blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 25
Laus störf hjá Marel
Okkur vantar starfsfólk í framleiðslu:
• Laghentfólk
Við leitum að fólki sem er laghent og tilbúið að læra. Um er að ræða störf í
snyrtilegu starfsumhverfi við samsetningu á tækjum og búnaði. Við veitum
góða þjálfun og leitum að áhugasömum einstaklingum sem vilja vinna á
flölbreytilegum og góðum vinnustað.
• Rafvirkjar
Rafvirkjar sinna fjölbreytilegum og krefjandi verkefnum við frágang raf-
búnaðar fyrir framleiðsluvörur Marel. Þeir sjá einnig um stillingu og prófun
tækja og búnaðar.
• Málmiðnaðarmenn
Málmiðnaðarmenn vinna við smíði úr ryðfríu stáli, samsetningu og frágang
tækja og búnaðar. Við leitum að áhugasömum og hæfileikaríkum málm-
iðnaðarmönnum og veitum þjálfun í smíði samkvæmt gæðakröfum Marel.
Störfin henta jafnt konum sem körlum.
Umsóknarfrestur er til 21. maí nk. Vinsamlegast sækið um á heimasíðu Marel:
www.marel.is. Nánari upplýsingar veita Magnús Þór Ásmundsson,
framkvæmdastjóri framleiðslu, sími 563 8000, magnus@marel.is og Hörður
Valgeirsson, framleiðslustýringu, sími 563 8000, hordurv@marel.is.
Marel er alþjoðlegt hátæknifyrirtæki sem er
í fararbroddi í þróun og framleiðslu tækja,
hugbúnaðar og lausna fyrir matvælaiðnað. Hjá
okkur starfar Qöldi sérfræðinga með mikla reynslu.
Hjáfyrirtækinu starfa yflr 2100 starfsmenn í 5
heimsálfum, þar af 370 manns á fslandi.
Hvernig vinnum við í framleiðslu Marel?
í framleiðslu Marel hf er unnið í sellum eða litlum,
sjálfstæðum liðum. Sellan er samábyrg fyrir
að uppfylla kröfur og væntingar viðskiptavina
um gæðavöru, pökkun og útskipun búnaðar á
afhendingardegi. í sellunni er lögð er áhersla á að
fólk fái að vinna sjálfstætt og að því sé treyst fyrir
sínu vinnusviði. Góð samvinna og liðsandi skiptir
miklu máli. Við leggjum einnig áherslu á símenntun.
Hvað segja starfsmenn?
"Manni er treyst til að gera hlutina"
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Fjölbreytt verkefni
• Sveigjanleiki ívinnutíma
"Þú færð ekki betri vinnuaðstöðu"
• Snyrtileg og örugg
• Gott mötuneyti
• Barnaherbergi
"Ég nota íþróttaaðstöðuna mikið"
• Heilsuvernd i fyrirrúmi og íþróttastyrkir
• Tveir íþróttasalir, tækjasalur, Boot Camp, skvass,
hlaupahópur og yoga
"Góður starfsandi og góðir vinnufélagar"
• Virkt félagslíf
• Öflugt starfsmannafélag
• Þrjú sumarhús
■
RETURN ON INNOVATION
www.marelfoodsystems.com
marel
faad systems