blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 16
 HEYRST HEFUR 16 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 blaðið Bjarni „Rauða Ijónið íþróttafréttamaður Felixson, B]arni Felixson lýsti ensku mörkunum væntanlega i siðasta skipti á mánudaginn, eftir að hafa verið viðloðandi ensku knatt spymuna í um 40 ár. 365 miðlar hafa keypt sýningarréttinn að enska boltanum næstu árin. BLOGGARINN... Hroki íhaldsins „Heyrst hefur og lesið að sjálfstæðis- menn vilji ekki samstarf við Sam- fylkinguna þvíþeir vilja ekki hleypa Ingibjörgu Sólrúnu að í ráðuneytin og efla þar með velferð hennar. Mér finnst þetta hrokafullt. En með þes- su viðurkenna þeir hræðslu sína við að hún muni hugsan- lega yfirtaka stjórnartaumana á Alþingi í fram- tiðinni eins og hún gerði með R-lista- samstarfinu í borgar- stjórninni. Þórdís Bára Hannesdóttir nupur.blog.is KOMIN er upp ein skýring á úr- slitum kosninganna sem hver og einn flokkur getur túlkað að vild. Lögfræðingurinn Jón Sigurgeirs- son bloggar á síðu sinni um að sjálf risessan hafi takmarkað umferð á kjörstað og furðar sig á því hvers vegna þurfti einmitt að velja þennan dag til uppátækisins. Spurning hvort hún hafi lagt sérstakan stein í götu framsóknar- manna... BJÖRN BJARNASON hefur svarað Jóhannesi Jónssyni með yfirlýsingu þar sem hann vísar ásökunum Jóhannesar á bug. Björn lætur engan bilbug á sér finna og skipaði í gær fimm menn til ýmissa löggæslustarfa en hann hefur jú verið gagnrýndur fyrir pól- itískar ráðningar sínar. Ljóst er að Björn mun hafa nóg fyrir stafni, í orðsins fyllstu merkingu, enda von á Paul Watson, hvalavini og íslands- óvini... rHVAÐ Hefur Rauða ljónið FIínJNST lotiðígras? l_i' f „Nei, það hefur það ekki. Ég mun halda áfram í hluta- JLr JLj XV. • starfi hjá RÚV.“ MANNLÍFSVEFURINN segirþá Davíð Oddsson, Friðrik Sop- husson, Hannes Hólmstein og Björgólf Guðmundsson hafa hist í Landsbankanum í Austurstræti að kvöldlagi til að leggja á ráðin um væntanlega ríkisstjórn, enda verði ekki framhjá þeim gengið varð- andi samráð við stjórnarmyndun. Hvort satt reynist skal ósagt látið, en ljóst er að ekki voru þeir saman- komnir til að taka upp fótbolta- auglýsingu á vegum Landsbankans. Hins vegar hefur sú saga kvisast út, að aðeins hafi verið um briddskvöld að ræða hjá þeim fé- lögum... List án landamæra hefur vakið verðskuldaða athygli: Hátíð sem er komin til að vera Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Listahátíðin List án landamæra hefur staðið yfir frá 26. apríl síð- astliðnum og lauk formlega í gær, þó svo að sumar sýningar standi gestum enn opnar næsta misserið. Á hátíðinni koma fram bæði fatlaðir og ófatlaðir listamenn til að kynna sína listsköpun. Margrét M. Norðdahl er framkvæmdastýra hátíðarinnar og segir vel hafa tekist upp. „Markmiðið með þessari listahá- tíð sem nú er haldin í fjórða skiptið er auðvitað að koma ólíkum lista- mönnum á framfæri og efla menn- ingarstarf almennt. Þarna er verið að brjóta niður múra og landamæri sem skapast milli hópa í samfélag- inu,“ segir Margrét sem sjálf er menntuð myndlistarkona. „Ég er menntuð úr Listaháskóla íslands og var einnig í námi í Hels- inki í Finnlandi. Með námi vann ég síðan á sambýli með geðfötluðum einstaklingum sem var ákaflega gefandi og spennandi starf. Ég er ættuð að austan, verð að taka það sérstaklega fram fyrir hana ömmu mína, en ólst upp í Reykjavík. Ég hef tekið þátt í ýmsum verkefnum, þar á meðal við sjálfboðastörf í Srí Lanka fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar 2004 en þetta er í annað sinn sem ég er ráðin í þetta verkefni, List án landamæra." Að listahátíðinni standa Lands- samtökin Þroskahjálp, Fjölmennt, Átak, Öryrkjabandalagið og Hitt Húsið. Segir Margrét að nauðsyn- legt sé að veita upprennandi lista- fólki, fötluðu sem ófötluðu, góðan stuðning. „Það getur tekið listamenn töluverðan tíma að stimpla sig inn í íslenskt menning- ariíf. Um leið og einhver útskrifast þarf hann að koma sérað og vera sýnilegur. Og efþröskuld- urinn er hár fyrir ófatlaða listamenn, erhann enn þá hærri fyrir þá fötluðu“ „Það getur tekið listamenn tölu- verðan tíma að stimpla sig inn í ís- lenskt menningarlíf. Um leið og ein- hver útskrifast þarf hann að koma sér að og vera sýnilegur. Og ef þrösk- uldurinn er hár fýrir ófatlaða lista- menn er hann enn þá hærri fyrir þá fötluðu. Hér eru fjölmargir fatlaðir listamenn sem hafa mikið fram að færa. Tækifærin eru kannski ekki ávallt til staðar og því mikilvægt að listahátíð á borð við þessa sé fastur punktur í tilverunni sem hún svo sannarlega er.“ Margrét kannast ekki við að for- dómar í garð fatlaðra listamanna sé mikið vandamál. „Ég hef ekki orðið vör við það. Við eigum fullt af færu fötluðu listafólki sem einungis skortir tækifærin til að koma sér á framfæri, en ekki hæfileikana. Strax á fyrsta sýning- ardegi í Norræna húsinu seldust fjölmörg verk eftir fatlaða lista- menn sem sannar að þeir eiga fullt erindi til listsköpunar. Ég þekki ekki til hlítar hvernig fatlaðir lista- menn fóru að áður en þessi hátíð kom til sögunnar, en þó veit ég að litlar sýningar voru haldnar hér og þar. Til dæmis var Níels Hafstein á Safnasafninu ötull við að safna og sýna myndlist eftir alþýðufólk og fólk með fötlun, en þetta hefur að- allega verið einstaklingsframtak að mínu viti. En auðvitað mættu fleiri rétta fram hjálparhönd og spurning hvort Samband íslenskra myndlist- armanna eða kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, CIA, gætu tekið höndum saman. En annars er List án landamæra komin til að vera auðvitað og ekkert nema gott um það að segja,“ sagði Margrét að lokum og minnti á að enn væru sýn- ingar í Norræna húsinu til 3. júní, í Vin á Hverfisgötu til 18. maí og á Amtsbókasafninu á Akureyri til 30. júní. Frekari upplýsingar um listahá- tíðina má nálgast á slóðinni: www. listanlandamaera.blog.is. Hroki Ingibjargar „Núna erég búinn að lesa það tvisvarí Mogganum, á tveimur dögum, að Ingi- björg Sólrún hafi verið svo rosalega hrokafull þegar hún talaði við Sjálf- stæðisflokkinn. [...] Hvað gerðist? Fór Ingiþjörg fram á að vera þéruð? Var hún í frönskum hefðarklæðum, með hvítt púður og lét þjóna sina sjá um að tala? Skellihló hún að öllu sem Geir sagði? Gerði hún lítið úr menntun hans? Vaxt- arlagi? Skeggrót? Hvað í ósköpunum á Mogginn við? Og hvurslags eiginiega fréttaflutningur er þetta?" Guðmundur Steingrímsson gummisteingrims.blog.is folk@bladid.net 85% vilja ekki S og D „35% vilja stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfyikingar. Flestir landsmenn, eða tæp 35 prósent vilja helst ríkis- stjórn Sjálfstæöisflokks og Samfylk- ingar, samkvæmt nýrri skoðanakönn- un Fréttablaðsins. Næstflestir, eða rösklega 32 prósent vilja óbreytt stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, mun færri, eða átján og hálft prósent, vilja vin- stri stjórn Samfylkingar, Framsókn- arflokks og Vinstri grænna og fæstir vilja ríkisstjórn Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks, eða rösk 14 prósent.” ÞórJónsson hydroman.blog.is Margrét M. Norðdahl Segir að meira megi gera fyrir fatlað listafólk., Blaöll/Cyþór k SMÁAUGLÝSINGAR 5103737 blaðiðan SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET Su doku HERMAN 8 2 4 3 1 7 8 5 6 1 6 1 5 8 3 3 2 4 6 9 1 5 2 7 4 6 5 2 7 9 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers niu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem ugp eru gefnar. eftir Jim Unger 7 23 © LaughingSlock Inlemationa! Inc./disl. by Uniled Media, 2004 Elli! fsland í dag er ekki SVONA leiðinlegt.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.