blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007
blaðið
Hvod er qó vero ég?
64 ungskáld takast á við stóra spurningu
Hugmyndaauðgi, sköpunarkraftur
og hæfni nemenda til þess að Æ
tjá sig í rituðu máli birtist nú á
mjólkurfernum landsins. ^
Kíktu á öll verkin á www.ms.is.
/í
mm ^ M
*»! 3 í j ]
i 3 S 16 i _ U*
/ — >
O í. ,7.8 ii!i;
mjólk, ondleg
nœring ó fernum!
hækkar um 15%
TM hefur ákveðið að hækka iðgjöld frjálsra ökutækjatrygginga
um 15% frá og með 1. júlí. Ástæðan er sögð verulegur halli af
rekstri þessa hluta TM en tjónatíðni hefur aukist umfram það
sem áætlanir gerðu ráð fyrir.
Reiði og vonbrigði eftir niðurstöðuna í Eurovision:
Úrslitin voru ekki
keppninni til góðs
■ Vesturlöndin tala um aö hætta þátttöku ■ Þarf aö breyta skipulaginu
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Úrslitin í undankeppni Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
voru mörgum Islendingum von-
brigði, enn og aftur. Við erum þó
ekki eina þjóðin sem lýst hefur yfir
vonbrigðum með niðurstöðuna, því
fjölmiðlar víða í Evrópu hafa lýst yfir
vanþóknun sinni á keppninni. Segja
þeir að Austur-Evrópa hafi eignað
sér keppnina og fjölmiðlar í Hollandi
hvöttu meira að segja almenning til
að sniðganga úrslitakvöldið í kvöld
með öllu.
íslandsvinurinn Barry Viniker
er einn helsti sérfræðingurinn um
Eurovision, en hann heldur úti heima-
síðunni esctoday.com sem heldur
úti ítarlegri umfjöllun um keppnina.
Hann var furðu lostinn eftir undan-
keppnina og hefur, líkt og margir
Islendingar, áhyggjur af þróun mála.
„Keppnin er að færast í þá átt að Vestur-
Evrópulöndin eru komin á það stig
að gefast upp. Það ríkti mikil reiði í
gærkvöldi meðal sendinefndanna og
í ár er reiðin nógu mikil til að skaða
keppnina. Ég hef heyrt um einn laga-
höfund sem er kominn í úrslit, sem
hefur lagt til að draga lagið úr keppni
núna í stað þess að þurfa að þola nið-
urlægjandi úrslit í kvöld. Þeir telja sig
ekki eiga möguleika af því þeir eru
frá vestanverðri Evrópu.“
Mikið hefur verið rætt um að
breyta skipulagi keppninnar á þann
hátt að skipta undankeppnunum í
tvær keppnir, þar sem þátttakendum
verður skipt eftir austur- og vestur-
blokkinni. Viniker tekur undir þau
sjónarmið og segir undankeppnina
í gær hafa verið allt of langa. Hann
segir að nú þegar séu hugmyndir uppi
um að breyta skipulaginu árið 2009,
en telur að það þurfi að gerast strax
á næsta ári. „Þetta er farið að hafa
áhrif á vinsældir keppninnar í vestan-
verðri álfunni. Það skýrist að mörgu
leyti af því að þau lönd eiga ekki
möguleika á sigri og niðurstaðan er
alltaf vonbrigði og reiði. Mörg lögin
sem komust áfram voru góð, en lögin
frá Vestur-Evrópu voru það líka og ég
hefði viljað sjá að minnsta kosti þrjú
þeirra fara áfram.“
Viniker telur gæði keppninnar í
ár vera með allra besta móti. Mörg
skemmtileg lög séu í boði og fjöl-
breytnin mikil. En á hverja veðjar
hann í kvöld? „Ég tel mikilvægast i
ljósi úrslitanna í gær að trúverðugt
lag fari með sigur af hólmi í kvöld.
Það þarf að vera gott lag með góðri
frammistöðu. Ég myndi vilja sjá Lett-
land, Þýskaland, Slóveníu, Svíþjóð,
Ungverjaland eða Frakkland vinna.
Það væri keppninni fyrir bestu.“
Klæðskiptingurinn frá Úkraínu
hefur vakið mikla athygli og þykir
vera einna sigurstranglegastur. Vini-
ker segir lagið vissulega skemmtilegt,
en telur það keppninni ekki til fram-
dráttar fari hann með sigur af hólmi.
„Þetta er söngvakeppni, ekki keppni
um besta skemmtiatriðið. Laginu mun
vegna vel en það yrði keppninni ekki til
góðs ef brelluatriði verður fyrir valinu
og þetta er svo sannarlega brelluatriði.“
Viniker var að lokum spurður út
í frammistöðu Eiríks Haukssonar á
sviðinu í Helsinki. Hann segir að Ei-
ríkur hafi verið dásamlegur á sviðinu
og átt fyllilega skilið að komast áfram.
„Þetta var frábært lag og líklega besta
rokklagið i keppninni. Hann hefði
ekki getað gert betur. Vonandi sjáum
við hann i fjórða skipti, en ég tel að von-
brigðin séu of mikil í þetta skipti."
Eurovision:
43 þúsund greiddu atkvæði
íslendingar greiddu um 43
þúsund atkvæði í undankeppni
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva í fyrrakvöld. Hvert at-
kvæði kostaði 100 krónur og voru
því tekjur af atkvæðagreiðslunni
4,3 milljónir króna og fara þær að
mestu upp í kostnað.
Neytendasamtökin hafa gagn-
rýnt bæði hátt verð í símkosning-
unni sem og að rukkað hafi verið
fyrir ógild atkvæði. Linda Björk
Waage, upplýsingafulltrúi Símans,
segir samanburð á verði hér á Is-
landi og í Evrópu ekki marktækan.
Mun færri greiða atkvæði hér en í
Evrópu og því sé kostnaðurinn á
bak við hvert atkvæði meiri.
Varðandi rukkun fyrir ógild
atkvæði segir Linda að ekki hafi
verið hægt að slökkva á atkvæða-
kerfinu þar sem næsta símakosn-
ing fer fram í kvöld. Það taki
einfaldlega of langan tíma að
endurræsa búnaðinn og því fylgir
nokkur áhætta. Jafnframt hafi
verið tekið skýrt fram að einungis
mætti kjósa innan ákveðinna
tímamarka.