blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 42

blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 42
LAUGARDAGUR 12. MAI 2007 ithrottir@bladid.net blaöiö MILLJÓN króna fellur því félagsliðl í skaut sem vinnur Landsbanka- deild karla og kvenna í ár. Er um nákvæmlega sömu upphæð að ræða fyrir konurnar og karlana. MÍNÚTUR líða nú milli marka Eiðs Smára Guð- johnsen hjá Barcelona á þessari leiktíð. Telst það afar dapurt hjá sóknarmanni en taka skal tillittil þess aö Eiðurfær jafnan ekki mikinn tíma í hverjum leik þessa siðustu og verstu. Bikarmeistarar í B deild KSÍ Afturelding sigraði Fjarðarbyggð 2-0 í úrslitaleik Lengjubikarsins síðustu helgi. Leikurinn fór fram í knatthúsinu Boganum á Akureyri og voru bæði mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Mörkin skoruðu Gestur Ingi Harðarson og Þórarinn Máni Borgþórsson. Gunnar Davíð Gunnarsson var rekinn af leikvelli á lokamínútu leiksins. Beinar útsendingar Laugardagur 10.55 Sýn____ Knattpyrna Southampton - Derby 11.50 RÚV__________ Formúla 1 Tímataka á Spáni 1 13.15 RÚV____________ Íshokkí HM undanúrslit I 13.45 Sýn____________ ' Knattspyrna | ÍA-FH |§||gg|j§ © 1. .laii 15.30 RUV Ishokkí HM undanúrslit 17.50 Sýn Knattpspyrna Real Madrid - Espanyol 19.50 Sýn__________ Golf Players-meistaramótið Sunnudagur 11.00 Sýn____________ Knattspyrna Wolves - WBA 11.25 RÚV Formúla 1 Keppni á Spáni 13.50 SkjárSport Knattspyrna Man.Utd. - West Ham 15.50 Sýn Knattspyrna Valur - Fram 16.05 RÚtf Ishökkí HM úrslit 18.00 Sýn______________ Knattspyrna Barcelona -Real Betis 19.30 Sýn____________ NBA Chicago - Detroit 19.40 Sýn Extra Golf Players-meistaramótið Garðurinn sem Skagamenn ráð- ast á í fyrstu umferð Landsbanka- deildarinnar gæti vart verið hærri. Margfaldir meistarar FH; félag sem hefur nægan mannskap til að etja fram tveimur góðum liðum og svo aftur Skagamenn sem eru svo þunn- skipaðir að tíu leikmenn liðsins koma úr 2. flokki. Guðjón Þórðarson, þjálfari í A, veit manna best að sá hópur sem hann stjórnar er afar ungur og að mestu reynslulaus. Það skiptir hins vegar ekki öllu þegar út á völl er komið segir Guðjón svo lengi sem takist að keyra inn hjá strákunum að hafa trú á sjálfa sig og liðsfélaga sína. Það gengur vel að sögn Guðjóns. „Það sem er spennandi við leikinn við FH fyrir ungu strákana er að það er í svona leikjum sem karakter og vilji kemur best fram. Hærri tálmar finnast ekki í þessari deild en leikur gegn FH og þeir sem standast þá eld- raun munu fyllast sjálfstrausti fyrir leikina þar á eftir. Veit ég vel að samkvæmt spám flestra og líkum eigum við litla möguleika en sú spá er okkur í hag og ég efa ekki að strákarnir mínir munu standa uppi í hárinu á meisturunum og verða sjálfum sér og liði sínu til sóma.“ GUÐJÓN M MÓTHERJANA: KR: Þar er skýlaus krafa um sigur í deildinni miðað við þann metnað og þá leikmenn sem þeir hafa fengið til sín í vetur. Mann- skapurinn er til staðar en spurning hversu mikil þolinmæðin verður ef hlutirnir falla ekki fyrir þá strax. Fram: Hjá Fram er þetta þessi klassíska sþurning um stöðugleika. Hvort hann náist og þá hvenær. blaóiö PÚLSINN Á LANDSBANKADEILDINNI Keflavík: Alltaf þéttir og með góða leikmenn sem lengi hafa spilað saman. Þekkja hver annan vel og eru afar heppnir með útlendingana hjá sér. Þeir eru fínir og smella vel inn í liðið. Ættu að berjast ofarlega. Valur: Stór og mikill hópur sem verður í toppbarátt- unni. Allt annað verður óásættanlegt fyrir þá. FH: Vel spilandi lið. Fullir sjálftrausts og klárlega liðið til að vinna þessa leiktíðina. Fylkir: Undir sama hatti og Breiðablik og Keflavík: Góður mannskapur sem á bestu dögum getur komið verulega á óvart. Breiðablik: Vel mannaðir og skemmtilegt lið. Lík- legir til afreka rétt á eftir þessum stóru. HK: Þunnskipaður hópur og reynslulítill. Þeir verða ásamt okkur og Víkingum þessi lið sem hafa ým- islegt að sanna en munu berjast fyrir neðan miðju. Víkingur: Verið sprækir á köflum en ekkert sem bendirtil að þeir springi út í sumar. Fyrsti leikurinn gegn FH: FH spilar alltaf eins og beitir sömu taktík. Venjan er að þeir sækja grimmt strax frá upphafi og pressa vel fram á við og reyna að komast yfir sem fyrst. Við munum taka á þeim samkvæmt því. HÓPURINN Andri Júlíusson Arnar Már Guðjónsson Aron Ýmir Pétursson Atli Guðjónsson Árni Thor Guðmundsson Bjarni Eggerts Guðjónsson Björn Bergmann Sigurðarson Dean Edward Martin Ellert Jón Björnsson Gísli Freyr Brynjarsson Guðjón Heiðar Sveinsson Guðmundur Böðvar Guðjónsson Heimir Einarsson Helgi Pétur Magnússon (sleifur Örn Guðmundsson Jón Vilhelm Ákason Jón Þór Hauksson Kári Steinn Reynisson Kristinn Darri Röðulsson Páll Gísli Jónsson Ragnar Leósson Skarphéðinn Magnússon Tinni Kári Jóhannesson Trausti Sigurbjörnsson Þórður Guðjónsson LEIKIR ÍA 12.maí lA-FH 21,maí HK-lA 24.maí fA-Fram 28.maí Fylkir-lA 10.jún lA-KR 14.jún Breiðablik-lA 19.jún lA-Valur 26.jún Víkingur-lA 4.júl lA-Keflavik 15.JÚI FH-lA 26.júl lA-HK 9.ágú Fram-lA 16.ágú lA-Fylkir 26.ágú kr-Ia 2.sep lA-Breiðablik 16.sep Valur-lA 23.sep lA-Víkingur 29.sep Keflavík-lA SPÁIN 1.FH, 2. KR,3. Valur Að mati Ólafs Jóhannessonar, þjálf- ara FH, eru Valur og KR alls ekki með síðri leikmannahópa í Lands- bankadeildinni í sumar en FH og segir hann engan vafa leika á að þau félög hafi styrkt sig mun meira fyrir sumarið en áður. Baráttan um titil- inn verði mun harðari en áður. Þjálfari FH er lítið fyrir yfirlýs- ingar eða spár enda veit hann af reynslu að fæst orð bera minnsta ábyrgð. Ólafur er þó óhræddur við að lýsa yfir að mótið í ár ætti að verða erfiðara fyrir FH þar sem hinir „stóru“ mótherjarnir, KR og Valur, hafi óumdeilt styrkt sig mun meira en FH. „Þetta má líka yfirfæra á önnur lið í deildinni þó í minna mæli sé. Minn hópur er góður og sterkur og trúin er til staðar að við getum unnið það sem þarf að vinna og þar af leiðandi titilinn í haust. Við verðum tilbúnir í okkar leiki." ÓLAFUR UM MÓTHERJANA: KR: Fántagóður hópur og fengið marga góða leikmenn til liðs við sig. Þeir eru ekki með lakari hóp en við og segjast æfa manna mest og hljóta þá að vera firnasterkir. Víkingur: Spila krafta- bolta en hafa misst lykilmenn. Verða með ef Kekic skorar en fara ann- ars langt á hörkunni. Keflavfk: Góður hópur og stemningslið oft á tíðum. Verða á sínum stað í sumar sem fyrr og geta unnið öll lið. Fylkir: Fer ótrúlega lítið fyrir þeim en liðið allt mjög gott en karakterinn veikur. Þeir geta blandað sér í toppbaráttu en einnig staðið í veseni við botninn. Fram: Miklar breytingar í liði og brúnni. Tekur tíma að blanda rétta hópnum saman og gengi þeirra fer eftir því. va Breiðablik: Mjög sterkir og með menn á bekknum núna sem vel geta leyst verkefni þegar á þarf að halda. Það er munurinn á Blikum nú og áður að það höfðu þeir í raun ekki. Hafa staðið sig vel í vetur og ég á von á þeim góðum. HK: Verður erfitt fyrir þá. Fyrsta skipti upp og eftir- vænting og taugaveiklun væntanlega einhver meðal strákanna. Þó hef ég þá tilfinningu eftir að hafa séð þá spila að mikið búi í þeim og ég sé þá ekki falla eins og margir spá. Mjög vaxandi lið. ÍA: Lið frá stærsta fótboltabæ landsins og fullt lið af efnilegum strákum sem bíða eftir að sanna sig í leik. Góðir reynsluboltar inn á milli. Fínt lið. Valur: Sama og með KR. Bætt sig á breiddina og ég fullyrði að þeir eru maður á mann ekki síðri hópur en minn. Feikilega sterkir og til alls vísir. Fyrsti leikurinn gegn ÍA: Ég blæs á sögusagnir um reynslu- leysi og líklega fallbaráttu Skaga- manna. Gæti trúað að Guðjón sjálfur hafi komið þeim af stað en hópurinn þeirra er skemmtilegur og þarna verður fyrsti leikur á heimavelli með bæjarbúa alla með sér. Þetta verður erfitt og mér dettur ekki í hug nú að vanmeta í A. HÓPURINN Allan Dyring Arnar Bergmann Gunnlaugsson Atli Guönason Atli Viðar Björnsson Auðun Helgason ÁsgeirGunnarÁsgeirsson Bjarki Bergmann Gunnlaugsson Daði Lárusson Davíð Þór Viðarsson Dennis Michael Siim Freyr Bjarnason Guðmundur Sævarsson Heimir Snær Guðmundsson Hjörtur Logi Valgarðsson Matthias Guömundsson Matthías Vilhjálmsson Ólafur Páll Snorrason Pétur Viðarsson Róbert Örn Óskarsson Sigurvin Ólafsson Sverrir Garðarsson Tommy Fredsgaard Nielsen Tryggvi Guðmundsson LEIKiR FH 6.maí FH-Keflavík 1-0 12.maí (A-FH 20.maí Keflavík-FH 24. mai FH-HK 29.mai Fram-FH 10.jún FH-Fylkir 14.jún KR-FH 20.jún FH-Breiðablik 27.jún Valur-FH 3.júl FH-Vikingur R. 15.júl FH-lA 18.júl FH-Félag Erlent 25.JÚI FH-Félag Erlent 28.júl FH-Keflavík Lágú FH-Félag Erlent 08.ágú FH-Félag Erlent 09.ágú HK-FH 16.ágú FH-Fram 26.ágú Fylkir-FH 30.ágú FH-KR 16.sep Breiðablik-FH 23.sep FH-Valur 29.sep Víkingur R.-FH SPÁIN 1. FH, 2. KR, 3. Valur

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.