blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 31
blaAiö
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 25
„ísland er í svipaðri stöðu og Belgía. Við erum hvorki né
land. Við eigum enga vini og heldur enga óvini og getum
ekki búist við neinum stigum frá einum né neinum, óháð
því hvað við gerum."
Eurovisionkeppnin
fer fram i kvöld án
þátttöku íslendinga
sem féllu úr keppni.
Þetta sama kvöld
verður haldið Euro-
visionball á NASA þar
sem nokkrar íslenskar Eurovision-
stjörnur koma fram. Þar á meðal
eru Silvía Nótt, Selma Björnsdóttir,
Pálmi Gunnarsson, Helga Möller,
Telma, Einar Ágúst oe Páll Óskar
Hjálmtýsson. Páll Oskar segir
slæmt gengi Eiríks Haukssonar
ekki hafa nein áhrif á ballið á NASA
og lofar dúndrandi fjöri. Hann
tekur úrslitum forkeppninnar með
ró og hefur sínar skýringar á þeim.
Hann er, enn sem fyrr, gallharður
Eurovisionaðdáandi og blæs á full-
yrðingar um að Eurovision sé dæmi-
gerð lágmenningarhátíð. „Að dæma
keppnina sem hallærislega lágmenn-
ingu er mikil einföldun. Keppnin
sjálf er ekki hallærisleg. Það eru
bara ákveðnir keppendur sem geta
verið hallærislegir. Það þarf að
horfa á keppnina í stærra samhengi.
Ég elska þessa keppni vegna þess að
90 prósent af lögunum eru algjört
drasl. Sjö prósent af þeim eru alveg
ágæt og svo eru kannski þrjú pró-
sent sem eru algjört gull. Ég leita
að gullinu, elska að skilja gullið frá
draslinu," segir Páll Óskar.
Áttum ekki möguleika
Hvað lag kaustu í
forkeppninni?
„Þessi keppni er eins og ástin.
Maður er með áætlun og gerir sér
ákveðnar hugmyndir en svo koma
sumir keppendur á óvart og aðrir
valda manni vonbrigðum. Það eru
alltaf einhverjir sem komast áfram
sem eiga það skilið en aðrir góðir
missa af lestinni og það er alltaf
sorglegt. Ég kaus sex lög sem ég var
sáttur við. Lagið frá Serbíu fram-
kallaði gæsahúð, flutt af söngkonu
með trukkalessu-antí-Eurovision-
look. Blússöngkonan frá Ungverja-
landi var flott og söngvarinn frá
Hvíta-Rússlandi var með heillandi
Colgate-James Bond-bros. Svo voru
Tyrkland, Moldavía, Búlgaria og
Israel með flott lög.
Skandall kvöldsins var að Georgia
komst áfram, rammfölsk söngkona
með ömurlegt lag sem var gjörsam-
lega ekki að virka. Mér finnst það
líka skandall að Lettland hafi kom-
ist áfram með tenórana. Þetta var
ágætis lag en framsetningin var stór-
furðuleg. Vertigo-lagið frá Möltu
hefði átt að komast áfram, flott lag,
berir karlmenn og fín söngkona.
Mér finnst auðvitað leiðinlegt að
Eiríkur skyldi ekki komast áfram
vegna þess að þetta var besti flutn-
ingur Islendings í Eurovision frá
upphafi. Ég fer ekki ofan af því. Það
var ekki ein feilnóta. Eiríkur var
fullur öryggis og skilaði vörunni á
réttan hátt fyrir allan peninginn.“
Af hverju kotnst Eiríkur ekki
áfram?
„Vegnaþess að hann er íslendingur.
ísland er i svipaðri stöðu og Belgía.
Við erum hvorki né Iand. Við eigum
enga vini og heldur enga óvini
og getum ekki búist við neinum
stigum frá einum né neinum, óháð
því hvað við gerum. Forkeppnin
sýndi það og sannaði líka að Selma
og Silvía Nótt gerðu ekkert rangt.
Þær voru báðar með frábær lög. Þær
áttu bara ekki möguleika miðað við
landslag keppninnar í dag. Þau tíu
lög sem komust áfram eru öll frá
Austur-Evrópu. I forkeppninni rúll-
aði Austur-Evrópa yfir Vestur-Evr-
ópu eins og sláttuvél."
Kýs Úkraínu
Er Eurovision þá orðin keppni
austantjaldsþjóða?
„Það lítur út fyrir það. Vestur-Evr-
ópubúar geta sjálfum sér um kennt
því þeir sitja ekki fyrir framan
sjónvarpið, horfa á keppnina og
kjósa. Þeir upplifa Eurovision eins
og enn einn sjónvarpsþátt sem allir
vita að er til en enginn horfir á.
Það gera Austur-Evrópubúar hins
vegar. Þar eru frændur frændum
bestir, þeir klappa hver öðrum á
bakið og það er ekkert að því. Hins
vegar gerist það alltaf að á úrslita-
kvöldinu sjálfu eru eitt eða tvö lög
sem taka hinum fram, burtséð frá
þvi frá hvaða landi þau koma af
því þau eru afskaplega vel flutt eða
grípandi. Ég spái því að Úkraína
vinni keppnina. Þar er meðbyrinn.
Dragdrottningin þeirra, hún Verka
Serduchka, er einstök. Hún tekur
dönsku dragdrottninguna í nefið
og býr til úr henni danskt smur-
brauð með strútsfjörðum. Danska
dragdrottningin var alls ekki að
mínu skapi. Eg er orðinn óskaplega
þreyttur á dragdrottningum sem
gera ekkert annað en að reyna að
líkjast mömmu sinni. Þessi danska
dragdrottning var uppfull afþrjátíu
ára gömlum klisjum, gaf ekkert af
sér á sviði og var auk þess ramm-
fölsk. Hún gerði sig að hálfgerðu
fífli. Ég ætla að kjósa hina ógnvekj-
andi dragdrottningu Úkraínu í
kvöld. Hún sparkar í rass.“
Hvernigá Vestur-Evrópa að halda
sér inni í keppninni?
„Legg ég á og mæli um að Eurovisi-
onkeppninni verði skipt í tvennt.
Nýjustu fréttir herma að EBU,
European Broadcast Union, ætli
að hafa þennan hátt á frá og með
árinu 2009. Vestur-Evrópa heldur
sína eigin keppni og kýs sjálfa sig.
Austur-Evrópa gerir slíkt hið sama.
Tíu bestu lögin úr hvorri keppni
eru tekin og haldin er ein safarík
tuttugu laga Eurovisonkeppni. Þá
ættu allir að verða sáttir. Því miður
vissi ég að ísland ætti ekki mögu-
leika. En Eiríkur Hauksson má eiga
að hann gaf allt sitt og gerði þetta
hnökralaust. Hann gaf laginu líf
á sviðinu. Við getum verið stolt af
honum. Islenskir karlmenn hafa
aldrei brugðist mér.“
Það er ekki alvegsatt, er það?
„íslenskir karlmenn hafa aldrei
brugðist mér, það eru hins vegar
þeir útlendu sem hafa ekki reynst
nógu vel. Ég hef reyndar bara
áhuga á tveimur tegundum af karl
mönnum: innlendum og erlendum.'
Er eitthvað að
gerast í ástarlífinu?
„Ekki baun!“
Afhverju gerist ekkert?
„Eg hef ekki hugmynd um það. Ef
ég vissi það þá væri ég genginn út.
Uppskrift að hamingjuríku ástar-
sambandi óskast sem fyrst. Takk.“
Endalaus skandalalisti
Það er Eurovisionkvöld en það
eru líka alþingiskosningar. Skipta
kosningarnar þig máli?
„Ég hef haft lítinn áhuga á þessum
kosningum. Ég vil ekki kjósa sam-
kvæmt loforðaskrá flokka. Ég er
kominn með ógeð á loforðum. Ég
vil sjá framkvæmd. Þegar stjórn-
-4/
Fjölbreytt störf Íh,'MbMI
í framsækinni atvinnugrein
íslenskur sjávarútvegur er öflugur og framsækinn. Hann er í fremstu röð
í heiminum og sóst er eftir sjávarafurðum, þekkingu og þjónustu frá íslandi.
Skipstjórnar- og vélstjórnarnám í Fjöltækniskólanum, er fjölbreytt
nám sem veitir aðgang að vel launuðum störfum, bæði á sjó og í landi.
Kynntu þér skipstjórnar- og vélstjórnarnám hjá Fjöltækniskólanum á www.fti.is.
Umsóknarfrestur rennur út 10. júní n.k.
Við bjóðum einnig nám í flugstjórn til atvinnuflugs og nám á náttúrufræðibraut,
skipstækni, véltækni, raftækni og flugtækni og Diploma nám á háskólastigi.
Wm
V<;.'
FJÖLTÆKNISKÓLI ÍSLANDS
T/EKNI VÉLAR SIGUNGAR ÚTVEGUR