blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007
blaöiö
UTAN UR HEIMI
Vilja herða reglur
Atvinnurekendur í Evrópusambandinu sem verða
uppvísir að því að ráða ólöglega innflytjendur í
vinnu mega eiga von á hörðum refsingum nái nýjar
tillögur framkvæmdastjórnar sambandsins fram að
ganga. Hún vill einnig auka eftirlitið til muna.
QQIK
Vilja aðstoða þjóðir Afríku
Kínverjar hafa skorað á ríkustu þjóðir heims
að gera betur í aðstoð sinni við Afríku auk
þess að lýsa yfir vilja sínum til þess að leggja
sitt af mörkum. Á undanförnum áratug hafa
umsvif Kínverja í Afríku aukist gríðarlega.
Lögreglan vill auka notkun á stuðbyssum
Til stendur að fjölga þeim lögreglumönnum sem þera
svokallaðar stuðbyssur. Byssurnar lama um stund þá sem
þær eru notaðar gegn. Amnesty International segja byss-
urnar geta verið banvænar og hafa kallað eftir opinberri
rannsókn áður en notkun þeirra verður aukin.
Sími: 553-9595 www.gahusgogn.is Ármúla19
Skógfræði og
landgræðsla við
Landbúnaðar-
háskóla íslands
Síðastliöiö haust hóf
Landbúnaöarháskóli íslands
aö kenna skógfræöi og
landgræöslu til BS
og MS gráðu.
■ Þriggja ára nám
• Áhersla lögð á traustan vísindalegan grunn
• Nemendur búnir undir störf sem fræðimenn,
stjómendur eða sjálfstæðir atvinnurekendur
• Fjarnám og sjálfstæð MS verkefni
• Umsóknarfrestur um skólavist er til 4. júní
Hafið samband við kennsluskrifstofu Landbúnaðar-
háskólans eða brautarstjóra Skógfræði og landgræðslu-
brautar, Bjama Diðrik Sigurðsson (bjarni@lbhi.is) til að
fá frekari upplýsingar. Nánari upplýsingar er einnig að
fá á heimasíðu Lbh( - www.lbhi.is
Hvanneyri -311 Borgarnes
Sími 433 5000 • www.lbhi.is
K
Eftir Lovísu Hilmarsdóttir
lovisa@bladid.net
Daglegar reykingar nemenda í to.
bekk grunnskóla á íslandi hafa
minnkað um helming á síðast-
liðnum 12 árum. Einnig hefur dregið
verulega úr áfengisneyslu. Baráttan
við hassneyslu reynist erfiðari því
hún hefur lítinn árangur borið á
síðastliðnum 12 árum og standa
íslendingar í stað hvað hassneyslu
varðar. Þetta kemur fram í Espad-
rannsókn sem er framkvæmd af
Háskólanum á Akureyri í samvinnu
við Lýðheilsustöð.
Árið 1995 reyktu að meðaltali 20,8
prósent nemenda í 10. bekk en í dag
hefur sú tala farið niður í 11 prósent.
Stefán Hrafn Jónsson, sviðsstjóri
hjá Lýðheilsustöð, segir ástæðuna
fyrir þessari framför fyrst og fremst
liggja hjá krökkunum, en einnig
spili foreldrar og forvarnir stórt hlut-
verk. „Það er hins vegar mjög erfitt
að draga eitthvað eitt út og segja
að það sé að hafa áhrif, til dæmis
dregur minnkandi áfengisneysla úr
reykingum.“
Rannsóknin sýnir að hlutfall
þeirra unglinga sem neyta áfengis
hefur lækkað um 22 prósent á síð-
ustu 12 árum. Stefán segir það hafa
komið sér á óvart hversu margir
unglingar drekka áfengi heima hjá
sér án þess að upp um þá komist.
Það voru um 27 prósent unglinga
sem segjast drekka áfengi heima hjá
sér án vitundar foreldra sinna.
Aðspurður hvort eitthvað hafi
valdið vonbrigðum svarar Stefán:
,Það olli mér vonbrigðum hversu
auðvelt það reynist að verða sér úti
um tóbak. Um 60 prósent nemenda
segjast auðveldlega geta náð sér I
tóbak og þeir sem reykja daglega
segja það lítið vandamál að viðhalda
neyslunni. Því setjum við hérna á
Lýðheilsustöðinni stórt spurningar-
merki við alla umræðu um að leyfa
sölu áfengis í verslunum.“
Stefán segir það afar mikilvægt í
öllu forvarnarstarfi að leggja áherslu
á þá sem eru að standa sig vel. „Það
hefur náðst lítil árangur á síðustu
12 árum þegar kemur að hassneyslu.
Ennþá hafa um 10 prósent prófað að
reykja hass eða reykja það reglulega,
en í staðinn fyrir að leggja áherslu
á þessa tölu þá ætlum við að leggja
áheyrslu á að rúmlega 90 prósent
unglinga hafa aldrei reykt hass.“
Stefán segir að undanfarin ár
hafi verið lögð mikil áhersla á sam-
veru foreldra og barna, og finnst
honum að þessi áhersla sé að skila
sér í minnkandi vímuefnaneyslu
unglinga.
Rannsóknin fer fram á fjögurra
ára fresti, fyrst árið 1995. Nemendur
10. bekkjar hverju sinni í öllum
grunnskólum landsins taka þátt
en í kringum 4.500 nemendur eru í
10. bekk á íslandi og svöruðu 3.665
þeirra könnuninni eða um 82 pró-
sent. Rannsóknin er samvinnuverk-
efni fræðimanna í rúmlega fjörutíu
Evrópulöndum.
25%
Hlutfall 10. bekkinga sem reykja
0%
1995
1999
2003
2007
ÚLFLJÓTSVATNI
Upplýsingar og skróning á netinu:
www.ulfljotsvatn.is
- Bdtasiglingar - Vatnaleikir - Sparkleikir - Ædol - Kassabílaakstury-
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífscBvintýri - fjör og hópeflisandi!
«»
n
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is