blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 12. MAÍ2007
folk@bladid.net
blaðið
HVAÐ Nú er Sjálfstæðisflokkurinn til
FIT^NST sölu á eBay. Hefurðu áhuga?
L' „Ég er ekki viss um að hann kæmist í gegnum áreiðan-
Jl JLi JLV • leikakönnun með Bjöm Bjarnason innanborðs. “
Jótt Ásgeir Jóhannessott, athafnamaður
Óþekktur aðili hefur sett Sjálfstæðisflokkinn til sölu á uppboösvefnum
eBay, fyrir 1000 dollara. Er seljandinn skráður sem VG konan. Baráttu
Baugsfeðga við Sjálfstæðisflokkinn þarf varia að tíunda frekar, en nú
hefur Jóhannes Jónsson birt auglýsingu þar sem hann hvetur fólk til
að setja X við D en jafnframt strika út Bjöm Bjamason.
HEYRST HEFUR
RISESSAN arkaði um borg og bý í
gær við mikinn fögnuð viðstaddra.
Hún hagaði sér þó fremur eins og
Godzilla en ung stúlka og mátti
sjá skemmda bíla eins og hráviði
um allt. Þessi risavaxna tréstúlka
gerðist jafnvel svo djörf að setjast á
hækjur sér á miðri götu til að losa
úr þvagblöðrunni, en slíkt athæfi er
bannað með lögum á Islandi.
Eftirþaðatvik
gerðust nokkrir
forvitnir smá-
strákarsvodóna-
legir að kíkja
undir pils hennar,
svona rétt til að
athuga hvort ekki
væri allt í „réttum
hlutföllum“...
NÝ AUGLÝSING
Ungra framsóknarmanna sýnir
fígúru eina í aðalhlutverki. Er
auglýsingin birt á bloggsíðu Ómars
R. Valdimarssonar, talsmanns
Impregilo á íslandi. Ómar segir
fígúruna minna sig á einhvern sem
hann þekki og biður þá sem vita
meira að senda sér rafpóst. Gaukur
Úlfarsson, leikstjóri Silvíu Nætur,
segir á sinni bloggsíðu að fígúran
eigi augljóslega að vera
af sér, en þeir tveir
hafa lengi eldað
grátt silfur saman og
Omar til dæmis hótað
að kæra Gauk. Nú
erbaraaðbíða
eftir gagnleik hjá
Gauki...
EINHVERJIR muna enn þá Viðeyj-
arstjórn Jóns Baldvins og Davíðs
Oddssonar, er sameinuðust um
inngöngu í EES sem margir telja
forsendu og upphaf góðærisins á
Islandi og ekki sist Jón sjálfur. 1
viðtali við bb.is í gær segist Jón
setja spurningarmerki við samstarf
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks,
nema það verði til að sameinast
um inngöngu í Evrópusambandið.
Jón hefur boðist til þess að gerast
ráðherra og því margt sem bendir
til þess að ný Viðeyjarstjórn verði
við völd eftir helgi. Ekki er þó vist
að allir samfylkingar-
menn í efri sætum
listans séu
ánægðir með ráð-
herrahugmyndir
Jóns, því pólitík
snýstjú
einnig um
framapot...
Sönglög Schuberts færð í nýjan búning
Við elskum þig Franz!
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Þeir Sigurður Flosason og Kjartan
Valdemarsson halda tónleika (dag í
Laugarneskirkju þar sem þeir taka
fyrir tónlist Franz Schuberts ( heldur
óhefðbundum útsetningum undir
heitinu Við elskum þig Franz! Sig-
urður mun brúka saxófóninn við
undirspil Kjartans á píanó. Sigurður
segist efast um að Schubert snúi sér
við ígröfinni.
„Hann hefur svo oft heyrt lögin sín
að handan í sínum hefðbundna bún-
ingi. Af hverju ekki að prófa eitthvað
nýtt og spennandi til tilbreytingar?“
segir Sigurður sem hefur verið einn
atkvæðamesti djasstónlistarmaður
landsins um árabil. Hann segir að
þeir Kjartan hafi lengi haft hug á
þessu verkefni.
„Þetta á sér ansi langan aðdraganda
má segja, eða heil ío ár. En góðir hlutir
eiga það til að veltast um. Áhugi okkar á
djasstónlist og klassískri músík, þaðan
sem við báðir höfum bakgrunn, er tölu-
verður og ákváðum við því að reyna að
sameina þetta tvennt á einhvern hátt.
Og úr urðu þessir tónleikar í dag.“
Sigurður útskýrir af hverju Schu-
bert varð fyrir valinu.
„Hann er bara svo frábær. Það er
svo margt í tónlistinni hans; mikið
drama, flottir hljómar og í raun
fellur tónlist Schuberts ákaflega vel
„í raun fellur tónlist Schu-
berts ákaflega vel að
djassinum. Það ersvo
margt skylt þó yfirbragðið
sé auðvitað annað.“
að djassinum. Það er svo margt skylt
þó yfirbragðið sé auðvitað annað.
Þetta höfðaði mjög sterkt til okkar
og við fundum báðir knýjandi þörf
til að gera eitthvað við þennan
gamla meistara."
Sigurður segir saxófóninn henta
vel (slíkt verkefni.
„Það eru margir sem segja saxófón-
inn hvað líkastan mannsröddinni
sem gerir hann um leið kjörinn í
svona verkefni. Samt er erfitt að
skilgreina þessa tónlist. Það er ekki
meiningin að djassa upp Schubert
með gangandi bassa og sveiflu
heldur láta lögin og melódíuna
njóta sín í upprunalegu formi og
spinna út frá þeim á sem fjölbreyti-
legastan máta. Þetta er hvorki
djass né klassík, frekar tveir menn
með fjölbreyttan bakgrunn að tak-
ast á við klassískan efnivið á nýjan
og spennandi hátt.“
Dagskráin var frumflutt í Laug-
arborg í Eyjafirði þann 6. maí
síðastliðinn og hlaut mikið lof.
Sigurður segir ekki loku fyrir það
skotið að aðrir meistarar verði
teknir fyrir síðar.
„Það kemur allt í ljós. Ef við
verðum ekki fangelsaðir fyrir
þetta veit maður aldrei hvað
verður. En nú erum við komnir á
skrið og það ætti vonandi ekki að
taka önnur tíu ár að drífa í þessu.“
Sigurður segir kjörið að fyllast
andagift yfir góðri tónlist í öllu
kosningastressinu.
„Ekki spurning. Þetta er líka
ágæt upphitun fyrir Eurovision-
kvöldið. Og þeir sem hræðast
risessuna geta fundið athvarf í
Laugarneskirkju milli klukkan
fjögur og fimm i dag. Það eru allir
velkomnir.“
BLOGGARINN...
Eurovision-væl
,Að kvarta undan góðu gengi þjóða
frá fyrrum Austur-Evrópu í Evróvisi-
onkeppninni er eins og að kvarta
undan góðu gengi Suður-Ameriku-
ríkja í heimsmeistarakeppni í fótbolta.
Þetta er bara væl. Eiginlega alveg
ömurlegt væl. Maöur fær kjánahroll
yfir þes- su. Það eru miklu fleiri ríki
Austur-Evrópu. [...]
Tónlistarsmekkur
er sem betur fer
misjafn bæði í
tíma og rúmi.
Eða hvað, er
norræn tóntist
virkilega svona
æðislega kúl?“
Eiríkur Bergmann
einkurbergmann.blog.is
Leiðinlegt
sjónvarpsefni
Þá getum við hætt að velta Júróvi-
sjón fyrir okkur og snúið okkur að
kosningum. Mér fannst þessi tilraun
Eiríks Haukssonar nokkuð góð,
að vi'su ekki svo að maður fyndi
fyrir þjóðrembu og köldu vatni milli
skinns og hörunds, en samt. Þetta
vargóð tilraun. [...] Eitt verðurað
hafa íhuga varöandi þessa keppni.
Fyrir flestum Vestur-Evrópubúum
erJúróvisjón löngu orðin leiðinlegt
sjónvarpsefni. Áhorfið er löngu orðið
mjög
lítið og
höfðar
lítt til
almenn
ings. Það
er öfugt
meðal Islend-
inga og Austur-
Evrópubúa.
Anna Kristjánsdóttir
velstyran.blog.is
Glataður
Eiríkur var ekki nægilega góöur í
gær þótt hann sé almennt flottur
tónlistarmaður og það er fjarri því að
frammistaðan hafi átt skilið úrslita-
sæti eins og hann heldur sjálfurj...]
Það sem er hins vegar glatað er að
koma tapsár og vælandi eftir
keppnina,
hrósandi sjálf-
um sér óverð-
skuldað en
y, blammerandi
alla aðra fyrir
að hafa ekki
staðið sig í að
gefa sér stig.
rður Viktor Úlfarsson
siggiulfars.blog.is
AJUr Taknos vOmr >ru frsmlsuttir ikv. ISO 9001 gætiiuSli
"teknos
BKMM
Innimálning Gljástig 3,7,20
/ Verð frá kr. 298 pr.ltr.
/ Gæða málning á frábæru verði
•/ Útimálning
/ Viðarvörn
/ Lakkmálning
/ Þakmálning
/ Gólfmálning
✓ Gluggamálninc
Su doku
3 8 6 9 7 1
4 1
2 8 6
1 5 9 6
7 8 2 5
7
4 5 3 1
5 8 9 2 3
6 2
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Ég fórnaði tveggja tíma svefni
til að sækja um þetta starf.
eftir Jim Unger
O LaughingSlock IrHernational Inc./dlsf. by Unlled Medla, 2004
HERMAN