blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 47

blaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 47
blaðið LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 41 Útskriftarsýning Listaháskólans opnuð í dag: Synd að námstímanum sé lokið „Það er synd að þessi tími í skól- anum sé liðinn en þetta er búið að vera mjög skemmtilegur tími,“ segir Árni Þór Árnason en hann sýnir lokaverk sitt á útskriftarsýningu Listaháskóla íslands sem verður opnuð í dag. Árni sýnir 69 málverk sem unnin eru með frekar óvenjulegum hætti. „Verkin líta út fyrir að vera ex- pressjónísk á yfirborðinu en þegar maður kafar dýpra kemur í Ijós að þau eru unnin með annars konar aðferðum en venjulegt er. Ann- ars vegar nota ég vélmenni til að tússa fyrir mig á strigann en þessi vélmenni eru venjulega notuð til að pússa parketgólf. Hin málverkin eru máluð í þvottavél. Ég læt striga ásamt málningu í vélina og set í gang, annað hvort í hálftíma eða klukkutíma í senn. Það er hug- myndin og aðferðin að baki verkinu sem ég legg áherslu á og ég geri þetta til að fá aðra vídd í málverkið.” Þegar Árni er spurður út i hvað nú taki við að námi loknu segir hann að nú taki við að fara að lifa á listinni og hann er bjartsýnn um að starfa sem myndlistarmaður á fslandi. „Myndlistarmenn hér á landi búa við mikið frelsi og geta gert það sem þeir vilja. Fólk er ágætlega opið fyrir myndlistinni þó að sjálf- sögðu mættu alltaf fleiri sýna henni áhuga.“ í ár eru það 63 ungir myndlist- armenn og hönnuðir sem sýna lokaverk sín á útskriftarsýningu Listaháskólans en sýningin er ávallt fjölsótt og hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. Að þessu sinni er sýn- ingin haldin í kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekku sem er húsnæði sem innréttað var sérstaklega með mynd- listar- og hönnunarsýningar í huga. Húsið verður opnað klukkan 14.00 og enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum enda ótrúlega fjölbreytt sýning á verkum nýrra hönnuða og myndlistarmanna þarna á ferðinni. Frábær dagur í dag.. • í dag er mikið um að vera og mikið húllumhæ víðs vegar um bæ. Orðlaus mælir með öllu því sem skemmtilegt er og í dag eiga allir að skarta brosi á vör og njóta sólar og sumars, manna og mál- efna, gleði og stemningar. • Flagga íslenska fánanum. Á kosningadaginn er til siðs að flagga og ef þú býrð svo vel að eiga fánastöng í garðinum þá mælum við eindregið með því að byrja daginn á hátíðlegri fánahyll- ingu. • Við mælum eindregið með því að borgarbúar taki daginn snemma og fylgist með ferðum risessunnar og fylgdarliði úr franska götuleikhúshópnum Roy- ale de Luxe. Risessan rís úr rekkju klukkan 10.30 á Hafnarbakkanum og byrjar daginn á því að fara í sturtu. Hún heldur síðan til fundar við risann. • Allir að kjósa, lýðræðið lifi og allt það og nú mælir Orðlaus með því að kjósa rétt. Það er líka gaman að dubba sig svolítið upp áður en haldið er á kjörstað og við mælum með því að fólk setji upp hatta ef það lumar á slíkum inni í skáp. • Góður kaffibolli og pönnsur... bjóddu góðum vinum í kaffi og með því... það er alveg málið í dag. Einnig er hugmynd að fá sér gott kaffi og koma sér fyrir í Hljóm- skálagarðinum með endurnar og útsýnið í fanginu. • Útskriftarsýning Listaháskólans verður opnuð í dag í Jarðhús- unum í Ártúnsbrekku við Rafstöðv- arveg. Það er alltaf gaman að sjá það sem ungir myndlistarnemar og hönnuðir eru að spá og spek- úlera. • Júró júró júró og grill. Þrátt fyrir að Eiki bleiki sé dottinn út þá er samt hægt að berja upp smá stemningu og fara í Eurovision- partí... Finna sér lag til að halda með... kjósa það og vera hress... síðan breytist partíið í kosninga- partí og munið að klappa mikið fyrir nýjustu tölum eða gráta... eftir því sem við á. • Eftir partí er um að gera að skella sér á einhverja af þeim kosn- ingavökum sem stjórnmálaflokk- arnir standafyrir... Hvort sem ertil að gráta með forystusauðum eða fagna með sigurvegurunum... en það verður eflaust gaman því að einhvern veginn eru stundum allir sigurvegarar kosninga. • Fyrir þá sem vilja halda Eurovisi- onstuði áfram þá þeytir Þáll Óskar, Eurovisionkóngur fslands, skífum á Nasa. Undanfarin ár hefur verið svo mikið stuð að færri hafa kom- ist að en hafa viljað svo að það er um að gera að mæta snemma en stuðið hefst klukkan 23.00 en er ekki búið fyrr en klukkan 5.30. Skemmtið ykkur vel í dag! Water is Our Business DÆLUR FYRIR SUMARHÚS og aðra bústaði ... brunna- og borholudælur ... dælusett með þenslukeri og stjórnbúnaði ... háþrýstar þvottadælur ... gæða vörur á hægstæðum verðum! 4" BORHOLUDÆLA SCM 4 PLUS 75/52 DRAIN 120 / 6 M. flotrofa VIP 100 / 6 M. fjotrofa WATERPRESS INOX W.P. SUPERINOX MP50 Bensín 950 W 280 W 270 W 800 W 1100 W 2,6 HP - 47,7 cc. 56 m / 5,6 bar 6 m / 0,6 bar 6 m / 0,6 bar 46m. / 4,6 bar 50 m. / 5 bar 30 m / 3 bar 4500 I / klst. 7000 1 / klst. 6500 1 / klst. 3600 1 / klst. 4200 1 / klst. 16200 1 / klst. Stál AISI304 Stál og plast Polypropylene Riðfrítt stál AISI304 Riðfritt stál AISI 304 Bensín m. 4% olfu.íbl. Rafmk. 15 m. Mín vatnsh. 2 cm. Mín vatnsh. 2 cm. min 2 / max 3 bar min 2 / max 3 bar Þyngd 8 Kg. Stjórnbox m. öryggi Kornastærð 6 mm. Kornastærð 6 mm. Stál 24 lítra Stál AISI 304 24 1. Slöngutengi 1" (25mm.) Slöngutengi 1" Slöngutengi 1" Slöngutengi 1" http://www.landvelar.is - !andvelar@landvelar.is /Atþíf/03-2007

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.