blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 32
26
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007
blaðið
,Því miður vissi cg nð Ishmd ætti ckki
mögnleika. En Eiríkur Hnukssoii, -
iiiá cign nð hnnn gnfnllt sitt
og gcrði þetta linökralaust.
Hnnn gnflnginu lífn
sviðimt. Við getuin verið
stolt nfhoniun. íslcnskir
knrhiienn hnfn nldrei
bruoðist niér."
o
málamenn byrja að lofa einhverju
tek ég fyrir eyrun og held áfram
að njóta Eurovision. Ahugi minn á
pólitík hefur aldrei verið mikill og
fer þverrandi. Ég ætla að kjósa en
ætla ekki að segja þér hvað ég kýs
þvi það er mitt einkamál. Þegar
ég kýs tek ég mið af því sem hefur
verið gert síðasta kjörtímabil. Sumt
af því er nú ekki beinlínis glæsi-
legt: stuðningur við Iraksstríðið,
olíusamráðið, virkjanir gegn vilja
þjóðarinnar, það hefur verið barið
á öryrkjum og útlendingaeftirlit
hefur verið hert. Kröfugöngur og
hávær mótmæli almennings fyrir
framan Alþingishúsið hafa aldrei
verið algengari en á þessu kjötíma-
bili. Skandalalistinn er endalaus.
Því miður virðist þjóðin hafa gull-
fiskaminni þegar kemur að ýmsum
hitamálum. Best að leyfa henni að
kjósa það sama yfir sjálfa sig.“
/kvöld horfirþú á Eurovison og
skemmtir síðan á NASA. Hvað er
það sem gerir það að verkum að
sumir söngvarar ná svo gríðarlega
vel til salarins þegar þeir syngja
en aðrir sem syngja kannski jafn-
vel ná ekki sama sambandi?
„Flytjandinn verður að vera með
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hj artaskj úklinga
C^ai
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
báða fætur á jörðinni, vita nákvæm-
lega hvað hann er að fara að gera
og hafa mikið sjálfsöryggi. Ég held
til dæmis að ástæðan fyrir því að
söngvarar syngja falskt í keppni
eins og Eurovision sé að það fer of
mikil orka í að hugsa um hvernig
þeir koma út í augum annars fólks.
Þeir hugsa þá ekki um það sem
skiptir máli sem er að vera í núinu,
vera með sjálfum sér og gera það
sem þeim ber að gera, opna munn-
inn, syngja og skapa list - og sleppa
svo tökunum á útkomunni. Það
er mjög mikilvægt fyrir alla lista-
menn að geta náð þessu. Þeir eiga að
þakka fyrir hæfileika sína, sem eru
guðs gjöf, með því að gefa þá áfram,
leyfa öðrum að njóta þeirra. Ég held
að bestu listamennirnir hafi getað
þetta. Eins og Judy Garland sagði:
„Þegar ég fer á svið og syng þá gef ég
blóð“. Hún gaf allt sem hún átti og
naut þess að syngja burtséð frá utan-
aðkomandi aðstæðum í lífi hennar
sem voru oft og tíðum hræðilegar.
Ef maður nær þessu þá er maður
listamaður."
Finnst ég vera frjáls
Ertþú búinn að ná þessu?
„Ég næ þessu oft en ekki alltaf. Ef
ég næ þessu ekki þá er ég sem betur
fer ekki með svipuna tilbúna til að
refsa sjálfum mér fyrir það sem
miður fór. Fullkomnunaráráttan
er senn á undanhaldi. Það eimir
ennþá eftir af henni, ég þarf að vera
á varðbergi, en ég vil ekki bjóða
henni aftur í heimsókn."
Kostaði hún miklar kvalir?
„Ég opnaði munninn og naut
þess ekki að syngja. Það var hræði-
legt. Mig langaði til að hætta af
því hlutirnir fóru aldrei eins og
„Þegar stjórnmálamenn byrja að lofa einhverju tek ég
fyrir eyrun og held áfram að njóta Eurovision. Áhugi
minn á pólitík hefur aldrei verið mikill ogfer þverrandi."
ég-vildi hafa þá. Ég var svo stjórn-
samur, ekki bara hvað varðaði aðra
heldur einnig í garð sjálfs mín. Ég
vildi hafa tökin á öllu. Auðvitað var
þetta algjört vanþakklæti gagnvart
almættinu og gjöfunum sem ég
fékk.
Allar manneskjur eru góðar í ein-
hverju, þær þurfa bara að komast
að því í hverju það er. Það er heldur
ekkert til sem heitir hámenning og
lágmenning. En það er til fólk sem
kann að nýta hæfileika sína og svo
eru aðrir sem kunna það ekki. Bríet
Héðinsdóttir sagði eitt sinn við
kunningja minn: „Þegar maður nær
að vera fallegur og ljótur á leiksviði
á sama tíma þá er maður búinn að
ná þessu.“ Þegar ég lít yfir það sem
ég hef gert hingað til þá sé ég að ég
hef haft mikinn áhuga á að tefla
saman andstæðum: fegurðinni og
ljótleikanum."
Skiptir athygli þig máli?
„í byrjun skipti athygli mig öllu
máli og ég var tilbúinn til að gera
hvað sem var til að fá athygli.
Stundum varð útkoman hvorki fugl
né fiskur af því forgangsröðin var
svo röng. En ég ætti ekki að tala
niður til þeirra verka sem ég sendi
frá mér í byrjun ferilsins því það
voru þau sem komu mér á kortið.
En þar sem egóið var svo stórt og
fullkomnunaráráttan var svo mikil
var viss hætta á að dyrnar myndu
lokast.
Nú finnst mér ég vera frjáls. Ég
hef gaman af öllu sem ég geri. Ég
hef mikla orku og allt fyllir mig
spenningi og gleði. Kannski vegna
þess að ég hef sleppt tökunum á
útkomunni."
kolbrun@bladid. net
Sjóntækjafræðingur með
réttindi til sjónmælinga og
linsumælinga
Greiðslukjör
í allt að 36
mánuði
§3leraugad
Bláu húsin við Faxafen
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
gleraugad@simnet.is
www.gleraugad.is
(visa/euro) Engin útborgun