blaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@BLADID.NET
22
Tyrkland og Ten-
erife slá í gegn
22
Sjóarinn síkáti
10 ára
24
Heimsborgin
Montreal
26
Klassísku tjöld-
in alltaf vinsæl
28
Þakgil - paradís
fyrir göngufólk
28
Mikilvægi góðrar
sólarvarnar
Langisjór einn af falleg-
ustu stöðum landsins
Á hálendi íslands er að finna
nokkrar af fallegustu náttúru-
perlum landsins. Þó svo að ferðir
um hálendið hafi færst í vöxt hafa
fáir íslendingar skoðað þessar nátt-
úruperlur. Ein af þessum perlum er
Langisjór suðvestan Vatnajökuls.
Langisjór er um 20 km langur og
um 2 km breiður. Hann er á milli
Tungnaárfjalla með Breiðbak sem
þekkt kennileiti og Fögrufjalla þar
sem Sveinstindur gnæfir hæstur.
Langisjór er stærsta tæra fjallavatn
landsins. Frá Torfajökli til Vatna-
jökuls liggja margir beinir móbergs-
hryggir frá suðvestri til norðaust-
urs. Langisjór er í miðju ósnortnu
víðerni, margar eyjar eru í vatninu
og umhverfið í kring er gróðurlaus
auðn. Mikil eldvirkni hefur mótað
þessa stórbrotnu náttúru.
Ferðskrifstofan Útivist er ein af
þeim sem bjóða upp á gönguferðir
umhverfis Langasjó. Þetta eru
bakpokaferðir og gist er í tjöldum,
en síðustu nóttina er gist í skála
sem byggður er á grunni gamals
gangnamannakofa.
Skúli H. Skúlason, starfsmaður Úti-
vistar, segir að ýmist sé gengið með-
fram vatninu eða hærra uppi. „Þegar
komið er að norðurenda Langasjós
eru ferðamenn komnir í návígi við
Vatnajökul og upptök Skaftár. Við
munum ganga austur í átt að Fögru-
fjöllum sem bera svo sannarlega
nafn með rentu. Útfall er úr vatninu
skammt frá norðurenda þess þar sem
vatnið fellur út um einskonar yfirfall
niður í fallegan foss. Nokkru sunnar
er komið í Fagrafjörð þar sem tilvalið
er að setjast niður og jafnvel setja
upp tjöld og hafa náttstað. Að lokum
er gengið á Sveinstind en þaðan er
frábært útsýni yfir Langasjó. Skúli
segir að þetta sé ólýsanleg upplifun,
fólk verður hreinlega agndofa. And-
stæður náttúrunnar eru miklar, tært
fjallavatnið, stórir fjallgarðar og ná-
vígið við jökulinn mynda einhverja
ólýsanlega orku. Þetta er fallegasti
staður á hálendi íslands.
lláii fi -í Él M fÉÉ V Ök v’ M tSK' I&
I
"■ -*;■
% sC “ «m .;■»#« sm- m: ».■•■«■
- r „ . t'
' , 6 V v »'■ , V St&A-
«g
'
m s
/
f Ferðaskiputeggjandi
Leyndardómar Mýrdalsjökuls sem umlykur eldfjallið Kötlu
Persónuleg þjónusta fagfólks með áratuga reynslu
SNJÓSLEÐAFERÐIR, JÖKLA- OG JEPPAFERÐIR
SÍMI: 487-1500 WWW.SNOW.IS
ARCANUM ADVENTURE TOURS
jV
adventure architects / tour guides extraordinaire