blaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 1
16 Góð ráð fyrir garðinn 18 Hvað skal varast í eldhúsinu 22 Glæst saga byggingarkrana 23 Hagnýtt nám fyrir atvinnulífið Sumarhús í Öndverðarnesi Skartar gluggum og hurðum frá Kjarnagluggum. Kjarnagluggar: 24 Sniðug teikniforrit 26 96 árí sama húsi Hljóðeinangrandi plastgluggar Hávaðamengun er án efa eitt af hvimleiðustu vandamálunum við það að búa í þéttbýli. Þeir sem búa við fjölfarnar umferðargötur þekkja það af eigin raun að það er síður en svo skemmtilegt að hlusta á umferð- arniðinn jafnt dag sem nótt. Hefð- bundnir trégluggar hafa takmarkað hljóðeinangrandi gildi og því hefur það aukist mjög undanfarin ár að fólk leitar annarra leiða til að loka á hávaðann. Fyrirtækið Kjarnagluggar hefur um tuttugu ára skeið framleitt vandaða plastglugga og hurðir sem hljóðeinangra mjög vel og geta því aukið til muna lífsþægindi fólks. Gluggarnir eru framleiddir úr PVC- U-efni frá þýska framleiðandanum Rehau sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu plastefna til byggingar- iðnaðar í Evrópu. Halldór Hreinsson hjá Kjarnagluggum segir að plast- gluggar sem þessir séu gríðarlega vinsælir í Evrópu og telur hann að allt að 70 til 8o prósent af gluggum og hurðum í evrópskum nýbygg- ingum séu úr PVC-plasti. Halldór bendir einnig á að end- ingartími plastglugganna og hurð- anna sé mun meiri heldur en í hinum hefðbundnu sem gerðir eru úr tré. „Timburgluggarnir endast umtalsvert skemur, eftir fimmtán til tuttugu ár er oft komið að endur- nýjun og auk þess þarf að fúaverja eða mála timburgluggana á þriggja til fjögurra ára fresti." Halldór segir einnig að á undanförnum árum hafi fólk í sífellt meira mæli verið að fá sér plastglugga fyrir sumarbústaði bæði vegna hljóðeinangrunarinnar en einnig vegna góðrar hitaeinangr- unar glugganna. Það þarf varla að koma á óvart því hvergi er eins mik- ilvægt að fólk geti notið friðar og róar og einmitt í sumarbústaðnum. Kjarnagluggar eru til húsa að Skemmu- vegi 46 í Kópavogi og ættu þeir sem hafa fengið sig fullsadda á umferð- arniðnum hiklaust að hafa samband við Kjarnaglugga í síma 5644714 eða í gegnum netfangið gluggar@vortex. is. Einnig er hægt að kynna sér betur framboð Kjarnaglugga á heimasíð- unni www.kjarnagluggar.is. u Ot c u c lunm m 111 þ Tilvalið í bústaðinn Traust og örugg húsgögn sem henta vel í hvaða bústað sem er Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.