blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007
blaAiö
Kauptu EarPlanes^'
eyrnatappa med þrýstijafnara
og njóttu þess ad ftjúga án verkja eða
óþœginda f eyrum
Clæsibæ | Álfheimum 74 |104 Reykjavík | sími: 568 68801 www.heyrnartaekni.is
Marco heildverslun, www.marco.is
GEORQE FOREMAN
Nýtískuleg hönnun með burstuðu stáli og tímastilli
m % |W
UTAN ÚR HEIMI
SOMALÍA ★
Ráðist á friðargæslusveit
Fjórir hermenn úr friðargæslusveit Afríkusambandsins létust í
gær þegar spengja var sprengd á vegi þar sem þeir voru í eftir-
litsferð. Fimm aðrir særðust í sprengingunni sem augljóslega
var beint gegn friðargæslusveitinni. Árásin var sú mannskæð-
asta sem friðargæslusveitirnar hafa orðið fyrir síðan í mars.
Sarkozy tekur við af Chirac:
Trúarbrögð mín
eru Frakkland
■ Kallar eftir samstöðu ■ Opnar ríkisstjórn sína fyrir vinstrimönnum
Nicolas Sarkozy, nýkjörinn
forseti Frakklands, sór i gær
embættiseið sinn í Elyséehöll í
París. Sarkozy tekur við af Jaques
Chirac sem hefur verið forseti í 12
ár. Sarkozy kallaði eftir samstöðu
Frakka í upphafi nýrra og breyttra
tíma rétt eins og forveri hans gerði
í kveðjuræðu sinni kvöldið áður.
„Ég er tilbúinn til að vinna með
öllum sem elska landið, þjónusta
við Frakkland eru mín trúarbrögð,"
sagði Sarkozy auk þess að lýsa sig
tilbúinn til að opna ríkisstjórn
sínatilvinstri.
Chirac kveður
Jaques Chirac hverfur nú af
vettvangi eftir 12 ár í embætti. Á
alþjóðavettvangi verður hans
helst minnst fyrir að hafa leitt
andstöðuna við innrás Bandaríkj-
anna í Irak árið 2003 og áherslur á
umhverfismál.
Chirac hefur hins vegar ekki
unnið stóra sigra í innanlands-
málum. Hann studdi meðal
annars stjórnarskrá Evrópusam-
bandsins sem Frakkar felldu í þjóð-
aratkvæðagreiðslu auk þess sem
forsetatíð hans hefur einnig ein-
kennst af efnahagslegum óstöðug-
leika og félagslegum vandamálum.
Fer ótroðnar slóðir í
myndun ríkisstjórnar
Fyrsta verkefni Sarkozy verður
að mynda nýja ríkisstjórn. Við því
er búist að hann muni ganga
beint til verks og að hann muni
kynna ráðherrana 15 á morgun.
Það er búist við þvi að Sarkozy
muni skipa Fram;ois Fillon,
fyrrverandi félagsmálaráð-
herra, sem forsætisráðherra
og að í ríkisstjórn hans
muni verða að minnsta
kosti sjö konur.
I innsetningarræðu
sinni opnaði hann fyrir
þann möguleika að ein-
hverjir ráðherrar gætu
komið af vinstri hlið stjórn
málanna. 1 því samhengi
hefur til dæmis Bernard
Kouchner verið nefndur
en hann er stofnandi
samtakanna Læknar án
landamæra og fyrrverandi
heilbrigðisráðherra Sósí-
alistaflokksins. Það er því
ljóst að mikilla tíðinda er að
vænta þegar Sarkozy kynnir
stjórn sína.
Þingkosningar mikilvægar
Sem stendur hefur Sarkozy
stuðning meirihluta þingsins
en þingkosningar fara fram
þann 10. og 17. næsta mánaðar.
Ef hann missir stuðninginn í
kosningunum þá er hætt við að
Sarkozy muni eiga erfitt með
að koma sinum helstu málum,
sem mörg eru mjög umdeild, í
framkvæmd.
Nýr forseti
Frakklands
Sarkozy fylgir
forvera sínum úr
hlaði fyrir utan
Elyséehöll í gær.
NJOTTU LIFSINS AN SIGARETTUNNA
PRÓFAÐU NICOTINELL NIKÓTÍNTYGGIGÚMMÍIÐ.
SAMA GÓÐA BRAGÐIÐ, NÚ í NÝJUM PAKKNINGUM.
FÆST MEÐ ÁVAXTA-, MINTU-, LAKKRÍS- OG NIKÓTÍNBRAGÐI.
.
Nicotineí nil*6tinM fást ánlyfeeðilsQgefu notuð sem tjAlparefni til tiess að hætta eða dtaga úr rejfcngim. Til að ná sem I
fylgiseðlinum með lylinu. Skammtar eiu einstaWingshundnir ogeru ákvarðaðir eftir þui hvereu miWð er reykt. en peir mega þo a
lækniseða tygaffæðingseí t*f er á tetori upplýs.nöjm. Þeir sem fengk) hafa ofnæmi fynr nlkðtíni eða öðrum inrohaldsemurr
versnandí tgartaóng. aterte® t jtrtsiáttaróregu eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota NKOtineil nikótínlyf. Bðm undir.15
bi)óstiskrtuekkínota1yliðnemaaðlæknisráði. Us» allan fyigseðiknn áður en bjojað er að nota lyfið. Markaðslayrishali: f
LYFJA
Lágmúli - Smáratorg - Laugávcgur - Smitaliná - Spongin - Garðatorg,- Sctberg - Keflavik - Grlndavlk - Selfoss - Laugarás - Borgames ■ Stykkúhólmur
Grundarfjftrður - Búðardalur i ísafjörður • Bolungarvtk - Patreksfiðrður • Sauöárkrftkur - Blönduós - Hvammstangi - Skagastrftnd - Húsavfk • Kópasker
Raufarhöfn - ÞórsfiÖfn - Egtísstíðir - Seyðlsfjörður' ráskrúðsfjftrður - l lftfn - Neskaupstaður - Reyðarfjftrður - Eskifjftrður
www.lyfla.is .
LYFJA STYÐUR LANDSLIÐ KVENNA í HANDBOLTA
Frummatsskýrsla um Helguvík:
Mælt með álveri
Ur Helguvik Mælt er með
álverinu í frumskýrslu um
mat á umhverfisáhrifum.
Frummatsskýrsla vegna mats á
umhverfisáhrifum álvers í Helgu-
vík í sveitarfélaginu Garði og Reykja-
nesbæ var birt í gær. Niðurstaða
matsins á umhverfisáhrifum er
sú að heildaráhrif byggingar og
reksturs álversins, með allt að 250
þúsund tonna álframleiðslu, muni
verðá jákvæð. Er því mælt með að
fallist verði á framkvæmdina. Fram-
leiðslugeta álvers Alcan í Straums-
vík er 180 þúsund tonn.
Ráðgjafarfyrirtækið HRV vann
frummatsskýrsluna í samræmi
við matsáætlun sem samþykkt var
af Skipulagsstofnun 8. júní 2006. í
skýrslunni kemur meðal annars
fram að bygging og rekstur álvers
við Helguvík muni hafa talsverð
jákvæð áhrif á samfélagið á Suður-
nesjum. Loftdreifing verður mikil
þar sem álverið verður á vindasömu
svæði. Ekki er talið að tillaga um
þynningarsvæði komi til með að
hafa áhrif á landnotkun né framtíð-
arstefnu sveitarfélaganna.
Frummatsskýrslan er til nú
meðal annars til umfjöllunar hjá
Skipulagsstofnun. Almenningi gefst
kostur á að senda inn skriflegar at-
hugasemdir til Skipulagsstofnunar
til 28. júní næstkomandi.