blaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 1
Sæl með stjórnina
Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir er alsæl með
nýjan stjórnarsáttmála
enda er þar lofað ýmsu
sem hún hefur barist 11
fyrir i velferðar- og &
jafnréttismálum.
Keypti Biblíuna
Paris Hilton undirbýr
sig nú fyrir fangelsis-
vistina og hefur keypt
sér lestrarefni, m.a. i
Biblíuna sem mun A
sjálfsagt veita henni
frið í hjarta. 4"
Fyndinn pabbi
Bjarni Haukur Þórsson hefur
verið með fimmtíu sýningar
á leikriti sínu, Pabbinn, og
ætlar nú að fara með
verkiðumhverfislandið
og til útlanda.
95. tölublaö 3. árgangur
fimmtudagur
24. maí 2007
FRJALST, OHAÐ & 0Kr ^IS!
Ur kjötborði
Fjallalamb - Grill læri
30% afsl.
Fjallalamb
Blandaöar lærisneiöar
30% afsl.
Fjallalamb ofnsteik
30% afsl.
Borgarnes grillkjöt
30% afsl.
Opid alla daga frá'kl. 10.-20
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
Fjármálageirinn hefur gríðarlegt aðdráttarafl fyrir viðskiptafræðinga:
Fjölgar um 500 á ári
■ Hausaveiðar fyrirtækja ■ Krafa um háskólamenntun
■ Með fleiri en eitt tilboð
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Nýútskrifuðum viðskiptafræðingum fjölgar að
jafnaði um 500 á ári, samkvæmt upplýsingum frá
Félagi viðskipta- og hagfræðinga. Á skólaárinu
sem var að Ijúka voru rúmlega 1800 nemendur í
grunnnámi í viðskiptafræði í háskólunum fjórum
hér á landi og um 500 í mqistaranámi. Metaðsókn
er í framhaldsnám næsta haust.
„Markaðurinn virðist óseðjandi núna. Það fá allir
vinnu sem kunna eitthvað í fjármálum og reikn-
ingshaldi. Krakkarnir sem útskrifast núna í júní
voru flest búin að ráða sig í vetur og flest voru með
fleiri en eitt atvinnutilboð,“ segir Þröstur Olaf Sig-
urjónsson, lektor við Háskólann í Reykjavík og for-
maður Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
Þröstur segir fjármálageirann hafa gríðarlega
mikið aðdráttarafl auk þess sem hann taki líka
mikið til sin. Nú sé beinlínis um hausaveiðar að
ræða. „Stærri fyrirtæki hafa beðið skólann um
að senda sér lista með nöfnum 50 bestu nemend-
anna. Glitnir sendi til dæmis hverjum og einum
nemanda af listanum boðskort með undirskrift
Bjarna Ármannssonar bankastjóra. Nemendum
var boðið í hanastél og þeir beðnir um að koma
með ferilskrá og svo ræddu þeir við stjórnendur
bankans. Sumir nemendanna voru búnir að ráða
sig 9 mánuðum fyrir útskrift. Þetta hafa fyrirtæki
erlendis gert í tugi ára en ég sá í fyrsta skipti vísi að
þessu hér á landi síðastliðið haust.“
Nemendur í grunnnámi í lögfræði voru rúmlega
900 í háskólunum fjórum á þessu skólaári. í meist-
aranámi í lögfræði voru tæplega 300 nemendur.
Alcoa vill til
Grænlands
Alcoa, sem rekur álverið á Reyðarfirði,
og grænlenska heimastjórnin komust
f gær að samkomulagi um að kanna
möguleikann á að reisa 340 þúsund
tonna álver þar í landi. Ef af verður mun
rísa vatnsaflsvirkjun til að mæta orku-
þörf þess. Áætlað er að 600 bein störf
skapist vegna álversins.
FRÉTTIR » 2
Jón er hættur
Jón Sigurðsson sagði af sér í gær emb-
ætti formanns Framsóknarflokksins
aðeins örfáum klukkustundum eftir að
hann sagöi allar fréttir um afsögn tómar
ýkjur. Jón sagðist ekki vera að axla
ábyrgð á úrslitum kosninga heldur væri
nauðsynlegt að formaður flokks í stjórn-
arandstöðu sæti á þingi.
FRÉTTIR »10
„Og þá hefur Þingvallastjórn veríð mynduð,” sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra þegar hann innsiglaði stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar með handabandi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, verðandi utanríkisráðherra. slatumx
Stefnuyfirlýsing Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar:
Velferðaráherslur áberandi
Miklar breytingar eru fyrirhugaðar í
velferðarmálum á Islandi samkvæmt
stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Verk-
efni og eðli ráðuneyta taka einnig breyt-
ingum. Stefnt er að rammasamkomulagi
um verndun og nýtingu náttúru landsins,
endurskoðun landbúnaðarkerfisins og
eftirlaunakjara ráðherra og þingmanna.
Þá er stríðsreksturinn í Irak harmaður
en ekkert sagt um hvort (sland mun
hverfa af lista hinna staðföstu þjóða.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar, sagðist ánægð með
samkomulagið. „Þau tólf stefnumál
sem við lögðum megináherslu á fyrir
kosningarnar held ég að endurspeglist
öll meö einum eða öðrum hætti í þessari
stefnuyfirlýsingu."
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði það hafa verið prófstein
á samstarfsvilja flokkanna að koma
saman yfirlýsingunni og að það hafi tek-
ist ágætlega. „Viðteljum að stefnumið
okkar fyrir kosningar komi ágætlega
fram í stefnuyfirlýsingunni og það er
mjög ánægjulegt ef báðir flokkar aeta
sagt þaö sama hvað það varðar. Á því
byggist samstarfið."
FRÉTTIR » 4 og 5
Köttur breytist
í engil
Þeir eru margir sem telja sig hafa
séð engla, en þeir eru færri sem segj-
ast eiga einn slíkan. Kínversk kona
heldur því fram að vængir hafi tekið
að vaxa á kött hennar og að hann sé
nú eins og kattarengill.
I fyrstu hafi vöxturinn byrjað sem
tveir litlir hnúðar, en siðar þróast út
í 4 sentimetra loöna vængi. Konan
segir að hnúðarnir hafi myndast
eftir að kisi varð fyrir kynferðislegri
áreitni. „Fyrir mánuði fóru margir
kvenkyns kettir aö áreita hann og þá
uxu vængirnir.“
Sérfræðingar segja að vængirnir
séu líklegast tilkomnir vegna stökk-
breytingar, en segja að kisi ætti að
lifa fullkomlega eðlilegu lífi að öðru
leyti. Enn sem komið er hefur honum
ekki tekist að fljúga.
MEYTENDAVAKTIN
Bensín í sjálfsafgreiðslu
Olíufélag Krónur
OB 121,10
Orkan 121,00
Atlantsoiia 121,10
Ego 121,10
Skeljungur 122,90
Olis 122,10
Algengasta sjálfsafgreiðsluverö á 95 okt. bensínl
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
jgH USD 61,85 -0,61 ▼
OS GBP 122,86 -0,11 ▼
55 OKK 11,19 -0,45 ▼
• JPY 0,51 -0,59 ▼
M EUR 83,42 -0,45 ▼
GENGISVÍSITALA 113,07 -0,44 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 8.130,62 0,40 ♦
VEÐRIÐ I DAG
VEÐUR » 2