blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007
blaðið
HVAÐ SÁSTU
Völundarhús
skógarpúkans
„Ég hef nú ekki
farið í bíóhús
mjög lengi
en síðast sá
ég ævintýra-
myndina
Völundarhús
skógarpúkans
eftir spænska
leikstjórann Guillermo Del
Toro. Þar er á ferð mjög frum-
leg og skemmtileg mynd,“
segir Kristjana Skúladóttir
leikkona.
„Ég sá hins vegar einnig mynd-
ina The Departed og fannst
sú mynd algerlega frábær. At-
burðarásin í myndinni er mjög
hröð og spennandi og endirinn
kom mjög á óvart, enginn
týpískur amerískur endir þar
á ferð. The Big Lebowski er
líka ein af mínum uppáhalds-
myndum en íslenskar myndir
eru mér ofarlega í huga þegar
ég hugsa um mínar uppá-
haldsmyndir og mér fannst
til dæmis Börn og Fullorðnir
algerar tímamótamyndir í ís-
lenskri kvikmyndagerð.”
Börn og Foreldrar
frábærar
„Ég man ekki
hvað ég sá
síðast í bíó,
það er svo
langt síðan
ég fór,“ segir
Rúnar Freyr
Gíslason
leikstjóri. „En
síðasta bíómynd sem ég sá
var Foreldrar eftir Vesturports-
krakkana. Hún var frábær. Við
erum alltaf einhvern veginn að
gera betri og betri bíómyndir.
Foreldrar var líka frábærlega
leikin. Ég sá Börn líka og þær
voru bara hvor annarri betri. Ég
reyni nú að sjá alltaf íslenskar
bíómyndir, það er eiginlega
bara skylda, maður verður að
gera það. En ef ég á að nefna
uppáhaldsmyndir allra tíma þá
verð ég að nefna þrjár: Deer
Hunter, One Flew Over the
Cuckoo’s Nest og Midnight
Cowboy. Annars er ég ekkert
svo duglegur að taka mér
spólur. Það fer aðallega eftir
því hvað það er mikið að gera
(vinnunni. Ég vinn svo mikið á
kvöldin að ég horfi í raun ekk-
ert svo mikið á sjónvarp."
Songleikurinn Spiderman
Samlestur eöa samsöngur á söngleiknum um Spiderman hefst í júlí en söng-
leikurinn veröur settur upp á Broadway í New York. Julie Taymor, leikstjórinn
sem leikstýrði söngleiknum Lion King, hefur verið fengin til aö leikstýra en
engir aðrir en Bono og The Edge úr U2 sjá um aö semja tónlistina.
bíó
VÆNTANLEGT...
níunda áratugarins
Á níunda og fram eftir tíunda áratug síðustu aldar voru sérstaklega vinsælar löggumyndir um tvo kaldhæðna
félaga sem ýmist náðu ekki saman til að byrja með, vegna þess að einn var svartur og hinn hvítur, eða þá að þeir
höfðu starfað saman svo lengi að þeir elskuðu hvor annan meira en konurnar sínar. Það sem þessar myndir eiga
auk þess sameiginlegt er að tvíeykið slær ítrekað á létta strengi í lífshættulegum aðstæðum.
öðrum hvorum í tvíeykinu má svo skipta út fyrir mann af asískum uppruna, þannig að myndin verður svolítið
.austrið mætir vestrinu". Þá kemur til sögunnar sauðmeinlaus kínverskur bardagahundur sem gerir sér enga grein
fyrir því að hann er kungfú-hetja.
Showtime
loan tuumur anutmaunau Robert De
Niro og Eddie
Murphy
I þessari mynd
er De Niro fúla
týpan sem hefur
verið í löggunni
síðan hann fædd-
ist en Murphy
leikur léttruglaða
gaurinn eins og venjulega.
ISpy
Eddie Murphy
og Owen Wil-
son
Murphy leikur
hér í enn einni
svarturfélagi/hvít-
ur félagi-mynd-
inni en hér er
hann íhlutverki
boxara sem þarf
að starfa með njósnara sem Owen
Wilson leikur.
Die Hard: With a Vengeance
Bruce Willis og
Samuel L. Jack-
son
Willis leikur hér
fráskildu, þung-
lyndu týpuna
sem vill helst
drekka frá sér allt
vit en kemst svo
í kynni við hinn
veraldarvana Jackson sem kallar
ekki allt ömmu sína og skiptast þeir
á kaldhæðnum kommentum gegn-
um myndina.
16 Blocks
Bruce Willis og
Mos Def
Willis er hér jafn
fúll en aðeins el-
dri en í Die Hard
og eríhlutverki
lögreglumanns
sem fær það
hlutverk að flytja
sniðugan fanga
með munnræpu á milli staða.
ethal Weapon
& 'æóinu af síað.
Fjallar um lögreglumenn sem leysa
glæpi á meðan þeir skiptast á brönd-
48 Hours
Eddie Murphy
og Nick Nolte
Eddie Murphy
var greinilega
eini svertinginn
á níunda áratugn-
um sem þótti
henta í löggutví-
eykismyndir. I
þessari skiptist
hann á fúkyrðum við Nolte.
Beverly Hills Cop
Eddie Murphy
og Judge Reyn-
old
Murphy er hér í
^dæmigeröu Ed-
die Murphy-hlut-
verki þar sem
hann er reytir
af sér brandara
þrátt fyrir að
vera í óvenjuþröngum buxum.
The Last Boy Scout
iff ai þeir EUdie
Murphy hafi aldrei leikið saman í
slíkri mynd.
Rush Hour
Blue Streak
Jackie Chan og
Chris Tucker
Ef Chris Tucker
væri ekki svona
rosalega sniðug-
ur þá væri þessi
mynd eflaust á
vafasömu kyn-
þáttafordóma-
svæði. .
Martin Lawr-
ence og Luke
Wilson
Wilson leikur
lögguna og
Lawrence leikur
glæpamanninn
sem þykist vera
lögga á meðan
hann talar út í eitt.
Aðrar formúlumyndir:
National Security, Money
Talks, Men in Black, Half Past
Dead, Running Scared, Bad
Company
Dæmicjerðar
týpur i tvíeykinu:
Hvita löggan er fráskilin og
drykkfelld keðjureykingamann-
eskja.
Svarta löggan er frekar létt á
bárunni en þegar öllu erá botninn
hvolft kemuríljós að hún er mjög
djúp vegna þess að hún missti
kærustuna sína/mömmu sína/
ömmu sína/systur sína á mjög
voveiflegan hátt.
Hvíta löggan er alltaf ijakkaföt-
um og kann ekki að slappa af, út-
skrifaðist hæst i sinum árgangi og
hefur aldreiþurft að sinna „alvöru"
lögreglustörfum.
Önnur hvor löggan fer ítrekað
óhefbundnar og ólöglegar leiðir
og lögreglustjórinn er alltaf brjál-
aður en það er bara enginn annar
sem getur leyst málin jafn vel.
Zodiac
Leikstjóri: David Fincher
Handrit: James Vanderbilt
Aðalhlutverk: Jake Gyllenhaal,
Mark Ruffalo, Anthony Edwards
og Robert Downey Jr.
Einkunn Imdb: 8,3 af 10 mögu-
legum
Rottentomatoes.com: 87 af
100 mögulegum
Medacritic.com: 77 af 100
mögulegum
Myndin er byggð á bók Roberts Gray-
smith og fjallar um hinn alræmda fjölda-
morðingja Zodiac sem hrelldi ibúa San
Fransisco á sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar. Fjöldamorðinginn sendi
lögreglunni bréf og óskiljanleg skilaboð
á dulmáli og þurfa lögreglumennirnir
sem starfa að málinu að hafa sig alla við
í von um að bjarga næsta fórnarlambi. í
myndinni eru lífi lögreglumannanna gerð
góð skil og hún sýnir hvemig þeir verða
smátt og smátt hugfangnir af fjöldamorð-
ingjanum og máiinu.
The Painted Veil
Leikstjóri: John Curran
Handrit: Ron Nyswaner
Aðalhlutverk: Catherine An, Na-
omi Watts og Edward Norton
Einkunn imdb: - 7,7 af 10
mögulegum
Rottentomatoes.com: 75,5 af
100 mögulegum
Medacritic.com: 69 af 100
mögulegum
Myndin er byggð á sögu eftir W. Somer-
set Maugham og sögusviðið er Kína á
þriðja áratug síðustu aldar. Myndin fjallar
um ungan lækni, Walter, sem leikinn er
af Edward Norton, og konu hans Kitty
sem kemur úr efri stéttum þjóðfélagsins.
Hjónaband þeirra er byggt á sandi og
þegar þau flytjast til Shanghai þar sem
Walter tekur við starfi læknis verður
Kitty ástfangin afungum diplómat. Til
að refsa konu sinnl fyrír framhjáhaldið
býður Walter sig fram til að berjast við
kóiemfaraldur í sveitum landsins og
tekur Kitty með sér. Ferðaiag þeirra og
dvöl á þessum afskekkta stað færir þau
saman og lífþeirra færnýjan tilgang
þegar þau þurfa að takast á við erfiðar
aðstæður í fallegu landi.
í