blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 18
blaðiö
26
FIMMTUDAGUR 17. MAI 2007
48k
48K@bladid.net
Tölvur & tækni
Lengi nafnlaus
Firefox-vafrinn vinsæli á rætur sínar aö rekja til ársins 2001. Mozilla-vafrinn þótti orðinn of stór og klunnalegur, því var hafist handa
við gerð nýs vafra sem væri lítill og hraður. [ september 2002 kom út fyrsta útgáfa vafrans og var hann kallaður Pheonix. Forritið
hélt því nafni fram til apríl 2003 þegar nafninu var breytt vegna kæru frá fyrirtækinu Pheonix Technologies. Nýja nafnið var Firebird,
en það entist ekki lengi því það nafn var í notkun. (febrúar 2004 fékk vafrinn því nafnið sem netverjar þekkja og elska, Firefox.
, u,
©
Kílóbæt
FYRIR ÞÁ ALLRA HÖRÐUSTU Aðdáendur
Xbox360 og Simpson-þáttanna geta nú
sameinað áhugamál sín, en
Microsoft mun gefa út sérstaka
Simpsons Xbox360-vél. Er
þetta gert í tilefni væntanlegrar
Simpson-myndar. Vélin er þó
ekki byggð á nýju Elite-vélinni,
heldur er þetta eldri útgáfan. Og
til að bæta gráu ofan á svart
verða aðeins 100 stykki
framleidd og ekkert
þeirra fer í sölu, heldur
verða eintökin gefin
með ýmsum leikjum.
ALVEG EINS OG SHUFFLE Creative-tölvu-
fyrirtækið hefur lengi verið helsti keppni-
nautur Apple á MP3-spilaramarkaðnum.
Creative kynnti nýjan spilara nýlega
sem nefnist Zen Stone, hann
þykir þó líkjast iPod Shuf-
fle-spilara Apple ansi mikið.
Spilarinn verður fáanlegur
í 14 litum, en helsta söluat-
riði Zen Stone er þó verðið,
aðeins tæpar 4000 kr. fyrir
1gb útgáfu.
Á AÐ OPNA ÞETTA? Þrátt fyrir að fólk
um allan heim bíði iPhone-símans með
óþreyju er ekki skortur á gagnrýnisrödd-
um. Helsta gagnrýnin er sú að síminn er
lokaður forritum sem ekki
eru frá Apple. Tilgangurinn er
að sögn Appie sá að viðhalda
stöðugleika símans. En nú ber-
ast þær sögur á vefnum að
Steve Jobs og aðrir lykilmenn
innan Apple séu að íhuga að
opna símann „takmarkað".
ZUNE REYNIR SITT BESTA Það gengur
ekki vel hjá Microsoft að selja Zune-spil-
arann. Eitt helsta söluatriði hans var Wi
Fi-búnaðurinn, hins vegar var hann ekki
nýtturtil fulls, aðeins til að
skiptast á lögum úr einum
spilara í annan. En sögur
herma að væntanleg hug-
búnaðaruppfærsla muni
* gera spilaranum kleift að
hlaða niður lögum beint ■ í
úr Zune-netbúðinni í
spilarann.
ENDALAUSAR TAFIR Metal Gear
NÆSTUM TILBÚINN Samkvæmt Rockstar-
tölvuleikjafyrirtækinu er Grand Theft Auto
4 næstum tilbúinn; svo nákvæmir voru þeir
að leikurinn var nákvæmlega 66% tilbúinn.
Leikurinn gerist í Liberty City eins og
Grand Theft Auto 3, en borgin sjálf mun
vera sú stærsta sem þeir hafa gert. En
smáatriðin í borginni
ásamt mun betri gervi-
greind eru það sem
framleiðendurnir státa
sig hvað mest af.
Megabæt
Solid er vægast sagt beðið með óþreyju.
Þrálátur orðrómur er um að hann muni
einnig koma út á Xbox360 en ekki aðeins
PlayStation3 eins og fyrri leikirnir. Konami
tilkynnti í vikunni að leikurinn
myndi ekki koma út
fyrsta september
eins og áætlað var, í
heldur tefjast þar til '
mars 2008. Hefur þetta
aðeinsýtt undir orðróm-
inn um að Konami sé að
vinna að Xbox-útgáfu.
Sjónvarpsumhverfið breytist:
Framtíðin er í
hárri upplausn
Blu Ray á Xbox360?
Það hefur vart farið framhjá þeim
sem fylgjast með tæknifréttum að
um þessar mundir
stendur yfir hart
stríð á milli Blu-
ray-tækninnar
og HD-DVD um
hvort kerfið kemur
til með að leysa
DVD-tæknina af
hólmi og hvort
þeirra mun enda
í rykföllnum skáp
líkt og Betamax-víd-
eótækin og Sega
Dreamcast-leikja-
tölvurnar. Risarnir
á leikjatölvumark-
aðnum hafa veðjað
hvor á sitt kerfið.
PlayStation 3
skartar innbyggðu
Blu-ray-drifi á
meðan Xbox 360-
eigendum hefur
staðið til boða að
fjárfesta í utanáliggjandi HD-DVD-
drifi.
Nú gengur orðrómur m
að Peter Moore, stjórn-
andi leikjatölvudeildar
Microsoft, sé farinn
að hallast að því
að fyrirtækið hafi
veðjað á rangan
hest í þessu kapp-
hlaupi. I nýlegu
viðtali við japanska
fjölmiðla greindi hann
frá því að fyrir jól verði
hugsanlega komið utan-
áliggjandi Biu-ray-drif
á markaðinn fyrir Xbox
360. Þá gætu Xbox-eig-
endur horft á
Blu-ray-myndir,
það er að
segja ef
Blu-ray
endar
sem ráð-
andi kerfið.
Eftir Elías R. Ragnarsson
elli@bladid.net
Háupplausnarsjónvörp eru að ryðja
sér til rúms á heimilum um heim
allan. Gömlu CRT-túpusjónvörpin
sjást varla í raftækjabúðum og all-
ir stóru raftækjaframleiðendurnir
hafa hætt framleiðslu á þeim. Ólíkt
gömlu CRT-sjónvörpunum getur
það verið flókið að kaupa sér nýjan
flatskjá. Allar tölurnar sem birtast í
auglýsingum eru það sem ruglar lík-
legast flesta. Talað er um upplausn-
ir, skerpu og svartíma pixla.
Staðlarnir
Það eru í raun tveir staðlar af há-
upplausnartækjum. Sá algengasti
nefnist 72op, en upplausnin í hon-
um er 1280x720 pixlar, en það er
fjöldi punkta í myndinni á breidd
og hæð. Langflest tæki sem seld eru
falla undir þennan staðal og bera
oftast merkið „HD Ready“. Þessi
tæki hafa þó örlítið hærri upplausn
en myndin, en tækin hafa upplausn-
ina 1366x768 pixla, því stækka þessi
tæki 72op efni örlítið. Stækkunin er
þó svo lítil að erfitt er að sjá gæða-
missinn.
Allra dýrustu tækin eru kölluð
„Full HD“, en flokkurinn sem þau
falla í nefnist io8op. Upplausn
slíkra tækja er 1920x1080 pixlar.
Báðir þessir staðlar bera bókstaf-
inn „P“, en hann stendur fyrir Pro-
gressive Scan sem er sú aðferð sem
stafrænir skjáir nota til að teikna
hreyfimyndir. Til er staðall sem
fellur mitt á milli 72op og io8op,
sem nefnist 1080Í. Upplausnin er
sú sama og í io8op en notast er við
eldri aðferð sem nefnist interlacing
til að sýna myndina.
Ekki allir miðlar jafnir
Það þarf þó að hafa í huga að þótt
skjáirnir hafi þessar ofur háu upp-
lausnir og efni úr leikjatölvum, Blu
Ray og/eða HD DVD-spilurum, líti
ótrúlega vel út á þessum tækjum,
eru sjónvarpsútsendingar enn þá
sendar út í venjulegri sjónvarpsupp-
lausn, sem er 768x576pixlar.
Þegar talað er um skerpu í sjón-
vörpum eru nefndar tölur eins og
1000:1. Þessar tölur merkja muninn
á svörtum og hvítum; því meiri
munur sem þar er á milli, því meiri
litadýpt. Mikið er talað um svart-
íma pixla, en hann er mældur í
millisekúndum. Svartíminn stend-
ur fyrir tímann sem það tekur fyrir
hvern pixil að breytast úr svörtum
lit yfir í hvítan. Lægri svartími þýð-
ir mýkri hreyfingar. Á eldri LCD-
skjáum sem voru með háan svart-
íma, yfir 2oms, mátti oft sjá draug
í myndinni, sérstaklega í snöggum
hreyfingum.
Sjónvarpsútsendingar tefja
Það er þó nokkuð víst að iðnaður-
inn er að færa sig yfir í háupplausn.
Gömlu CRT-tækin eru varla fram-
leidd lengur og verð á flatskjám
fellur ár frá ári. DVD-staðallinn er
að eldast og nú keppast tveir miðlar
um háupplausnarmarkaðinn, Blu
Ray og HD-DVD. Það eina sem hæg-
ir á útbreiðslu háupplausnartækja
eru líklegast sjónvarpsútsendingar
sem enn eru í lágri upplausn.
Góð Formúla?
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiða
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NHT
Stundum rekst maður á leiki þar
sem allt er eins og best verður á kos-
ið. Grafíkin er svo raunveruleg að fólk
þorir varla að blikka til að missa ekki
af einu einasta smáatriði. Hljóðið er
einstaklega gott eða að minnsta kosti
ótrúlega Hkt því fyrirbæri sem verið
er að reyna að líkjast og spilunin er
góð og stjórnkerfið pottþétt. En þrátt
fyrir allt þetta er leikurinn hundleið-
inlegur. Formula One Championship
Edition fellur einmitt í þessa gryfju.
Það er greinilegt að meiri kraftur
PlayStation 3-
vélarinnar er
að skila sér
i stórbættri
grafík. Bíl-
arnir, braut-
irnar og nán-
asta umhverfi brautanna er
gullfallegt að sjá og er vel þess virði
=77%
að minnast sérstak-
lega á vatnið sem
sest á skjáinn
þegar ekið er í
rigningu. í þeim
tilvikum er á köflum erfitt að greina
á milli tölvuleiks og raunveruleik-
ans. Hljóðið i leiknum er samsafn af
hefðbundnum vélarhljóðum og ískri
í dekkjum og hvað raunveruleika
hljóðsins varðar hafa framleiðendur
hitt naglann á höfuðið.
Helsti galli leiksins, og um leið
helsti kostur hans, er sá að þetta er
Formúlu eitt-leikur. Þeir sem fylgjast
með Formúlunni og hafa spilað þessa
leiki í gegnum tiðina munu án efa
elska þennan út af lifinu. Það er óhætt
að segja að þessi leikur sé besti Form-
úlu eitt-leikurinn enn sem komið er.
Hins vegar er það svo að þeir sem
hafa ekki gaman af Formúlunni
munu án efa finna fátt skemmtilegt
við þennan leik. Hasarinn er ein-
ungis rétt í byrjun og þeir sem vilja
ofsafenginn kappakstur frá upphafi
til enda munu líklega verða fyrir von-
brigðum.