blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 blaöiö ^vövdag^ -sSjíst- .„-.r-r- sr*-- 'j SÍ-'^áiS*' ss^jrí.*tí' •“' 1Z~*.„«■>*“* Hispanitas Sumarlegir Skóverslun Kringlunni 8-12 Sími 553 2888 Stærð 35-42 Verð 7995 Vika í Rom á besta staðí míðborgínní 49.900 kr. Gist hi a einu af þremur Seb Raeli hóteluniim. Takmarkað sæiaframbnð á þessu einstaka tilboði Inmfalið cr f!ug, gisting í 7 naetur með morgunverði og ftugyallarskattar Vr.rð á mgnn cr miðað við 7 fOllorðna. Tilboðið gildir í allar bröttfarir ti! Romar 3 júlí ?8 ágúst. " Innifalið f verði: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjðrn. Bókaðu strax á www plusferdir ís FERÐIR \flSA ffi*> (¥] PLÚSFERÐIR - Lágmúla 4 -105 Reykjavlk - Sfmi 535 2100 WWW.plusferdír. ÍS Herrafötin fást hjá okkur Paul Smifh - Matinique - Tiger of Sweden - Bruunz Bazaar [CvAlVrXie. ni c n n krin&lunni s.512 1 799 Illugi Jökulsson vili skipta um ríkisstjórn Taka til, sópa, lofta út! Örfáum dögum eftir síðustu alþingiskosningar - það er að segja fyrir fjórum árum - þá hitti ég á förnum vegi einn af helstu hugmyndafræðingum Sjálfstæð- isflokksins. Þá þegar var ljóst að ríkisstjórn sjálfstæðismanna og framsóknarmanna myndi halda áfram eins og ekkert hefði í skorist. „Eruð þið virkilega ekkert orðnir leiðir á þessari ríkisstjórn?“ spurði ég hugmyndafræðinginn. „Hún er búin að sitja i átta ár og virðist vera löngu búin með allar sínar hug- myndir og starfsþrek og anda?“ Það var athyglisvert að hug- myndafræðingurinn - sem ég mun ekki nafngreina af tillitssemi við fjölskyldu hans en það segir kannski einhverjum eitthvað að við hittumst fyrir framan Þjóðar- bókhlöðuna - að hann bar ekki einu sinni við að andmæla lýsingu minni á ríkisstjórninni. Heldur hló bara og sagði: „Við erum ekki orðnir leiðir á ... völdunum!“ Fjögur ár... Síðan eru sem sagt liðin fjögur ár. Fjögur ár af business as usual - sem í sumum tilfellum er vissu- lega ágætt. En líka fjögur ár af helmingaskiptum í stóru sem smáu, vægast sagt umdeilan- legum stöðuveitingum og margvís- legri sérgæsku stjórnarherranna við „sitt fólk^. Fjögur ár af ráðlitilli hagstjórn sem nú er meira að segja gagn- rýnd harkalega af hinum útlæga keisara í Seðlabankanum. Þótt trommað sé upp í auglýsingum með þá blekkingu að engum sé treystandi í efnahagsmálum nema akkúrat þessum tveimur flokkum í samkrulli. Fjögur ár af umhugsunarlausri stóriðjustefnu. Fjögur ár enn án þess að aldr- aðir, öryrkjar og fleiri hópar hinna minnst megandi hafi enn hlotið leiðréttingu kjara sinna þótt allt sé yfirfljótandi af peningum í samfé- laginu - og það hafi beinlínis þurft að lúskra á ríkisstjórninni til að myndast til að bæta eitthvað hag okkar minnstu bræðra og systra. Fjögur ár af Íraksstríðinu. Dyggur þjónn valdaklíku Ég held að það sé löngu tíma- bært að skipta um ríkisstjórn. Ég held reyndar að það sé beinlínis lífsnauðsynlegt fyrir íslenskt sam- félag. Engir stjórnmálaflokkar - hversu vel af guði gerðir sem þeir kunna að vera - hafa gott af því að geta gengið að völdunum jafn vísum og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa gert að undanförnu. Það endar með ósköpum - það endar með klíkuskap, yfirlæti, sérhagsmuna- gæslu, einkavinavæðingu og já - spillingu! Og það endar með makalausum tíðindum eins og þeim að nú standi fyrir dyrum að skipa Jón H. B. Snorrason í embætti ríkissaksókn- ara - manninn sem ekki aðeins er persónugervingur Baugsmálsins heldur sýndi Hka fram á algjöra vanhæfni sína í starfi í málverka- fölsunarmálinu. En af þvi litið er á hann sem dyggan þjón ákveðinnar valdaklíku, þá skaí hann komast til æðstu metorða í samfélaginu. Það þarf að breyta þvi samfélagi þar sem slíkt gerist. „Þaó ei líka niðuilœgirig fyrir okkur sjálf þegar við erum hálfpartinn farin að trúa því aö „enginn geti stjórnað íslandi" nema þessir tveir tilteknu stjómmála- flokkar" Við eigum þetta ekki skilið Það er reyndar hreinasta nið- urlæging fyrir íslenska þjóð að búa við slíkt samfélag - og þótt sagt sé að hver þjóð fái þá stjórn- arherra sem hún eigi skilið, þá eigum við þetta ekki skilið. Það er líka niðurlæging fyrir okkur sjálf þegar við erum hálf- partinn farin að trúa þvi að „enginn geti stjórnað fslandi" nema þessir tveir tilteknu stjórnmálaflokkar í sínu nána samstarfi. Að samfélagið muni kollsteypast ef þau 40-60% þjóð- arinnar sem aðhyllast aðra hug- myndafræði fái að koma sínum fulltrúum að landstjórninni. Að það sé eitthvað „hættuleg® ef áhugasamir stjórnmálamenn úr Samfylkingu eða Vinstri- grænum (svo ég nefni bara tvo stærstu stjórnarandstöðuflokk- ana) fái að hafa áhrif - taka til, sópa, lofta út. 1 ' 1 ja ffl H 1 1 P : m i |ff| l A 7 m Bltl 1111

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.