blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 17

blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 17
blaöið FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 25 menning@bladid.net Luther Thomas á tónleikum Ameríski altsaxófónleikarinn og rapparinn Luther Thomas heldur tónleika ásamt Matthíasi Baldurssyni saxófónleikara og Drop Dead Funk Group á Live við Frakkastíg í kvöld klukkan 22 og á Domo bar annað kvöld klukkan 23. Strengjakuartettar Jóns Leifs Strengjakvartett Kammersveitar Reykjavíkur flytur strengjakvar- tetta Jóns Leifs í Listasafni islands klukkan 20 í kvöld. Kammer- sveitin hefur gefið út tvo geisladiska með verkum Jóns Leifs: Jón Leifs árið 1999 og Elegíur árið 2005. Jafnvíg á fiðlu og Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Rósa Jóhannsdóttir sópran heldur einsöngstónleika við undirleik Krist- ins Arnar Kristinssonar píanóleik- ara í Áskirkju í dag klukkan 17. Um er að ræða burtfararprófstónleika frá Söngskólanum í Reykjavík, en það sérstaka við þessa tónleika er að þar útskrifast sópransöngkona sem jafnframt er lærður fiðlukennari. „Ég hef hingað til verið fiðluleikari fyrst og fremst og sinnt fiðlukennslu, en nú er ég vonandi orðin jafnvíg á sönginn og fiðluna," segir Rósa. Hún segist vissulega geta gert hvort tveggja i einu, spilað á fiðluna og sungið, þó svo að það standi ekki til á tónleikunum í dag. „Það er mjög krefjandi að syngja og spila á fiðlu enda krefst það mikillar nákvæmni að ná fram hreinum, fallegum tón í báðum tilfellum. En vitaskuld er það hægt með vissri kúnst og æf- efnisskrá tónleikanna í dag eru aríur og klassík eftir Brahms, Schumann og fleiri auk eins dægur- lags eftir Jóhann Helgason. „Nám í Söngskólanum er klassískt söng- nám og kennarinn rninn, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, er fyrst og fremst óperusöngkona. Hún hefur þó kennt mér svo vel tækni sem nýt- ist í öllum söng, enda mjög fjölhæf. Hún er mjög dugleg að sjá kosti og styrkleika lrvers nemanda fyrir sig, en eins og frægt er orðið hefur hún kennt Eivöru Pálsdóttur og mörgum öðrum,“ segir Rósa og bætir því við að sjálf sé hún í þjóðlagahljómsveit- inni Rósin okkar, enda hafi hún álíka mikinn áhuga á þjóðlagasöng og klassískum söng. Þjóðlagatónlist í uppáhaldi Á milli þess sem Rósa þenur radd- böndin með þjóðlagahljómsveit sinni og syngur í brúðkaupum og jarðarförum starfar hún sem fiðlu- kennari. „Það er mjög gott að geta gert hvort tveggja, enda var það allt- af markmiðið þegar ég hóf söngnám meðfram fiðlunáminu. En eftir að ég lauk fiðlunáminu og var byrjuð að sinna fiðlukennslu ákvað ég að söng fara í söngnámið af fullum krafti og lief verið í því síðastliðin fjögur ár,“ útskýrir hún. Markið sett hátt Framundan lijá þessari fjölhæfu tónlistarkonu er áframhaldandi spilamennska og kennsla. „Ég held og vona að ég eigi ekki eftir að þurfa að velja annað hvort sönginn eða fiðl- una fram yfir hitt, enda fer þetta vel saman. Næst á dagslcrá hjá mér eru auðvitað tónleikarnir í Áskirkju, en draumurinn er að gefa út geisladisk í framtíðinni. Ég þykist vita að nú tek- ur við eilífur barningur við að koma sjálfri mér á framfæri til að stefna hærra. Ég set markið að sjálfsögðu hátt, annað þýðir auðvitað ekki.“ Tómas R. hjá Putumayo Hio virta bandaríska plotufyr- irtæki Putumayo World Music, sem er þekkt fyrir safndiska sína með fjölbreytilegri heimstónlist, gefur út sinn fyrsta latíndjassdisk þann 26. júní næstkomandi. Disk- urinn nefnist Putumayo Presents Latin Jazz og má þar finna flesta þekktustu flytjendur latíndjassins, svo sem Tito Puente, Machito, Ray Barretto, Poncho Sanchez, Hilton Ruiz og Eddie Palmieri. Eini Evrópumaðurinn sem á lag á disknum er svo Tómas R. Einars- son. Lagið hans á disknum heitir Rumdrum og er á geisladisknum Havana frá árinu 2003. Samnorrænt óperustjóraþing íslenska óperan stendur fyrir óperustjóraþingi á morgun, 18. maí, en þar koma saman óþeru- stjórar frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Þing sem þessi eru haldin árlega, en á þeim gefst óperustjórum landanna tækifæri til að bera saman bækur sínar, skiptast á skoðunum og miðla reynslu sinni. Þingið, sem stendur yfir í einn dag, endar á því að Óperu- deigla Islensku óperunnar kynnir þrjár nýjar íslenskar óperur í smíðum en það eru óperurnar Söngvar haustsins eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Hallgrím H. Helgason, Klakahöllin eftir Áskel Másson og Hel eftir Sigurð Sævarsson og sviðslistahópinn Hr. Níels. Wassoulou- tónlist í Reykjavík Tónlistarhátíðin Vorblót - Rite of Spring hefst í kvöld með tón- leikum malísku söngkonunnar Oumou Sangaré og Tómasar R. Einarssonar á Nasa. Oumou Sang- aré er ein vinsælasta og virtasta söngkona Afríku og á að baki litríkan tónlistarferil. Hún er stundum kölluð „söngfugl Wasso- ulou-tónlistarinnar“ en hún á rætur sínar að rekja til hefðbund- innar veiðitónlistar Vestur-Afr- íku og innihalda textar hennar oft tilvísanir í ást, sjálfstæði og kvenfrelsi. Fyrsta Vorblótið, sem haldið var hér í fyrra, hlaut góðar viðtökur innlendra sem erlendra blaðamanna. Blaðamenn frá BBC, Mojo, Songlines og fleiri miðlum mættu þá á hátíðina og voru hæst- ánægðir með dagskrá og umgjörð hennar. Búist er við blaðamönn- um frá fleiri fjölmiðlum á hátíð- ina i ár. Meðal annarra listamanna sem koma fram á hátíðinni, sem stend- Funeral Band, skoska hljómsveit- ur til 19. maí, eru Goran Bregovic in Salsa Celtica og Stórsveit Sarnú- og hljómsveit hans Wedding and els J. Samúelssonar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.