blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007
blaðið
Keyrt gegn rauðu Ijósi
Haröur árekstur varð við umferðarljósin á mótum
Lækjargötu og Kalkofnsvegar í fyrrinótt. Ökumenn
beggja bifreiðanna slösuðust, en ekki alvarlega. Þá
eru báöar bifreiðarnar talsvert skemmdar. Lögreglan
segir annan bílanna hafa farið yfir á rauðu Ijósi.
Miklar hækkanir frá áramótum
Heildsöluverð á algengustu dýralyfjum hefur hækkað tölu-
vert frá áramótum, eða að meðatali um 18 prósent. Dæmi
eru um að einstaka lyf hafi hækkað um allt að 47 prósent.
Á sama tíma hefur gengisvísitala krónunnar hækkað um
10,3 prósent og vísitala neysluverðs um 8,5 prósent.
NEYOARÞJONUSTA
Gagnkvæm aðstoð við bráðatilvik
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Brunavarnir Árnessýslu,
Slökkvilið Hveragerðis og Heilbrigðisstofnun Suðurlands hafa
gert með sér samkomulag um gagnkvæma aðstoð þar sem
þjónustusvæði þeirra liggja saman. Samkomulagið nær meðal
annars til virkjana Orkuveitunnar á Nesjavöllum og Hellisheiði.
Rússland og Bandaríkin:
Geta ekki leyst
ágreininginn
Utanríkisráðherrum Banda-
ríkjanna og Rússlands tókst
ekki að leysa ágreining þjóð-
anna í viðræðum sín á milli.
Þeim tókst þó að skilgreina
hver hann er og ákváðu að
reyna að draga sem mest úr
opinberum deilum þjóðanna.
Ríkin hafa að undanförnu ver-
ið harðorð hvort i annars garð.
Rússar hafa gagnrýnt frekari upp-
byggingu á eldflaugavarnarkefi
Bandaríkjanna í Evrópu, afstöðu
þeirra til sjálfstæðis Kosovo og
utanríkisstefnu þeirra almennt
sem þeir segja hafa gert heiminn
hættulegri. A móti hafa Banda-
ríkin gagnrýnt ríkisstjórn Rúss-
lands fyrir ólýðræðislega tilburði.
Palestína:
Vopnahlé
rofið enn á ný
Vígamenn drápu að minnsta
kosti fimm manns í áhlaupi
sem þeir gerðu á heimili eins af
talsmönnum Fatah á Gaza í gær.
Með þessu brutu þeir þriðja
vopnahléið á milli stríðandi
fylkinga Palestínumanna á
jafn mörgum dögum. Áhlaup-
ið var gert aðeins nokkrum
klukkustundum eífir að full-
trúar Hamas og Fatah komu
sér saman um vopnahlé.
Á fjórða tug manna hafa
látist í skærum á milli stuðn-
ingsmanna fylkinganna síðan
átök brutust út á sunnudag.
Hægt að nálgast þýddar leiðbeiningar um sprengjugerð:
Viðvaningar bjjóða
hættunni heim
■ íslenskar leiðbeiningar á íslensku vefsvæði ■ Mjög hættulegt
segir prófessor í efnafræði ■ Fimmtán ára aldurstakmark ótryggt
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Hægt er að nálgast fjölmargar
þýddar uppskriftir að sprengju-
gerð hjá íslenska vefsamfélaginu
Istorrent.
Sprengjurnar sem um er fjallað
eru af ýmsum toga en til að gera
þær er nauðsynlegt að blanda
saman ýmiss konar varningi eins
og bensíni, efnavörum og áburði.
Með uppskriftunum fylgja síðan
upplýsingar um það hvar sé auðveld-
ast að nálgast þau efni sem þurfi í
sprengjugerðina.
Skráin sem um ræðir var sett
inn á svæðið síðastliðinn mánudag.
Hún hafði verið sótt 358 sinnum
síðdegis í gær, en
allir notendur
Istorrent eru stað-
settir á íslandi.
Ágúst Kvaran,
prófessor í efna-
fræði við Háskóla
íslands, segir það
skera sig úr við
lestur uppskrift-
anna hversu illa leið-
beiningarnar séu
framsettar. „Þetta er
skrifað af einhverjum
sem kann litla eða
enga efnafræði. En
það er náttúrlega hægt
að nálgast sum þessara
efna hérlendis. Önnur
gæti ég ímyndað mér
að væri erfiðara að kom-
ast yfir. Auðvitað er stór-
hættulegt að blanda mörgum þess-
ara efna saman. Það getur líka verið
hættulegt að setja þetta fram svona
illa því þýðingin á leiðbeiningunum
er mjög léleg. Viðvaningar gætu
reynt að fikra sig áfram í þessu en
það býður hættunni heim.“
Ágúst segir eitthvað af sprengj-
unum virka. „Sumt af efnunum, líkt
og saltpétur og sykur, er mjög auð-
velt að nálgast. Þau efni er hægt að
nota til dæmis í reyksprengjur. Þær
Heimatilbúnar sprengjur
Hægur vandi að útvega efni í
sprengjur. NordiPhotos/Cetty
Skjalið er alls sextán blaðsiður
/ skjalinu er meðal annars hægt
að nálgast upplýsingar um gerð
napalmsprengju. I leiðbeinlngum
fyrir gerð slíkrar sprengju segir:
„Napalm er þykkt eins og sulta og
það er best að nota það á farar-
tæki og byggingar."
eru kannski í sjálfu sér ekkert hættu-
legar en ef þú setur þær inn í lokað
rými þá geta þær orðið það, vegna
glerbrota og annars slíks. Þannig að
auðvitað er þetta hættulegt, það er
engin spurning um það.“
Istorrent er sem fyrr segir ís-
lenskt vefsamfélag sem var stofnað
fyrir tveimur árum. Markmið þess
er að gera notendum kleift að dreifa
allskyns skrám sín
á milli. Samkvæmt
upplýsingum á vef-
síðu Istorrent eru
virkir notendur rúm-
lega 17 þúsund, eða
um 5,6 prósent allra
íslendinga.
Svavar Lúthersson,
einn stjórnenda Istorr-
ent, segir ekki sjálf-
gefið að upplýsingar
sem þessar séu fjar-
lægðarafvefnum. „Það
fer eftir því hvort það er
ólöglegt að dreifa svona
efni. Ef það er lögbrot
að deila efninu sjálfu
þá verður það fjarlægt.
Það á til dæmis við um
barnaklám, dýraklám og
alvöru morð. Þannig efni er fjarlægt
samstundis enda ekki einn einasti
vafi á að það er ólöglegt."
Svavar segir aldurstakmark not-
enda vera 15 ár en að líkur séu á
því að yngri aðilar nýti sér svæðið
án þeirra leyfis. „Ef við höfum
sannanir fyrir því að einhver yngri
en fimmtán ára sé þarna inni þá
bönnum við hann ásamt þeim sem
bauð honum."
Bifröst:
Bætt nám í
Evrópufræðum
Háskólinn á Bifröst mun í
sumar byrja að bjóða upp á nýtt
og endurbætt nám til meist-
aragráðu í Evrópufræðum.
Eiríkur Bergmann Einarsson,
dósent og forstöðumaður Evr-
ópufræðaseturs háskólans, segir
námsleiðina ennþá bjóða upp á
hefðbundin Evrópufræði líkt og
áður en nú sé einnig stóraukin
áhersla lögð á Austur-Evrópu.
„Hugmyndin á bak við það er
sú að uppgangur samfélaga þar
er mikill. Það skortir verulega
á þekkingu okkar íslendinga
á þessum samfélögum til þess
að geta nýtt okkur þau miklu
tækifæri sem þar er að finna, til
dæmis í viðskiptum.“ Kynn-
ing á náminu verður haldin á
Hótel Reykjavík Centrum við
Aðalstræti milli klukkan hálfeitt
og þrjú síðdegis á föstudag.
Ríklslögreglustjóri:
Ekki brotlegur
í Baugsmálinu
Ríkissaksóknari, Bogi
Nilsson, telur ekkert tilefni
til opinberrar rannsóknar á
embættisathöfnum Haraldar
Johannessen ríkislögreglustjóra.
Lögmaður Jóhannesar Jóns-
sonar í Bónus óskaði eftir því í
bréfi til ríkislögreglustjóra að
hann rannsakaði hvort Haraldur
og Jón H.B. Snorrason saksókn-
ari hefðu gerst brotlegir við lög
vegna ákæru á hendur Jóhann-
esi og fleirum í Baugsmálinu.
„Embætti ríkislögreglustjóra
mun ekki tjá sig frekar um
málið á meðan það er til
stjórnsýslumeðferðar hjá
ríkissaksóknara," segir í yfir-
lýsingu ríkislögreglustjóra.
Huyndai Accent eða sambærilegur
Vika á Florida
kr. - ótakmarkaður akstur, allar tryggingar,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bflstjóri og skattar.
i Bókaðu bílinn heima
|
- og fáðu 500 Vildarpunkta
522 44 00 • www.hcrtz.is
Stýrivextir óbreyttir út árið:
Verðbólga enn allt of mikil
Seðlabanki íslands ákvað í gær að
halda stýrivöxtum óbreyttum í 14,25
prósentum. Ekki er búist við að vext-
irnir lækki fyrr en í lok árs, en þeir
hafa verið óbrey ttir síðan í desember.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
sagði í máli sínu í gær að verðbólga
hafi hjaðnað hægar en spá bankans í
mars hafði gert ráð fyrir og að undir-
liggjandi verðbólga sé enn langt yfir
verðbólgumarkmiði bankans. Versni
verðbólguhorfur frá fyrri spá mun
Seðlabankinn bregðast við.
Davíð gerði gengi krónunnar að
umtalsefni. Sagði hann að hagstæð
skilyrði á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum, háir innlendir vextir
og bjartsýni í efnahagslífinu hefði
stuðlað að háu gengi krónunnar.
Mikill viðskiptahalli og tiltölulega
hátt raungengi fela í sér verulega
hættu á lækkun gengisins, til dæmis
ef alþjóðleg fjármálaskilyrði verða
óhagstæðari. Verðbólguhorfur gætu
þá versnað.
Davfð segir erfitt að meta áhrif
alþingiskosninganna á verðbólgu-
horfur. Meginatriðið sé að Seðlabank-
inn haldi sfnu striki óháð því hvaða
ríkisstjórn situr. „Ég vonast auðvitað
til að þær ákvarðanir sem stjórnvöld
landsins taka á hverjum tíma flútti
vel við þá stefnu sem Seðlabank-
anum er gert að fylgja.“
Davíð sagði jafnframt að bankinn
geri þær væntingar til nýrrar ríkis-
stjórnar að stöðugleikanum verði
ekki ógnað. Sé hann ekki fýrir hendi,
verði hagvöxtur ekki vel grundaður
og þar með ekki tækifæri til að láta
gott af sér að leiða f efnahagslífinu.