blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 blaöið Náttúru- og umhverfis- fræði Með aukinni ásókn í land og fjölbreyttari nýtingu þess er mikil þörf á fagfólki sem hefur viðtæka þekkingu á náttúru íslands og sjálfbærri nýtingu hennar. Við Landbúnaðarháskóla Islands er boðið upp á nám í náttúru- og umhverfisfræði. Áhersla er lögð á náttúru Islands, áhrif mannsins á umhverfið, sjálfbæra nýtingu náttúrugæða og náttúruvernd. Námið er góð undirstaða undir allt framhaldsnám í náttúruvísindum. Það hentar vel fyrir margvísleg störf að umhverfismálum sem krefjast sérþekkingar á íslenskri náttúru, s.s. umsjón, stjórn og skipulag umhverfismála og landnýtingar, eftirlit og umsjón með náttúruverndarsvæðum og mat á umhverfisáhrif- um. Einnig er námið kjörið fyrir kennslu í náttúru- fræðum á grunn- og framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar er að fá á vef Lbhl - www.lbhi.is Umsóknarfrestur er til 4. júní. Hvanneyri -311 Borgarnes Sími 433 5000 • www.lbhi.is GEFA/MGGJA Sjálfsögð mannréttindi „Allir vita hvernig Impregilo hefur traðkað niður sjálfsögðustu mannréttindi og með hjálp tslenskra lögfræö- inga og stjórnvalda komist upp með þaö.“ Mynd/Steinunn Ómannvæn fyrirtæki Við íslendingar megum ekki verða ónæmir fyrir ómanneskjulegri fram- komu stóru fyrirtækjanna á landinu. Allir vita hvernig Impregilo hefur traðkað niður sjálfsögðustu mann- réttindi og með hjálp íslenskra lög- fræðinga og stjórnvalda komist upp með það. Eg dæmi ekki bankana, þeir hafa gert það sjálfir. Fólk hefur hringt vegna íslenskra fyrirtækja sem þykjast vera mannvæn, en í reynd hefur græðgin og falsið betur. Grægðin spilar stóra rullu Skyndibitastaður í Hafnarfirði og víðar hafði lengi stundað að ráða ungmenni á byrjendalaunum og látið þau hætta þegar lögskil- inn reynslutími var liðinn og laun skyldu hækkuð. Ég þekki til veitinga- staða sem réðu nema í þjónsstörf og matreiðslu og höfðu sama hátt á. Einn af stærstu pitsustöðunum rak starfsstúlku og sagði ástæðuna vera ótta um að hún gæti meitt sig vegna þess að hún væri orðin ófrísk. Vina- legi bærinn Selfoss hefur nokkrum stórum fyrirtækjum á að skipa og Ég skora á fyr- irtæki að hafa ekki heimsku, græðgi eða hroka við stjómvölinn. Umrœðan Albert Jensen þar á meðal er eitt sem selur blóm og fleira. í vetur sem leið vann þar stúlka um helgar með námi sínu og gerði ráð fyrir sumarvinnu. Eig- endum var það ljóst en þegar þeir vissu að stúlkan gekk með barni var önnur ráðin. Skýringar eigenda voru að um nema í blómaskreyt- ingum væri að ræða. Það reynd- ist fyrirsláttur. Það er furðulegt hvað græðgin spilar stóra rullu hjá mörgum og það þó margsannað sé hvað hún er mikill ódráttur og frið- arspillir. Fyrirtæki sem þannig haga sér eru ekki að leggja æskunni lið. Fyrirtæki sem leggja stein í götu upp- rennandi ungmenna, sem þeim væri nær að hlúa að og örva, eru ekki þau sem samfélögin vilja. Æskan er fram- tíðin og mikil vanhugsun að bregða fæti fyrir duglega einstaklinga sem vilja bjarga sér sjálfir. Leggið inn hjá æskunni Enginn er svo heimskur að hann stimpli með Græðgi hf. og enginn upplýsir heldur að hann nýti sér veikleikaflóruna eins og hún leggur sig. Þar á meðal þær kjöraðstæður til gróða er verða til með veiðilendum sem skapast þegar ungmennin stíga sín fyrstu skref á vinnumörk- uðum. Að drepa niður bjartsýni og drauma unga fólksins okkar með fyrrnefndum hætti ætti að vera fjarri hverjum heilvita manni. Af- leiðingar slíkrar hegðunar geta verið grafalvarlegar og skaðinn var- anlegur. Ég skora á fyrirtæki að hafa ekki heimsku, græðgi eða hroka við stjórnvölinn. Það skaðar alla. Leggið heldur inn hjá æskunni. Það hjálpar öllum. Höfundur er trésmíðameistari LYFJA STYÐUR LANDSLIÐ KVENNA í HANDBOLTA NJÓTTU LÍFSINS ÁN SÍGARETTUNNAR PRÓFAÐU NICOTINELL NIKÓTÍNTYGGIGÚMMÍIÐ. SAMA GÓÐA BRAGÐIÐ, NÚ í NÝJUM PAKKNINGUM. FÆST MEÐ ÁVAXTA-, MINTU-, LAKKRÍS- OG NIKÓTÍNBRAGÐI. Nicolinell ntkótíníyf fást án lyfseðils og enj notuð sem hjálparefni til þess aó hætta eóa draga úr reykingjm. Til aó ná sem bestum árangri skal ávatt fyigja leióbetntngum ( fytgíseólinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvaróaöir eftir því hversu mikió er reykt, en þeír mega þó aklrei vera stærri en 25 stykkj á dag. Leita skal til teeknis eóa lyfjaíræóings ef þörf er ó frekari upplýsingum. Þeir sem ten&ó hafa ofnæmi fyrir nikótíni eóa öórum innihaldsefnum lyfeins, fengió hjartaáfall nýtega, óstöóuga eóa versnandi hjartaöng, ak-arlega hjartsláttaróregju eöa heilaWóöfaH nýtega eiga ekki aö nota NieotineU mtótínlyf. Bðm undir 15 ára aldri, þungaöar konur og konur með bam á bQÓsti skulu ekki nota lyfió nema aó lækntsraöi. Lesió allan fylgseóilinn áóur en byrjaó er aó nota tyfió. Markaósteyfishafi: Novartis Healthcare. Umboó á íslandi: Artasan, Kifkjuiuodi 17.210 Garóabæ. Lágmúli ■ Smáratorg - Laugavegur - SmáraTmd - Spðngin • Garðatorg Setberg - Keflavik - Grindavfk ■ Selfoss • Laugaris - Borgarnes - Stykkishúimur Grundartjörðuf - Búðardaiur - Isafjðrður • Bolungar/Ik • Patreksfjðrður • SauðArkrókur - Blðnduós • Hvaimnstangi - Skagastrðnd • Húsavík - Kópasker Raufarhðfn - Þðrshðfn - Fgilsstaðír • Seyörsfjðrður - Fásk/úðsfjörður - Hðfn - Neskaupstaður - Reyðarfjðrður ■ F.skifjðrður www.lyfja.is Cb LYFJA 1*»*! - Lrfið heil Studdi Samfylkinguna Slúðurdálkahöfundar njótaþeirra forréttinda, að staðreyndir þurfa ekki að vefjast fyrir þeim. Oftast kemur það ekki að sök. En í þessu tilviki gætu einhverjir hugsanlega glapist til að trúa slúðrinu, svo að það heyrir til gustukaverka að leið- rétta það: (í) Undirritaður lýsti hvergi yfir stuðningi sínum við Islandshreyf- inguna í kosningabaráttunni. Mér var hins vegar í mun, að atkvæði nýttust til að hnekkja stjórnarmeirihlutanum. Ég skrifaði því grein í Morgun- blaðið, þar sem ég skoraði á sjálfstæð- ismenn, sem væru andstæðingar stóriðjustefnunnar, en gætu samt, af einhverjum ástæðum, ekki kosið Samfylkinguna eða Vinstri græna, að kjósa Omar í Reykjavík suður. Með því gætu þeir slegið margar flugur í einu höggi: Fellt stjórnina, hnekkt stóriðjustefnunni og vísað ferðir co Cö TD Z3 *o' Auglýsingasíminn er 510 3744 Umrœðan Sjálturlýsti égyfir stuðningi við Samfylkinguna. Jón Baldvin Hannibalsson flokki sínum til vegar. Sjálfur lýsti ég yfir stuðningi við Samfylkinguna á fjölmörgum fundum með frambjóð- endum hennar, t.d. í Reykjanesbæ, á Snæfellsnesi, á Akureyri, Siglufirði, Isafirði og víðar. (2) Ég hef að sjálfsögðu aldrei látið það út úr mér „að menn, sem væru að nálgast eftirlaunaaldur, ættu ekki að skipta sér af pólitík“. Ég hef hins vegar sagt, að menn, sem væru þrotnir að pólitískum hugmyndum, ættu ekkert erindi í pólitík. Það á sem kunnugt er ekki við um undirritaðan. Með vinsemd Jón Baldvin Hannibalsson Jón Baldvin Hannibalsson sendi grein vegna mola sem birtist um hann í „heyrst hefur-dálknum“ á síðu 27 í Blaðinu t gcer.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.