að minnsta kosti fjórðungur kjósenda Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu að strika hann út til þess að það hafi áhrif. Það hlutfall gæti síðan hækkað þar sem áhrifin ráðast af fjölda þing- manna sem hver listi fær kjörna. Icelandair Group færir ut kviarnar: Leitar tækifæra í Austur-Evrópu Icelandair Group hefur undir- ritað viljay firlýsingu um kaup á tékk- neska flugfélaginu Travel Service, sem er stærsta einkarekna flugfélag í Tékklandi. Félagið rekur leiguflugs- starfsemi einkum frá Prag og Búda- pest í Ungverjalandi auk þess sem það á og rekur lággjaldaflugfélagið Smart Wings. Heildarvelta Travel Service í fyrra var um 18 milljarðar króna. Kaupverðið er trúnaðarmál og standa vonir til að kaupin verði gengin í gegn í lok júní. Að sögn Jóns Karls Ólafssonar, forstjóra Icelandair Group, er tékk- neska félagið vænlegur fjárfesting- arkostur og liður í frekari útrás til Austur-Evrópu, en í fyrra keypti félagið lettneska flugfélagið Lat- charter. „Það er ljóst að ef af kaup- unum verður stækkar Icelandair Group hratt á árinu. Travel Service er vel rekið flugfélag og hefur góða og vaxandi stöðu á markaði sem verið hefur í mikilli gerjun.“ Travel Service hefur yfir að ráða 10 Boeing 727-800 þotum og tveimur Boeing 737-500. Þá eru í pöntun tvær Boeing 737-900 þotur og ein þota af gerðinni Boeing 787 Dreamliner. Einnig hefur félagið haslað sér völl í einkaþoturekstri í austurátt lcelandair Group hefur í hyggju að kaupa tékkneska flugfélag- iö Travel Service. og segir Jón Karl það vera spenn- andi kost þar sem eftirspurn eftir slíkum samgöngumáta fer sífellt vaxandi. Efnalaugin Björg Góó þjónusta Þekking Opiö: mán-fim 8:00 - 18:00 föst 8:00 - 19:00 laugardaga 10:00 - 13:00 EFNALAUG ÞVOTTAHUS Háaleitlsbraut 58-60 • Sími 553 1380

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.