blaðið - 22.05.2007, Blaðsíða 1
Hardox plötui Hönnun / Smíði / Viðgerðir / Þjónusta r
Margföld ending og slitþol! • Slitplötur í miklu urvali • Niðurefnun og efnissala — J • Smíði úr Hardox (M = HÉÐINN = Stórás 6 • IS-210 Garðabæ Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is
18
Gerir upp
gamla traktora
20
Óbilandi vinnuvéla-
áhugi hjá börnunum
22
Venjulegur vinnudagur
kranamannsins
24
Véla- og tæknisýningin
Bauma í Þýskalandi
30
Nýr Unic 295 smákrani
kominn til landsins
32
Eyrún Guöjónsdóttir er
í vinnuvélabransanum
Attföld velta síðan 2003
Verktakafyrirtækið Klæðning
hefur verið eitt af leiðandi fyrir-
tækjum í jarðvinnsluiðnaði og veitt
þjónustuásviðijarðvinnu.yfirborðs-
frágangs, gatna- og lagnagerðar og
klæðningar ásamt öðru. Að sögn að-
standenda Klæðningar hefur veltan
áttfaldast á síðastliðnum þremur
árum og má þvi segja að meira en
nóg sé að gera. Helsta ástæða aukn-
ingar á veltu mun vera gríðarlega
góð verkefnastaða þar sem lögð er
áhersla á faglega tæknilega getu.
,Það er alveg brjálað að gera hjá
okkur og verkefnastaðan mjög góð,“
segir Guðjóna Björg Sigurðardóttir,
gæðastjóri Klæðningar, en fyrir-
tækið hefur verið eitt af stærri verk-
takafyrirtækjunum á Hellisheiði og
tekist þar á við nánast allar tegundir
verkefna er snúa að mannvirkjagerð.
,Þá höfum við verið í gatnagerð fyrir
Orkuveituna í sumarbústaðabyggð
í Víðinesi ásamt því að grafa grunn
að fyrirhuguðum Norðurturni
við Smáralind. Einnig er nýlega
búið að skrifa undir samning um
stækkun á íþróttasvæði FH-inga í
Kaplakrika,“ bætir Guðjóna við. Að
hennar sögn hefur fyrirtækið yfir
150 starfsmenn í vinnu að undirverk-
tökum meðtöldum.
Festu kaup á malbikunarfyrirtæki
Stefna Klæðningar er að verða al-
hliða fyrirtæki í mannvirkjagerð og
geta þannig séð um allt frá jarðvegs-
yfirborði upp í stærri og viðameiri
verkefni. í ljósi þessa festi fyrirtækið
kaup á malbikunarfyrirtæki nú á
dögunum með það fyrir augum að
styrkja fyrirtækið enn fremur.
„Með þessum kaupum hafa stoðir
rekstrarins styrkst, áhættan verður
dreifðari auk þess sem við getum
tekið að okkur flóknari verkefni
og unnið þau sjálf frá upphafi til
enda,“ segir Karl Helgi Jónsson verk-
efnastjóri. Hann bætir við að mikil
áhersla hafi verið lögð á nýjungar í
tæknibúnaði í tækjum og bílum og
hyggst fy rirtækið verða fremst á sviði
tækninýjunga. „Tækninýjungar gefa
okkur færi á að ná faglegri vinnu-
brögðum og auðvelda úrlausn á erf-
iðum og flóknum verkefnum.“
Lýsing hefur byggt upp orðspor sem traust fyrirtæki með afburða starfsfólk og persónulega
þjónustu. Síðastliðin 20 ár hefur Lýsing stutt við bakið á fjölda fyrirtækja víðsvegar um landið
og býður upp á fjölbreytta möguleika í fjármögnun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Lýsing - fjármögnun f takt við þínar þarfir
LÝSING
130 m
á hæð
„GP kranar eiga á annan tug bílakrana af öllum stærðum og
gerðum. Viö eigum að baki langa og farsæla vinnu fyrir
fjölda fyrirtækja á íslandi og þegar við þurfum fjármögnun
er Lýsing það fyrirtæki sem besta þjónustu veitir.
Starfsfólk Lýsingar sinnir þörfum viðskiptavina sinna."
Gunnþór Kristjánsson forstjóri, GP krana
LYSING.IS // 540 1500