blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 29

blaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 29
blaðiö FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 37 Kvikmyndaveisla í Cannes Kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í gær og margir af þekktustu leikurum heims voru að sjálfsögðu mættir til Suður-Frakklands af því tilefni. íslandsvinurinn Jude Law, verðandi (slandsvinurinn Norah Jones og leikstjórinn Wong Kar Wai stilltu sér uþþ fyrir Ijósmyndara í gær. Law og Jones léku aðalhlutverkin í kvikmyndinni My Blueberry Nigths sem sýnd verður á hátíðinni. Meðal stórstjarna sem mætt eru á Cannes í ár eru George Clooney, Brad Pitt, Matt Damon og Juliu Roberts en þau nota tækifærið og kynna nýjustu mynd sína Ocean’s13. Scarlett og Reynolds nýtt par Scarlett Johansson og Ryan Reynolds eru nýjasta parið í Holly- wood. Ryan var áður í sambandi við Alanis Morissette en upp úr því slitnaði í febrúar. Scarlett og Ryan eyddu páskunum saman f New York en hafa ekki mikið sést saman síðan þá og hafa reynt að leyna sam- bandi sínu fyrir fjölmiðlum. í vikunni mættu þau hins vegar á skemmtistað hvort í sínu lagi en yfirgáfu staðinn saman og héldust í hendur og eru greinilega reiðubúin að gera sambandið opinbert. Diaz deitar galdrakarl Cameron Diaz virðist loksins vera búin að jafna sig eftir sambandslit sín við Justin Timberlake og er nú komin með nýjan herra upp á arm- inn. Sá starfar sem galdramaður í Las Vegas og heitir Criss Angel. Diaz eyddi nokkrum dögum í Las Vegas þar sem parið fór saman út að borða og horfði á sýningar. Til marks um að Diaz er greinilega mjög hrifin af galdrakarlinum er að hún framlengdi hún dvöl sína f Vegas um nokkra daga til að geta verið lengur með kauða en hann sýnir vinsæla sýningu sem gengur undir nafninu Mindfreak. Diaz sagði nýlega frá því f viðtali að allt sé í góðu á milli hennar og Timberlake og að þeim þyki ennþá vænt hvoru um annað. Diaz létti Ifka á hjarta sínu í sama viðtali þar sem hún kvartaði yfir því að hún fengi oft þá gagnrýni að vera bara sæt en ekki góð leikkona og að aðalástæðan fyrir frægð hennar væri útlitið. Diaz er miður sín yfir þessu og vildi stundum frekar vera Ijót svo að fólk tæki betur eftir leiklistarhæfi- leikum hennar... Fyrstu spor Jennifer Gamer Jennifer Garner hefur hug á því að gerast þáttastjórnandi en hún vinnur nú að undirbúningi nýs spjall- þáttar ásamt vinkonu sinni Lauren Sanchez-Whitesell en eiginmaður hennar er umboðsmaður Ben Af- flecks sem einmitt er eiginmaður Garner. Þátturinn sem um ræðir er ætlaður mæðrum og umfjöllunarefni hans eru börn og barnauppeldi. Jennifer hefur mjög gaman af mömmuhlut- verkinu en hún á 17 mánaða gamla dóttur, Vio- let, og þátturinn mun meðal ann- ars taka á því hvernig það er að vera mamma sviðsljósinu auk annarra hversdags- legri mála í barna- uppeldi. GRILLTIMABILIÐ ER NÚNA! GRILLKJOTIÐ BRAGÐAST BEST MEÐ GRILL MATES FRÁ McCORMICK ^cCormií'l McCorm'1' McCormi^ ^3#Í'McCormicT fioasted Garli< (i Herb^#:, LMt<rortn»*fc

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.