blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 blaðið VEÐRIÐ i DAG Rigning sunnantil Hvessir í morgunsárið, norðaustan 10 til 20 og rigning sunnantil, en hægari og þurrt að kalla um landið norðanvert. Hiti 3 til 12 stig að deg- inum, hlýjast suðvestanlands. Á FÖRNUM VEGI Eiga ísiendingar að hætta að taka þátt í Eurovision? Ari Björn Ólafsson „Já, þetta er bara eitthvað komm- únistadæmi." Hrund Ottósdóttir „Nei, en við eigum að senda almennilega söngvara eins og Símon Alfreðsson úr Grindavík, þá vinnum við.“ Hermann Sveinbjörnsson „Já, þetta er of dýrt og vonlaust." Baidur Guðmundsson „Nei, við erum bara ekkert síðri en aðrir.“ Klara Kjartansdóttir „Já, ef Eiríkur getur þetta ekki þá er þetta bara búið. Hann er hetjan mín.“ ÁMORGUN Léttir til Norðan og norðaustan 8 til 15 m/s og rigning norðan- og austanlands, en léttir heldur til um landið suðvestanvert. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast sunnantil. VÍÐA UM HEIM Algarve 25 Amsterdam /4 Barcelona 22 Berlín 17 Chicago 18 Dublin 14 Frankfurt 12 Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Montreal- 10 New York 12 Orlando 14 Osló 11 Palma 13 París 25 Stokkhólmur 7 Þórshöfn 23 22 12 22 16 13 8 Ingibjörg segir Steingrím hafa komið í veg fyrir vinstristjórn: Talaði vinstristjórn út af borðinu ■ VG neita viðræðum við sjálfstæðismenn ■ Ingibjörg ekki vinstristjórnar með Samfylkingu og Framsóknar- flokknum né við- ræður við Sjálf- Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Ekkert lá fyrir um myndun næstu ríkisstjórnar Islands þegar Blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks hittust í stjórnarráðinu um hálftíuleytið í gærmorgun og yfirgaf Jón Sigurðsson þann fund rúmum hálftíma síðar. Hvorugur stjórnarflokkanna hafði boðað til þingflokksfundar í gærkvöldi. Stjórnendur dægurmálaþáttarins Islands í dag sögðu frá því á þriðju- dagskvöld að þeir hefðu heimildir úr röðum Vinstri grænna og Sjálf- stæðisflokks fyrir því að stjórnar- myndunarviðræður væru í gangi á milli flokkanna. Stenigrímur J. Sig- fússon, formaður Vinstri grænna, segir það alls ekki rétt. „Það er óábyrgt af þeim að full- yrða svona af því að þetta er alger- lega tilhæfulaust. Það hljóta þá að vera mjög sérkennilegar heimildir og þær viðræður að verá svo leyni- legar að ég veit ekki einu sinni um þær sjálfur. Ég tel hvorki mig né Geir H. Haarde vera þannig menn að ljúga að þjóðinni ef svo- leiðis stæði á. Við kunnum alveg reglurnar í þessu. Á meðan stjórnin situr og það er yfirlýst að þeir séu að tala saman eru að sjálfsögðu engar aðrar viðræður í gangi. Við Geir höfum ekki hist. Það er eins satt og að ég sit hérna.“ Steingrímur segir það liggja fyrir að Samfylkingin hafi boðið sig formlega fram í stjórn- arsamstarf með Sjálfstæðis- flokknum. „Það er staðfest og óum- deilt. Það hefur ekki verið borið til baka að Samfylkingin hefur nálgast Sjálfstæðisflokkinn formlega og komið þeim skilaboðum til hans að þeir séu tilbúnir að vinna með þeim. Ingibjörg Sólrún hefur staðfest að þeim hugnist það.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, segir að það hafi verið ljóst frá því daginn eftir kjördag að tveir kostir væru í stöðunni fyrir sinn flokk. „Það er annarsvegar vinstristjórn og hins vegar stjórn Samfylkingar og Sjálf- stæðisflokks. Steingrímur er sjálfur búinn að spila þessa vinstristjórn út af borðinu. Þá stendur eftir hinn kosturinn og auðvitað hafna ég honum ekki. Við erum náttúrlega ekki flokkur sem afskrifar stjórnar- þátttöku fyrirfram." Steingrímur segir Vinstri græna hins vegar hvorki hafa útilokað myndun er rangt að halda því fram að við höfum afskrifað vinstristjórn. Mér finnst Ingibjörg Sólrún vera að koma því yfir á okkur að við höfum útilokað það, en það er ekki rétt. Hins vegar hefur alltaf legið fyrir að það yrði mjög erfitt fyrir okkur að ná saman við Framsóknarflokkinn. Það liggur fyrir að við vorum höfuð- andstæðingar stóriðjustefnu hans og þjóðin talaði skýrt. Hún afþakk- aði Framsókn en kaus okkur. Samt sitja menn uppi með þennan Fram- sóknarflokk og það er náttúrlega ekki beinlínis lýðræðislega lógískur né spennandi valkostur." stæðisflokkinn „ Þ a ð Ingibjörg Sólrún: „Við erum ekki flokkur sem afskrifar stiórnarþátttöku “ Steingrímur J. Sigfússon: „Ég tel hvorki mig né Geir H. Haarde vera þannig menn aö Ijúga að þjóðinni“ Samkeppnishæfni: ísland niöur um þrjú sæti ísland fellur úr fjórða sæti í það sjöunda í nýrri skýrslu IMD-við- skiptaháskólans í Lausanne í Sviss um samkeppnishæfústu hagkerfi í heimi. Bandaríkin eru í efsta sæti eins og síðastliðin þrettán ár. Ingólfiir Bender, forstöðumað- ur greiningardeildar Glitnis, segir að eitt af því sem komi niður á samkeppnisstöðu íslands séu neikvæðar hhðarverkanir þensl- unnar eins og verðbólga, viðskipta- halli og háir skammtímavextir. Ingólfúr segir næstu verkefni ríkisstjórnarinnar meðal annars að ná stöðugleika, tryggja verð- bólgumarkmið og hálda áfram á braut einkavæðingar, alþjóðvæð- ingar og skattalækkana. „Hún er að virka vel og við erum orðin ein tekjuhæsta þjóð heims.“ Heilablóðfall: Dánartíönin hæst hér Andlát sjúklinga í legu á Land- spítala-háskólasjúkrahúsi vegna heilablóðfalls eða heilablæðingar voru 18,4 prósent af öllum andlát- um í fyrra en 30,6 prósent árið 2005. Var það hæsta hlutfallið af öllum norrænu ríkjunum. Kemur þetta fram í nýútkom- inni skýrslu Landspítalans. Hlutfall nauðungarinnlagna af innlögnum á geðsjúkrahús á íslandi er það lægsta sem finnst á Norðurlöndum en árið 2005 voru þær 5,7 prósent á Islandi. Annars staðar á Norðurlöndum voru þær á bilinu 20,5-32,2 prósent. I fyrra var hlutfallið 5,2 pró- sent á íslandi. Sjúkraþjálfun á barnasviði jókst um 41,5 prósent milli áranna 2005 og 2006. Björn Bjarnason bregst viö auglýsingu Jóhannesar: Ofríki í krafti auðs Ljóst er að 2.514 kjósendur strik- uðu nafn Björns Bjarnasonar út í kosningunum á laugardag. I kjöl- farið birti Björn yfirlýsingu þar sem hann segir að auglýsing Jó- hannesar Jónssonar kaupmanns, þar sem hann hvatti kjósendur til að strika nafn Björns út, hafi ekki haft tilætluð áhrif þar sem 80 pró- sent kjósenda hafi haft hana að engu. Björn lýsir áhyggjum sínum yfir því að það þyki sjálfsagt að beita ofríki í krafti auðs til þess að „tryggja sér viðhlæjendur á þingi, í réttarsalnum og hjá ákæruvaldinu“. Björn segir að vegna ummæla Jóhannesar um samsæri sjálfstæðismanna gegn sér, komi honum það ekki á óvart að hann beiti áhrifum sínum og auði gegn stjórnmálamönnum sem hann telji standa í vegi fyrir því, að hann geti farið öllu sínu fram. „Ekkert réttaríki býr auðmönnum hins vegar eft- irlitslausar að- stæður,“ segir Björn. Illugi Gunnarsson sem var í 3. sæti á lista sjálfstæðis- manna í syðra Reykj aví k- urkjördæmi tekur sæti Björns. Strikiðyfirsiðl

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.