blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 40
34 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007
blaðið
helgin@bladid.net
Bútasaumur í Gerðubergi
Sýning á bútasaumsverkum sem unnin eru í tilefni
af 200 ára fæðingarafmæli Jónasar Hallgrímssonar
verður opnuð í Gerðubergi í dag kl. 15. Sýningin er
haldin í samstarfi við (slenska bútasaumsfélagið.
Tangoævintyri
Tangóævintýrafélagið stendurfyrirvinnusmiðju helgina 11.-13.
maí og verða námskeið og danskvöld haldin i Listaháskólanum í
Laugarnesi og í Kramhúsinu. Skráningarfyrirkomulag og nánari
upplýsingar má nálgast á tangoadventure.com.
Eurovision-gleði
Þeir sem enn eru í Eurovision-
stuði þrátt fyrir hrakfarir okkar
manns í Helsinki geta skellt sér á
hið árlega Eurovision-partí Páls
Óskars á Nasa í kvöld. Sjálfur
þeytir Páll Óskar skífum og verða
bestu Eurovision-lög allra tíma
ásamt klassískum partíslögurum
fyrir valinu. Sérstakir gestir hans
verða nokkrar vel þekktar íslenskar
Eurovision-stjörnur svo sem Selma
Björns, Silvía Nótt, Friðrik Ómar,
Helga Möller og Pálmi Gunnarsson.
Þá frumflytur Páll Óskar nýtt lag af
væntanlegri plötu sinni „Allt fyrir
ástina“. Gleðin hefst stundvíslega
kl. 23 og stendur fram eftir nóttu.
Miðaverð er 2000 kr.
UM HELGINA
Schubert
í Laugarneskirkju
Saxófónleikarinn Sígurður Flosa-
son og píanóleikarinn Kjartan
Valdemarsson flytja sönglög eftir
Franz Schubert í eigin útsetningum
í Laugarneskirkju í dag kl. 16.
Argentínsk kvöldmessa.
Misa Criolla, argentínsk messa
eftir Ariel Ramírez, verður flutt
í Laugarneskirkju á morgun kl.
20. Flutt verður þjóðlagatónlist
frá sveitum Norður-Argentínu og
Bólivíu.
Tónleikar
í Seltjarnarneskirkju
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
flytur tvö af þekktustu verkum
tónbókmenntanna á tónleikum
í Seltjarnarneskirkju á morgun
kl. 17. Verkin eru tvíleikskonsert
fyrir fiðlu og víólu eftir Mozart og
önnur sinfónía Brahms.
Kórtónleikar í Hall-
grímskirkju
Kór Akureyrarkirkju heldur tón-
leika í Hallgrímskirkju í dag kl. 16.
Eyþór Ingi Jónsson er stjórnandi
og Björn Steinar Sólbergsson
leikur á orgel. Aðgangseyrir er
1000 kr.
Fyrirlestur um Roni
Horn
Bandaríski listfræðingurinn Linda
Norden flytur fyrirlestur um Roni
Horn í Listasafni Reykjavíkur
- Hafnarhúsi í dag kl. 14.
Opið hús
í Akademíunni
Opið hús verður í húsnæði Akur-
eyrarAkademíunnar í gamla Hús-
mæðraskólanum, Þórunnarstræti
99, frá kl. 14-17.
—
Nýjir
2007
—
Challenger Mageo 109 Lengd 7,04 metrar.
2,3 L 130 hestötl. Svetnpláss fyrir 3-4. Tvö einföld
rúm afturi. Verö 6.300.000 kr.
LMC Dominant 550 RD Nýtt 2007 með gólfhita.
Álfelgur, varadekk. 150 L (sskápur.
Verð 2.500.000 kr.
Bílexport ehf.
www.bilexport.dk • boas@biiexport.dk
Upplýsingar gefur Bóas s. 0049 1752711783
eða Eðvald s.896 6456
Risessa
á ferð Tröllaukin strengja-
brúða þrammaði um götur Reykja-
víkur í gærdag. Hún verður aftur á
ferð í borginni í dag.
BlaÖiÖ/Frikki
Listahátíð i Reykjavík í algleymingi
Tröllvaxið götuleikhús
Listahátíð er nýhafin í Reykjavík
og margt á dagskrá hátíðarinnar um
helgina. Hæst ber án efa sýningu
franska götuleikhússins Royal de
Luxe sem mun setja svip sinn á götur
og torg í miðborginni í dag. Sýningin
hófst á fimmtudag en lýkur í dag og
má búast við að margir leggi leið sína
í bæinn til að berja hana augum.
Hópurinn sem hefur sýnt víða
um heim samdi nýja sögu fyrir ís-
landsævintýri sitt. Sagan gengur út
á að starfsmenn Fornleifastofnun-
ar Frakklands vekja risa af værum
svefni sem lætur síðan öllum illum
látum í borginni. Til þess að róa ris-
ann kalla yfirvöld til dóttur hans,
risessuna, sem dvelst í borginni og
reynir að tæla föður sinn í átt að höfn-
inni þar sem lokaatriðið fer fram.
Risessa í sturtu
Risessan sem er um átta metra há
vaknar á hafnarbakkanum kl. 10:30
í dag þar sem hún fer í sturtu. Því
næst gengur hún inn á Ingólfstorg,
Aðalstræti, Lækjargötu og Fríkirkju-
veg þar sem hún hittir risann um kl.
11:30. Lokagangan hefst síðan kl. 15 á
Lækjartorgi og fer upp Hverfisgötu,
Snorrabraut og Sæbraut og að hafnar-
bakkanum þar sem lokaatriði sýning-
arinnar hefst um kl. 17. Nánari upp-
lýsingar um gönguleiðina má nálgast
á vef Listahátíðar listahatid.is.
Athygli er vakin á að bílastæðum
sem eru í gönguleið risessunnar verð-
ur lokað tímabundið í dag.
Ýmsir aðrir atburðir verða á dag-
skrá Listahátíðar í Reykjavík um
helgina þó að ekki séu þeir jafnmikl-
ir að vöxtum og umfangi og götuleik-
húsið. Franski hópurinn Les Kunz
skemmtir áhorfendum Þjóðleikhúss-
ins með trúðslátum og tónlist í dag
kl. 14 og annað kvöld kl. 20 leika þeir
listir sínar fyrir Akureyringa.
Nakið fólk á mynd
Þá opnar bandaríski ljósmynd-
arinn Spencer Tunick sýningu á
nýjum verkum sínum í Galleríi i8 í
dag en hann hefur á undanförnum
árum staðið fyrir gjörningum þar
sem hann myndar hópa nakins
fólks á opinberum svæðum. Mynd-
irnar sem hann sýnir í Galleríi i8 tók
hann hér á landi á síðasta ári og eru
þær nokkuð frábrugðin fyrri verk-
um hans þar sem á þeim eru aðeins
einn til tveir naktir einstaklingar en
ekki hópur.
Vatnasafn bandarísku myndlistar-
konunnar Roni Horn í Stykkishólmi
verður opnað formlega í dag kl. 17
með upplestri hennar og rithöfund-
arins Guðrúnar Evu Mínervudóttur.
Þá verður verkið Tónamínútur
eftir Atla Heimi Sveinsson flutt í
Þjóðleikhúsinu á morgun kl. 15. Flytj-
endur eru auk tónskáldsins sjálfs Ás-
hildur Haraldsdóttir flautuleikari
og Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari.
Sýning á fuglahundum
Áhugi á , ræktun fuglahunda
hefur aukist hér á landi á undan-
förnum árum að sögn Ólafs E.
Jóhannssonar, formanns fugla-
hundadeildar Hundaræktarfélags
Islands. Nú um helgina stendur
deildin fyrir sannkallaðri fugla-
hundahátíð sem lýkur með sýn-
ingu í Reiðhöll Sörla við Kaldárs-
elsveg í Hafnarfirði á morgun.
Sýningin hefst kl. 11 og er áætlað
að henni ljúki um kl. 16:30 og verð-
ur besti hundur sýningarinnar val-
inn um kl. 17.
Veiðihundar í eðli sínu
„Þetta eru það sem kallaðir eru
standandi fuglahundar sem hafa
náttúru fyrir því að leita að rjúp-
um. Þegar þeir finna lykt af rjúpu
eða sjá hana taka þeir stand sem
kallað er, stoppa og bíða þangað
til eigandinn kemur að. Þegar
hann kemur að gefur hann skip-
un um að hundurinn fari fram og
fæli fuglinn upp í loftið og þá fellir
eigandinn fuglinn með byssuskoti
og svo sækir hundurinn fuglinn
sem fellur,“ segir Ólafur og bætir
við að þetta sport njóti sívaxandi
vinsælda hér á landi.
Þekktir norskir dómarar
Alls taka um 80 hundar þátt í sýn-
ingunni og eru þeir af tegundun-
um Breton, enskum Seta, írskum
Seta, Gordon Seta, Viszla, Vorsteh
og Weimaraner. Að auki verða
Schnauzer-hundar sýndir í sérstök-
um sýningarhring. „Þeir fengu að
vera með af því að dómararnir sem
dæma hafa réttindi til að dæma þá
líka,“ segir Ólafur og bætir við að
dómararnir, norsku hjónin Per og
Vigdis Nymark, séu mjög þekktir á
sínu sviði.
Samhliða sýningunni kemur út
bæklingur um fuglahundasport-
ið og helstu tegundir fuglahunda.
Hægt er að nálgast frekari upplýsing-
ar um sýninguna og sýningarstað
á vefsíðu fuglahundadeildarinnar
http://deildir.hrfi.is/vhd. Aðgang-
ur að sýningunni er ókeypis.