blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 12

blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 blaöiö Serbar mynda ríkisstjórn Lýðræðisflokkar í Serbíu hafa myndað ríkisstjórn. Flokkarnir höfðu frest til 14. maí, að öðrum kosti hefði þurft að kjósa aftur. Menn óttuðust að Sósíalistaflokk- urinn kæmisttil valda ef kosið yrði aftur, en Slobodan Milosevic, var leiðtogi flokksins í valdatíð sinni. JAPAN Nýburapóstkassi: Spítali í Japan hefur komið fyrir lúgu með hitakassa fyrir innan. Þetta erætlað nýfæddum börnum sem ann- ars hefðu verið skilin eftir á víðavangi. Spítalinn er rekin af kaþólikkum og yfirmaður spítalans sagðist vona að þetta myndi einnig sporna við fóstureyðingum. Brasiiíumenn fá dýriing Um ein milljón manna kom saman í Sau Paulo, höfuðborg Brasilíu, til að sjá Benedikt páfa 16. taka Friar Galvao í dýrlingatölu. Galvao er munkurfrá 18. öld og hefur enn þann dag í dag mikil áhrif á fólk. Þetta er fyrsta heimsókn páfa til Brasilíu sem er fjölmennasta kaþólska ríki heims. Frá ritstjórn Ranghermt var í myndatexta með frétt af dómi Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins gegn Jónasi Garðarssyni í Blaðinu í gær að þar væru aðstandendur sakbornings. Hið rétta er að á myndinni voru aðstandendur þeirra sem létust í sjóslysinu á Viðeyj- arsundi. Ritstjórn biður hlutaðeigandi velvirðingar á mistökunum. Jónína Bjartmarz: Kærir Kastljós Jónína Bjartmarz umhverfis- ráðherra hefur skilað inn kæru til siðanefndar Blaðamanna- félagsins vegna umfjöllunar Kastljóss um afgreiðslu ríkisborg- araréttar til handa tengdadóttur Jónínu. „Umfjöllunin byrjaði á einræðu sem reyndist í öllum efnisatriðum vera röng. Það er forsenda kærunnar,“ segir Jónína sem gengur út frá því að málið verði dæmt sér í hag. Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Sverrir Einarsson Hermann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tílkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Alþingiskosningar 2007: Til kosninga göngum vér ■ Rúmlega 221 þúsund á kjörskrá ■ Kjörsókn 87,7% áriö 2003 Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Kosið er til Alþingis í dag og eru rúm- lega 221 þúsund manns á kjörskrá en árið 2003 var kjörsókn 87,7 prósent. Skoðanakannanir á fylgi flokkanna hafa sýnt mikla hreyfingu á kjós- endum og eru samkvæmt þeim enn margir sem ekki hafa ákveðið hvað þeir ætla að kjósa. Ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks, sem hefur setið við völd síðustu tólf árin, er ýmist fallin eða heldur velli samkvæmt skoðanakönnunum. Hafa margir haft orð á því hversu óspenn- andi kosningabaráttan hefur verið en búast hins vegar við spennandi kosningu. Orslit alþingiskosninganna árið 2003 voru þau að Sjálfstæðisflokkur- inn hlaut 33,7 prósent atkvæða, Sam- fylking 31 prósent, Framsókn 17,7 prósent, Vinstri græn 8,8 prósent og Frjálslyndi flokkurinn 7,4 prósent. Hefur veðrið á kjördag áhrif? Sumir telja að veðrið á kjördag hafi áhrif á niðurstöður kosningarinnar. Þórólfur Þórlindsson, prófessor í fé- lagsfræði, og Björn Bjarnason rekstr- arhagfræðingur gerðu fyrir nokkrum árum rannsókn á veðri á kjördag i tengslum við borgarstjórnarkosn- ingar. Þeir komust að þeirri niður- stöðu að veður á kjördag skipti máli og gott veður á kjördag hefði komið Sjálfstæðisflokknum og sitjandi borg- arstjóra, Davíð Oddssyni, til góða. Engin sérstök skýring fannst á þessu í rannsókninni þrátt fyrir nokkrar tilraunir. í dag er spáð norðaustan 5 til 10 metrum á sekúndu og léttskýjuðu sunnan- og suðvestantil, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Islands. Hiti verður 6 til 7 gráður þegar hlýj- ast er. Á Norðaustur- og Austurlandi verður norðanátt, þó ekki hvöss, og úrkoma í formi snjókomu eða slyddu. Hiti verður um og rétt yfir frostmark að deginum. 10. maí 2003, þegar síð- ast var kosið til Alþingis, var norða- nátt á landinu og 3 til 8 metrar á sek- úndu. Skýjað var á köflum víðast hvar og hitinn 4 til 8 gráður. Var einna bjartast vestantil en einhver úrkoma á Suðausturlandi. Yfirstrikanir eru yfirlýsing kjósenda Kjósendum í kosningum á íslandi er heimilt að breyta röð frambjóð- enda á þeim lista sem þeir kjósa ásamt þvi að strika yfir nafn frambjóðenda sem þeir vilja hafna. Hafa þarf í huga að einungis er heimilt að gera breyt- ingar á þeim lista sem menn kjósa því breyting nafnaraðar eða yfirstrik- anir á öðrum lista ógilda kjörseðilinn. Það hve mikil áhrif útstrikunin hefur ræðst af fylgi listans og sæti viðkom- andi frambjóðanda. En til að röð fram- bjóðenda breytist vegna endurröð- unar eða útstrikana þarf talsverðan hluta kjósenda viðkomandi lista. Gunnar Helgi Kristinsson, pró- fessor í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, segir að þess séu engin dæmi, allavega úr seinni tíð, þar sem yfirstrikanir hafi skipt máli. „Það er frekar ólíklegt að þær muni hafa mikil áhrif i næstu kosningum. Yf- irstrikanir eru meira yfirlýsing kjósenda heldur en eitthvað sem hefur áhrif. Við höfum heldur ekki haft m j ö g markvissar tilraunir til þess að hafa áhrif með þeim hætti.“ Kosningavökur flokkanna Á kjörskrá eru á landinu öllu 221.368 manns og eru konur 0,5 pró- sentum fleiri en karlar. Kjósendur með lögheimili erlendis eru 4 prósent af kjósendatölunni og hefur þeim fjölgað um 0,7 prósent frá síðustu alþingiskosningum. Fjölgun meðal kjósenda með lögheimili hér á landi er hins vegar um 4,9 prósent. Þeir sem vegna aldurs fá að kjósa í fyrsta sinn til Alþingis í ár eru 7,7 prósent af kjósendatölunni. Á kjörskrá árið 2003 voru 211.289. Af þeim greiddu 185.392 atkvæði eða 87,74 prósent. Flokkarnir standa allir fyrir kosn- ingavökum í kvöld þar sem stuðnings- menn þeirra koma saman til að fylgj- ast með vali þjóðarinnar. I Reykjavik heldur Framsóknarflokkurinn sína kosningavöku í Þjóðleikhús- . kjallaranum, Frjálslyndi flokk- urinn í Rúgbrauðsgerðinni, íslandshreyfingin á Borginni, Samfylkingin á Grand Hóteli, Sjálfstæðisflokkurinn á Broad- way og Vinstri grænir í Súlna- sal Hótel Sögu. Rakamælir í kaupbæti Kauptu 10 lítra FILigger 97, viðarvörn sem stenst afburðavel fslenska veðráttu og fáðu rakamæli í kaupbæti. Mældu rakastigið í tréverkinu áður en þú málar - til að tryggja góðan árangur. Sæktu þér góð ráð og leiðbeiningar í næstu Flugger verslun og á www.flugger.is Flligger litir Reykjavík Stórhöfði 44 - Snorrabraut 56 - Skeifunni 4 Kópavogur Bæjarlind 6 Hafnarfjörður Dalshraun 13 Keflavík Hafnargata 90 Akureyri Austursíða 2 Borgarnes Egilsholt 1

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.