blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 blaöið INNLENT AÐSVIF UNDIR STÝRI Utafkeyrsla og hjartaáfall Manni á áttræðisaldri er haldiö sofandi á gjörgæslu Land- spítala-háskólasjúkrahúss eftir að hafa fengið aðsvif undir stýri með þeim afleiðingum að bill hans lenti utan vegar skammt frá Þórustöðum I Ölfusi I fyrradag. Talið er að við útafaksturinn hafi maðurinn fengið hjartaáfall. SLYS IKÓPAVOGSLAUG Enn haldið sofandi Drengnum sem fannst meðvitundarlaus á botni Kópavogs- laugar I síðasta mánuði er enn haldið sofandi á gjörgæslu LSH. Hann hafði verið meðvitundarlaus I talsverðan tíma er hann fannst, en sundkennari og starfsmaður laugar- innar náðu að blása I hann lífi á bakkanum. SKJÁR EINN Magnús lætur af störfum Magnús Ragnarsson hefur að eigin ósk látið af störfum sem framkvæmdastjóri Skjásins miðla. Hann tilkynnti ákvörðun sína á starfsmannafundi I gær. Enginn hefur verið ráðinn I hans stað en leit að eftirmanni Magnúsar stendur yfir. Hann sinnir áfram verkefnum fyrir félagið þar til nýr framkvæmdastjóri finnst. Sterling: Verkfallið blásið af Flugmenn og stjórnendur danska lágfargjaldaflugfélagsins Sterling, sem er í eigu íslenskra fjárfesta í Northern Travel Hold- ing, náðu í gær samkomulagi í meginatriðum eftir tæplega sól- arhringsfundarhöld og var því útlit fyrir að verkfalli yrði aflýst. Flugmennirnir höfðu hótað verk- falli frá og með uppstigningar- degi ef samningar næðust ekki en ágreiningur ríkti um bæði laun og vaktafyrirkomulag. Um 15 þús- und Danir sem áttu bókað far í kringum uppstigningardaginn geta nú varpað öndinni léttar. Danskir fjölmiðlar höfðu það eftir Stefan Vilner, einum stjórn- enda Sterling, að flugfélagið þyldi verkfall í mesta lagi í tvo daga. Hver verkfallsdagur myndi kosta um 15 til 20 milljónir danskra króna auk þess sem ímynd Sterl- ing yrði fyrir skaða. Neytenda- samtök í Danmörku höfðu varað almenning við að kaupa miða með flugfélaginu. Hætta væri á að farmiðarnir yrðu ekki end- urgreiddir yrði flugfélagið gjald- þrota þar sem tryggingar næðu aðeins til pakkaferða. Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar. ) \ VOGABÆR Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna. Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa. Formaður Húseigendafélagsins um lóðaúthlutanir í Úlfarsárdal: Óeðlilegt að njörva fólkið svona niður ■ Verða að eiga eigningar í sex ár ■ Leiðir til svartamarkaðsbrasks ■ Gjaldþrot og skilnaður veitir ekki undanþágu Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Tilraunir Reykjavíkurborgar til að stemma stigu við braski með lóðir og íbúðir í Úlfarsárdal eru mjög óvenjulegar og munu leiða til neð- anjarðarhagkerfis fyrir íbúðir og hús í dalnum, segir formaður Hús- eigendafélagsins. Þeir sem kaupa íbúðir eða lóðir undir hús í Úlfars- árdal verða að búa í fasteigninni í 6 ár, að öðrum kosti þurfa þeir að greiða viðbótargjald frá 2 og upp í 5 milljónir. Einu undanþágurnar sem nefndar hafa verið eru dauðsföll og alvarlegir sjúkdómar. Eins og fram hefur komið mun borgin úthluta 1.500 lóðum á ári næstu árin og verður meirihlut- anum úthlutað á föstu verði. „Við viljum gera þeim sem vilja búa í Reykjavík kleift að gera það fyrir skikkanlegt verð,“ segir Ágúst Jóns- son, skrifstofustjóri framkvæmda- sviðs Reykjavíkurborgar, en borgar- stjórn telur fast verð lóðanna vera undir markaðsvirði. Þeir sem kaupa lóðir undir hús eða íbúðir þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að ætlunin sé að búa þar. „Ef fólk hins vegar selur er eignin komin á markað og gengur kaupum og sölum á markaðsverði. Þess vegna finnst okkur eðlilegt að bæta þessu viðbótargjaldi við, ákveði fólk að selja innan 6 ára.“ Viðbótargjaldið er 2 milljónir selji fólk íbúð á svæðinu eftir minna en 6 ár, 4 milljónir selji það par- eða raðhús og 5 milljónir vegna einbýl- ishúss. Verktakar sem kaupa lóð undir blokkir geta þó selt íbúðirnar eins og þeir vilja, en sama gildir ekki um kaupendur íbúða í blokkunum. Þá verður ekkert gert til að koma í veg fyrir að keyptar verði fasteignir í þeim tilgangi að leigja þær út. Ef um dauðsfall eða alvarleg veik- indi er að ræða getur borgin gert undanþágu frá reglunum. Aðrar undanþágur hafa ekki verið nefndar. Ágúst gerir til dæmis ekki ráð fyrir því að borgin veiti undanþágu þótt um gjaldþrot eða skilnað hjóna sem kaupa lóð sé að ræða. „Borgarráð mun þó taka á slíkum málum hverju sinni og meta þau eftir aðstæðum.“ Mennmunu finna leið fram- hjá reglunum Siguröur Helgi Guð- jónsson, formaður Húseigendafélagsins Sigurður Helgi Guðjónsson, for- maður Húseigendafélagsins, telur ekki um eðlilegar aðgerðir að ræða. „Líf fólks og aðstæður breytast ört. Það er náttúrlega mjög óeðlilegt að njörva fólk niður alveg óháð að- stæðum þess. Þarna er verið að búa til átthagafjötra og ég man ekki eftir svona löguðu áður.“ Sigurður segir tilganginn vissulega vera góðan en ekki meðalið. „Það er alveg vist að fólk finnur leiðir til að fara framhjá þessu. Fólk mun fara að gera alls konar díla; verður til dæmis löngu búið að selja, en á pappírunum lætur það líta út eins og um leigu sé að ræða. Þá verður komið eins konar neðanjarð- arhagkerfi fyrir lóðir í holtinu, sem er mjög slæmt fyrir viðskiptaöryggi “ segir Sigurður. Skemmdarverk unnin við Álafosskvos: Máluðu X-D á vinnuvélar Unnin voru skemmdarverk á vinnuvélum við Álafosskvos í fyrri- nótt. Telur Hörður Gauti Gunnars- son, framkvæmdastjóri Verktaka Magna efh., að tjónið hlaupi á millj- ónum króna. Ætla þeir að kæra verknaðinn og vilja að málið verði rannsakað til hlítar. Segist hann gruna að Varmársamtökin hafi verið þarna að verki. Varmársam- tökin segjast hins vegar ekki hafa komið nálægt þessum skemmdum. Málað var á sjö vinnuvélar X-D og brotnar rúður í fjórum af þeim. Einnig skemmdist stjórnbúnaður 1 að minnsta kosti einni þeirra. Hörður segir að greinilegt sé að um enga tilviljun hafi verið að ræða. „Þetta fólk hefur hreinlega kallað á stríð og hefur leikinn á þennan hátt.“ Sigrún Pálsdóttir, stjórnarmaður Varmársamtakanna, segir samtökin fordæma skemmdarverkin. „Við fordæmum einnig harðlega að verk- takinn skuli vera að reyna að klína þessu á Varmársamtökin. Sá sem gerir svona er að eyðileggja fyrir samtökunum vegna þess að þarna fá þeir sem það vilja tækifæri til að klína á okkur einhverju misjöfnu."

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.