blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 1
Island fellur
Guðjón Þórðarson segir að það
^ þurfi aö styöja betur við ,
■ bakið á Eyjólfi Sverr- ,'
A issyni en Island er
m sjöunda versta Evrópuljp
■ þjóðin í knattspyrnu. C
List án landamæra Nýir gamanþættir
Margrét M. Norðdahl, fram- j Ragnar Bragason leikstjóri hefur
í í kvæmdastýra Listar án i framleitt tólf nýja gamanþætti, á
^ & landamæra, segir að vel hafi j Næturvaktina, fyrir Stöð 2 M
tekist upp með hátíðina en með þeim Pétri Jóhanni ■
með henni sé verið að brjóta j Sigfússyni, Jóni Gnarr og ■
Jörundi Ragnarssyni.
niður múra og landamæri,
ÍÞRÓTTIR »30
91. tölublað 3. árgangur
fimmtudagur
17. maí 2007
FRJALST, OHAÐ & OK
HELGAI
17.-21
Grillaöur kjúklingur,
franskar og 2I Coke 899kr.
Heill ferskur kjúklingur
30% Afsláttur
Úrb. Bringur án skinns
30 % Afsláttur
■ .00%
Kjúklingalæri/leggir
magnbakki
30% afsláttur
ísfugl kjúklingur
kr. 1.299 kg
Opið alla daga frá kl. 10.-20.
SP.R
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
Efnafræðingur segir stórhættulegt að viðvaningar fikti við sprengjugerð:
Sprengjuuppskriftir
á íslenskri netsíðu
■ Hættulegt að blanda þessum efnum saman ■ llla framsettar leiðbeiningar
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net
„Auðvitað er þetta hættulegt, það er engin spurn-
ing,“ segir Ágúst Kvaran, prófessor í efnafræði
við Háskóla Islands, um uppskriftir að sprengju-
gerð sem er búið að þýða á íslensku og hægt
er að hala niður hjá íslenska vefsamfélaginu
Istorrent.
Um er að ræða alls sextán blaðsíður af leið-
beiningum um gerð allskyns sprengna og lista
yfir það hráefni sem þarf til að setja þær saman.
Meðal þess sem skjalið býður upp á að búa
til eru napalmsprengjur, áburðarsprengjur og
koltvísýringssprengjur.
Ágúst segir mjög auðvelt að nálgast sum
þeirra efna sem þarf til sprengjugerðarinnar,
til dæmis í matvöruverslunum. Hann telur leið-
beiningarnar settar fram af einhverjum sem
kann litla eða enga efnafræði og segir að það sé
stórhættulegt að blanda saman mörgum þeirra
efna sem talin eru þar upp. „Viðvaningar gætu
reynt að fikra sig áfram í þessu en það býður að
sjálfsögðu hættunni heim.“
Svavar Lúthersson, einn stjórnenda Istorrent,
segir það ekki sjálfgefið að efni sem þetta sé fjar-
lægt af vefnum. Það fari eftir því hvort ólöglegt
sé að dreifa því. „Það á til dæmis við um barna-
klám, dýraklám og alvöru morð. Þannig efni er
fjarlægt samstundis enda ekki einn einasti vafi
á að það er ólöglegt.“ FRÉTTIR » 4
Atthagafjötrar
í Úlfarsárdal
Tilraunir Reykjavikurborgar til að
stemma stigu við braski með lóðir og
íbúðir í Úlfarsárdal eru mjög óvenjulegar
og munu leiða til neðanjarðarhagkerfis
fyrir íbúðir og hús í dalnum, segir for-
maður Húseigendafélagsins.
FRÉTTIR » 6
Daglegar reykingar
unglinga minnka
Daglegar reykingar nemenda í 10. bekk
grunnskóla á fslandi hafa minnkað um
helming á síðastliðnum 12 árum. Einnig
hefur dregið verulega úr áfengisneyslu.
Baráttan við hassneyslu reynist erfiðari
því hún hefur lítinn árangur borið.
FRÉTTIR » 8
Evrópusamstarfið tryggt
Nicolas Sarkozy, nýkjörinn forseti Frakklands, sór í gær embættiseiö sinn í Elyséehöll í París. Sarkozy tekur við af Jaques Chirac
sem hefur verið forseti í 12 ár. Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, fagnaði tímamótunum með forsetanum. FRÉTTIR » 10
Sísvangur
síbrotamaður
Hæstiréttur mildaði í gær dóm
yfir fertugum karlmanni sem ítrekað
hefur verið sakfelldur fyrir að hafa
pantað sér og neytt veitinga á veit-
ingastöðum í borginni án þess að
geta greitt fyrir.
Nú var maðurinn dæmdur fyrir
fimmtán slík tilvik en í sjö fyrri
dómum var maðurinn sakfelldur
fyrir 34 samskonartilvik. Héraðs-
dómur dæmdi manninn í 12 mánaða
fangelsi fyrir málsverðina 15 en
Hæstiréttur helmingaði dóminn.
Maðurinn borðaði og drakk fyrir 65
þúsund krónur.
Ummæli Símonar Sigvaldasonar,
dómara í héraðsdómi, um hinn
dæmda segja sitt: „Er nærri að telja
að ákærði sé síbrotamaður að þessu
leyti og Ijóst að hann færist heldur í
aukana fremur en hitt.
NEYTENDAVAKTIN CSS? :
Sjálfvirkur bilaþvottur - Lítill fólksblll
Bílaþvottastöð Krónur
Löður Bæjarlind, Kóp. 1.700
Select - Shell 750
N1 690
Glans - Olis 690
Bílaþvottastöðin v/R.nesbraut 1.090
Ekki er tekið tillit til gæða eða þjónustu
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
USD SALA 63,09 % -0,57 ▼
GBP 124,99 -0,43 ▼
mmm mwm DKK 11,49 -0,40 ▼
• JPY 0,52 -0,67 ▼
BH EUR 85,67 -0,38 ▼
GENGISVÍSITALA 115,73 -0,43 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 7981.15 -0,60 ▼
VEÐRIÐ í DAG
VEÐUR » 2
og ostur
- Ijúffengur kosfur!