blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 36
30 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007
blaðið
Eiríkur Hauksson er stoltur af frammistöðu sinni í Helsinki á fimmtudagskvöld
Vonir Islendinga
brustu enn eina
ferðina á fimmtu-
dagskvöldið þegar í
ljós kom að ísland
myndi ekki taka
þátt í úrslitakvöldi
Eurovision. Eiríkur Hauksson stóð
sig eins og hetja á sviðinu með hressi-
legt rokklag en allt kom fyrir ekki
og þjóðir Austur-Evrópu röðuðu sér
á lista þeirra tíu landa sem komust
áfram. Svanhvít Ljósbjörg Guðmunds-
dóttir náði tali af Eiríki snemma
morguninn eftir og hann sagði að
stemningin væri fín þrátt fyrir dapur-
leg úrslit. „Það eru allir í góðu skapi,
enda var enginn okkar fullviss um að
við kæmumst áfram. Það liggur ekki
fyrir þegar það eru 28 lönd og aðeins
tíu sem komast áfram. Það eru allir
í hópnum mjög ánægðir með okkar
framlag. Ég er búinn að sitja með
farsímann minn í tæplega tvo tíma
og svara skilaboðum, til dæmis frá
fagfólki í Noregi sem er hneykslað á
þessu. En það þýðir ekkert að fara í
fýlu.“
Fyndin úrslit
Eiríkur segir að sér þyki úrslitin
fyndin og það orð sé honum efst í
huga. „Það er nánast eins og verið sé
að reisa járntjaldið aftur. Það fá sífellt
fleiri lönd sjálfstæði í Austur-Evrópu
og þær þjóðir virðast styðja hver aðra.
Ég sagði fyrir keppnina að ef lagið
fengi ekki stuðning frá Balkanskag-
anum þá ættum við ekki möguleika
á að komast í úrslit. Þannig hefur þró-
unin verið undanfarin ár. Það er best
að láta nokkra daga líða og svo spáum
við í spilin, þegar allir eru orðnir ró-
legir. Ég á eftir að rýna betur í lögin
sem komust áfram en mér sýnist þau
ekki eiga neitt eitt sameiginlegt. Þetta
er ekki einungis diskó, popp eða rokk
heldur eru margskonar stílar í gangi.
Við vissum fyrir að svona gæti þetta
farið og það má segja að Skandinavía
sé líka nokkurs konar lítil mafía því
við styðjum oft hvert annað," segir
Eiríkur og veltir upp þeirri hugmynd
að niðurstaða kosninganna gæti
verið menningartengd. „Við verðum
að vera það auðmjúk að við skoðum
þann möguleika að þetta sé menn-
ingartengt. Sú kenning hrynur samt
þegar stíllinn á lögunum er skoðaður
því þetta eru alls konar lög. Kannski
er þetta sambland og vitanlega er
ólíkur tónlistararfur hjá okkur og í
austantjaldslöndunum."
Síðhærður gagnkyn-
hneigður karlmaður
„Ég náttúrlega geri alltaf mitt besta,“
segir Eiríkur aðspurður hvort hann
sé að trylla kvenþjóðina í Helsinki.
„Þetta er að verða dálítið hýr keppni
og það er voðalega mikið af strákum
hér sem eru kannski meira hrifnir af
öðrum strákum en stelpum. Ég held
að kvenfólkinu hafi þótt gaman að
sjá síðhærðan mann í leðurklæðnaði
sem lítur út fyrir að vera gagnkyn-
hneigður," segir Eiríkur og hlær. „Ég
hugsa að við söfnum liði til að horfa á
keppnina í kvöld. Það er risaskermur
niðri í bæ og æðislega flottar tröppur
sem taka fleiri þúsund manns. Ég býst
við að við verðum þar frekar en uppi í
rjáfri í höllinni. Þessi ferð hefur verið
frábær og við erum öll sammála um
að það hefði ekki verið hægt að gera
þetta betur. Allt virtist ganga vel, við
fengum mjög góða kynningu og mér
var sagt að flestir hefðu mætt á okkar
blaðamannafund. Við höfum því ekki
yfir neinu að kvarta."
Held áfram að rokka
Þetta er í þriðja skipti sem Eiríkur
tekur þátt í Eurovision en árið 1986
tók hann þátt fyrir Islands hönd og
árið 1991 fyrir Noreg. „Ég naut þess
miklu betur að taka þátt núna. 1 hin
tvö skiptin var ég ráðinn af sjónvarps-
stöðvum til að taka þátt og var ekki
að syngja lög sem ég valdi sjálfur. Ég
gerði það í þetta skipti og það er allt
annað, enda fór ég bara í Eurovison
því þetta var lag sem ég hefði hvort eð
er viljað syngja inn á plötu. Ef maður
fer í keppnina á þeim forsendum þá
skipta úrslitin miklu minna máli. And-
litið mitt birtist í sjónvarpi í þrjár mín-
útur fyrir framan milljónir manna
þar sem ég söng lag sem ég er ánægður
með og hefur vakið feikimikla athygli.
Svo framarlega sem maður er með lag
sem maður trúir sjálfur á þá er um að
gera að taka þátt í keppninni. Ég hef
fengið mikla athygli og á eftir að njóta
góðs af því þar sem mér hefur verið
boðið að koma fram á að minnsta
kosti þremur stöðum. Þar fyrir utan
var sumarið hjá mér vel skipulagt
annig að ég sest ekkert í helgan stein.
g held áfram að rokka.“
Hlæ ef Úkraína vinnur
Aðspurður hverjir Eiríkur heldur
að vinni segist hann persónulega
styðja Svíþjóð til sigurs. „Ég sá þá
á miðvikudaginn og þetta er flott
rokkband, flottir strákar og ágætis
lag. Ég myndi hins vegar hlæja mig
máttlausan og það yrði toppurinn
fyrir mig ef Úkraína myndi vinna
keppnina. Það er ekki einu sinni
hægt að kalla það atriði lag því þetta
er sennilega lélegasta lag sem ég hef
heyrt á ævinni. Ég myndi hlæja vel
og lengi ef þeir ynnu,“ segir Eiríkur
og bætir við að framkvæmd keppn-
innar sé orðin mjög erfið vegna fjölda
laga. „Þetta eru svo mörg lönd að það
er orðið erfitt að halda keppnina.
Mér skilst að árið 2009 verði keppt
í tveimur milliriðlum og svo verði
úrslitakeppni, hvernig sem raðað
verður í milliriðlana. Þá verður þetta
ekki eins ósanngjarnt og núna þegar
það eru 28 þjóðir og aðeins tíu sem
komast áfram. Á fimmtudagskvöldið
lentu skipuleggjendur í vandræðum
og þurftu til dæmis að velja þá leið
að hafa enga kynningu á milli laga.
Þetta er of mikið fyrir eitt kvöld og
það er líka of mikið fyrir áhorfendur
að horfa á 28 lög. Mér líst því mjög
vel á að breyta þessu.“
Með Uriah Heep
Eiríkur segir ákveðið nei þegar
hann er inntur eftir því hvort hann
vilji fara aftur i Eurovision. „Nú
er komið nóg. Ég gæti alveg farið í
keppnina sem trommari eða gítarleik-
ari enda er þetta mjög skemmtileg
lífsreynsla, öll þessi umgjörð og fólk
sem er að skemmta sér í heila viku.
Það er búið að vera skemmtilegast
af öllu að syngja en ég fer ekki i eitt
skipti enn sem aðalsöngvari. Þetta er
orðið nóg og nú ætla ég að einbeita
mér að áætlunum mínum í sumar en
ég er að fara til Hamborgar eftir viku
til að taka þátt í útgáfutónleikum
með vini mínum, Ken Hensley úr
Uriah Heep. Ég ferðast með honum
í sumar auk þess sem fleiri störf eru
framundan. Ég ætla líka að kíkja í
eigin lagasmiðju og jafnvel gefa út
plötu en ég hef ekki gert það í 10-15
ár,“ segir Eiríkur sem er stoltur af
frammistöðu sinni í Helsinki. „Mér
finnst lagið okkar besta lag keppn-
innar og ég stend við það. Það er bara
mín skoðun og ég get ekki breytt því
hvaða álit milljónir Evrópubúa hafa.
Ég er sáttur og stend fastur á því að
framlag okkar var gott.“
svanhvit@bladid.net
„Þetta er orðið nóg og nú ætla ég að einbeita mér að áætl-
unum mínum í sumar en ég er aðfara til Hamborgar
eftir viku til að taka þátt í útgáfutónleikum með vini
mínum, Ken Hensley úr Uriah Heep. Égferðast með
honum í sumar auk þess semfleiri störf eru framundan."