blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 8
blaöið PfiPINOS sl \%zur á y$0Í$i> f// Hverafold ^lludaS^ Hækkaðu þig Núpalind upp um einn Reykjavíkurvegur 9 Wmfc, - „^ 5~ 12345 Hin sívinsæla Rán í sumarútgáfu Light, léttan barnafatnað sem er vatnsheldur, ófóðraður og andar vel. Rán light byggir á Rán fatnaöinum sem var metsöluvara hjá okkur í vetur. Fæst í gráu, appelsínugulu og svörtu. Verð: Jakki Buxur NORÐUR REYKJAVÍK: Smáralind Kringlan Bankastræti 5 Faxafen 12 GARÐABÆR: Miðhraun 11 AKUREYRI: Glerárgata 32 www.66north.is UTAN ÚR HEIMI Lögreglumenn ekki áminntir Lögreglumennimir 11 sem voru aðilar að skotárás á Jean C De Menezes árið 2005 fengu ekki áminningu frá innra eftirliti lögreglunnar. Lögreglumennirnir töldu að Menezes væri að undirbúa sjálfsmorðsárás og skutu þeir hann átta sinnum. Fjölskylda Menezes harmar úrskurð lögreglu. Yahoo vill opna útibú hér: Notar raforku á við Akureyrarbæ Raforkunotkun útibús frá banda- ríska hátæknifyrirtækinu Yahoo hér á landi yrði að minnsta kosti á við orkunotkun Akureyrarbæjar, eða 15 kílóvött. Borið saman við stóriðju er það þó ekki mikil orku- notkun; sem dæmi framleiðir Kára- hnjúkavirkjun 690 kílóvött. Eins og fram hefur komið fund- uðu menn frá Yahoo í fyrradag með þeim Geir H. Haarde for- sætisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, um mögu- legt útibú fyrirtækisins á fslandi. „Forsvarsmenn þeirra hátæknifyr- irtækja sem við höfum rætt við leggja mikið upp úr umhverfis- málum og vilja fá vistvæna orku á hagstæðu verði. Því hafa þeir sýnt áhuga á íslandi. Einnig hjálpar svalt loftslag hér á landi okkur í þessum efnum. f heitari löndum þurfa svona útibú að eyða tölu- verðri orku í að kæla tölvubúnað- inn, en þess þarf ekki á íslandi,“ segir Guðlaugur Þór. Forsenda þess að Yahoo geti opnað útibú hér á landi er öruggari tenging við útlönd. Samgönguráðu- neytið hefur sett í gang undirbún- ing nýs sæstrengs sem á að vera kominn í gagnið haustið 2008. „Al- mennt tekur um 2 til 3 ár að setja upp svona útibú. Þannig að vinna við sæstrenginn kemur ekki í veg fyrir að Yahoo opni útibú hér,“ segir Guðlaugur Þór. Eurovision-leikur Blaðsins: Hlýtur sjónvarp, tölvu og matarveislu Sigurvegari í Eurovision-leik Blaðsins var hún Þóra Marta Krist- jánsdóttir. Hlýtur hún í vinning glæsilegan 37” flatskjá og Wii-leikja- tölvu frá Bræðrunum Ormsson, allar tegundir af snakki og ídýfum frá Vogabæ, ísveislu frá Emmessís, ostaveislu frá Osta- og smjörsölunni, matarveislu fyrir 20 manns frá KFC, fullt af Maarud Spro Mix-snakki frá Innes, pepsiveislu frá Ölgerðinni, viðskiptakort frá Löðri og pitsa- veislu fyrir 20 manns frá Papinos. Til að taka þátt þurftu lesendur að senda Blaðinu upplýsingar um sjáft sig og segja okkur hvert uppáhalds Eurovision-lagið þeirra væri. Lang- vinsælasta Eurovision-lagið reynd- ist vera „Nína“ með þeim Eyva og Stebba. Þóra Marta valdi hins vegar Vinningshafarnir Fjölskyldan meö Trausta Hafliðasyni, ritstjóra Blaðsins. lagið „All out of Luck" með Selmu. Blaðið þakkar fyrir frábæra þátt- töku og óskar Þóru Mörtu innilega til hamingju með vinningana, sem munu eflaust koma sér vel annað kvöld á stærsta sjónvarpskvöldi ársins.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.