blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 10
blaöið
SKRAÐU ÞIG
í VILDARKLÚBB
LAUGARDAGUR 12. MAI 2007
Lögreglumenn ekki áminntir
Lögreglumennirnir 11 sem voru aðilar að skotárás á Jean C De Men-
ezes árið 2005 fengu ekki áminningu frá innra eftirliti lögreglunnar.
Lögreglumennirnir töldu að Menezes væri að undirbúa sjálfsmorðs-
árás og skutu þeir hann átta sinnum. Fjölskylda Menezes harmar
úrskurð lögreglu og segir réttlætinu ekki vera fullnægt.
Kópavogsbær að skila inn methagnaði:
Vilja ekki lækka
mat eldri borgara
■ Minnihlutinn vill 30% lækkun ■ Yfirboð segir bæjarstjóri
Eftir Lovisu Hilmarsdóttur
lovisa@bladid.net
Minnihluti bæjarstjórnar Kópa-
vogs segist mjög ósáttur við að
ekki skuli vera greiddur niður mat-
arkostnaður fyrir eldri borgara.
Samfylkingin í Kópavogi fór fram
á það við Félagsþjónustu Kópavogs
að gerður yrði samanburður á mat-
arkostnaði eldri borgara í Reykja-
vík og Hafnarfirði. Samanburður-
inn sem Félagsþjónusta Kópavogs
gerði sýnir að Hafnarfjörður selur
matinn á lægsta verðinu, 425
krónur, Reykjavíkurborg selur mat-
inn á 510 krónur og Kópavogsbær á
545. Matarþjónusta er tvenns konar.
Annars vegar er hádegisverður
seldur á félags- og þjónustumið-
stöðvum fyrir aldraða. Hins vegar
eiga þeir sem geta ekki annast mat-
seld sjálfir og sjá sér ekki fært að
borða í næstu félagsmiðstöð kost
á að fá heimsendan mat. Guðríður
Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar, segir að minnihlut-
inn sé ítrekað búinn að leggja til
að matarkostnaður eldri borgara
verði lækkaður um 30%. Tillagan
var felld í desember. Á bæjarstjórn-
arfundi þann 8. maí var lagt til í
annað sinn að vísa tillögunni til
umsagnar félagsmálaráðs. 1 bókun
sem Samfylkingin gerði á þessum
sama fundi kemur fram að Sam-
fylkingin furði sig á þvi að tillaga
sem nemur einungis 2,5 milljónum
króna á ári þurfi svo ítarlega yfir-
ferð í nefndum og ráðum bæjarins
í svo ríku sveitarfélagi.
Að sögn Guðríðar er þessi kostn-
aður mikill fyrir fólk sem er með
lítið milli handanna. „Okkur
svíður undan því að fá þetta ekki
samþykkt á sama fundi og menn
eru að skila inn methagnaði. Af-
gangur á rekstri Kópavogsbæjar
var rúmlega 4 milljarðar.”
Gunnar I. Birgisson segir að það
sé gott að búa í Kópavogi og að allt
gangi vel. Aðspurður um lækkun
,,Þetta eryfirboð
hjá minníhlut-
anum. Við tökum
mátuiega miklð
markáþví”
Gunnarl. Birgisson,
bæjarstjóri
„Okkur svíður
undan þvi að
fá þetta ekki
samþykkt”
Guðríður Arnar-
J* dóttir, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar
matarverðs fyrir eldri borgara
sagði hann: „Við erum með hann
mjög lágan og þetta er yfirboð hjá
minnihlutanum. Við tökum mátu-
lega mikið mark á því, við erum að
gera góða hluti hér og það eru ekki
margir einstaklingar sem nýta sér
þetta. Við erum nú þegar að greiða
þetta niður um 7 milljónir.”
Dæmdur fyrir vörslu barnakláms:
Fékk sex mánaða fangelsi
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt rúmlega fimmtugan karl-
mann í 6 mánaða fangelsi, þar af þrjá
skilorðsbundið, fyrir vörslu á 6548
ljósmyndum og 179 hreyfimyndum
sem sýndu börn á kynferðislegan
og klámfenginn hátt. Þá voru tvær
tölvur og harður diskur, sem efnið
fannst á, gerðar upptækar. Dómur-
inn taldi brot mannsins stórfellt. Um
var að ræða mikið magn af myndum
og meðal þeirra voru myndir af mjög
ungum börnum, nánast niður í reifa-
börn, sem svívirt eru á ruddalegan
og klámfenginn hátt. 1 gögnum máls-
ins kom fram að maðurinn sagðist
hafa „einhverja söfnunarþörf" á
svona klámefni og hafði safnað því
undanfarin tvö ár þegar lögreglan
lagði hald á tölvur hans.
Maðurinn er fjölskyldumaður til að vinna bug á áhuga sínum
en hefur eftir því sem segir í á klámefni þar sem börn eru
dómnum ekki leitað sér aðstoðar fórnarlömb.