blaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 1
Tjörn í bakgarðinum í Mosfellsbænum býr Kristín Friöriks- dóttir og segja má aö hún sé með náttúruna eins og hún leggur sig f' í bakgaröinum sínum því þar / bjó hún til sína eigin vin, 8000 | lítra garðtjörn þar sem lífríkið j blómstrar. Kabúl í kvikmynd Mannfræðingurinn David B. Ed- wards kynntist Afganistan á Éfc áttunda áratugnum og hélt rannsóknum áfram á þeim níunda og tiunda. Nú hefur 6|. hann gert kvikmynd um R daglegt líf fólks í Kabúl. Tónlistin ómar nyrðra Baldvin Esra Einarsson hefur skipulagt tónlistarhátíð á Akureyri þar sem 90 tónlist- jfM armenn í samtals 18 hljóm-^B sveitum eða atriðum frá Æ 14 þjóðlöndum koma JS fram á fjórum dögum. jm SÉRBLAл 19"30 99. tölublað 3. árgangur fimmtudagur 31. maí 2007 FRJALST, OHAÐ & OKEY^S! Grillaður kjúklingur franskar og 21 Coca Cola kr 899 pk Tilboð á svínakjöti úr kjötborði Opið alla daga frá kl. 10.-20. SP, R Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Nágrannar fá símanúmer Sivjar Kormákur Geirharðsson, eigandi Ölstofunnar, segir að kvarti nágrann- arnir undan hávaða í reykingamönnum utandyra um helgar verði þeim fengið símanúmer fyrrum heilbrigðisráðherra. „Það er Siv sem vildi fá partíið út á götu.“ Á morgun verður bannað að reykja inni á veitinga- og skemmtistöðum. FRÉTTIR » 2 Gálgafrestur en ekki lausn Skógrækt til að vega upp á móti útblæstri koltvísýrings frá bílum getur veitt ákveðinn gálgafrest á meðan leitað er tæknilausna. Þetta segir Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla íslands, um það hvernig hægt er að sporna við gróðurhúsaáhrifum með skógrækt. FRÉTTIR » 4 Vinur Bush í bankastjórastólinn George Bush Bandaríkjaforseti útnefndi í gær hinn 53 ára Robert Zoellick sem næstaforsetaAlþjóðabankans. Hann tekur við af Paul Wolfowitz. Útnefning Zoellicks kemur ekki á óvart, ekki síst í Ijósi þess að hann er aldavinur Bush-fjölskyldunnar. FRÉTTIR » 8 ÍLrS'*-' ** Jóhann Ingi Guðbergsson Var að | þrífa einn búningsklefanna þegar hann sá að eitthvað var að. Hann ! stökk til og náði að lífga við stúlku ! sem hafði fundist á botninum. j Tveggja ára stúlka nærri drukknuð: Lífguð við af 17 ára starfsmanni ■ Önnur vika starfsmannsins ■ Lá í tvær mínútur á botni laugarinnar Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net jóhann Ingi Guðbergsson, sautján ára starfsmaður sundlaugar íþróttamiðstöðvarinnar Lágafells í Mosfellsbæ, lífgaði við tveggja ára stúlku á bakka laugarinnar á mánudag. Sundlaugargestur fann stúlkuna á botni laugarinnar eftir að hún hafði legið þar í yfir tvær mínútur að því er talið er. Jóhann hefur aðeins unnið í rúma viku við sundlaugina. „Ég er ennþá að jafna mig á þessu enda hélt ég á tímabili að stúlkan væri dáin,“ sagði Jóhann í samtali við Blaðið í gær. „Ég var að þrífa gólfið í karlaklefanum þegar mér varð litið út um gluggann og sá að hópur fólks hafði safnast saman við eina laugina. Fyrstu viðbrögð mín voru þau að henda frá mér kúst- inurn og hlaupa út til að athuga hvað væri í gangi. Þá sá ég að fólkið stóð yfir stúlku sem einn sundlaugargest- anna hafði fært upp á bakkann." Stúlkan var meðvitundarlaus og andaði ekki þegar Jóhann kom að henni. „Ég byrjaði á því að blása, eins og alltaf er fyrst reynt með börn. Þegar það dugði ekki til byrjaði ég að hnoða. Stúlkan sýndi engin lífsmörk en ég hélt samt áfram að hnoða. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvað ég hnoðaði hana lengi, en allt í einu sýndi hún smá viðbrögð þannig að ég sneri henni á hliðina. Þá kast- aði hún upp vatninu sem hún hafði gleypt og byrjaði að anda.“ Stúlkan var meðvitundarlaus í stutta stund eftir að hún kastaði upp, en hélt þó áfram að anda. Jó- hann hélt henni því í viðeigandi stell- ingum til að auðvelda öndun þar til sjúkraflutningafólk kom á staðinn. „Rúmri mínútu eftir að stúlkan byrj- aði að anda fór hún að gráta, sem var mikill léttir,“ segir Jóhann. Svo virðist sem stúlkan, sem var í lauginni ásamt móður sinni og bróður, hafi verið að leika sér í vatns- rennibraut er slysið átti sér stað. Hún fannst í laug sem er neðan við renni- brautina. Miðað við þær upplýsingar sem Blaðið fékk er öllum leyft að leika sér í rennibrautinni, óháð aldri. Djúpsteiktur naggrís Þýskur múrari, Werner Brenner, var orðinn svo þreyttur á að kærasta hans sýndi naggrísnum á heimilinu meiri athygli en honum sjálfum, að hann ákvað að losa sig við gæludýrið í eitt skipti fyrir öll. Hann lét ekki þar við sitja heldur eldaði naggrísinn og útbjó rómantískan kvöldverð fyrir kær- ustuna. Eftir matinn ætlaði kærastan að líta eftir naggrísnum og uppgötv- aði aö hann var horfinn. Viðurkenndi múrarinn þá að þau hefðu nýlokið við að snæða hann. „Hún sýndi kvik- indinu meiri ást en mér öll þau þrjú ár sem við vorum saman. Við vorum alltaf að rífast út af hávaðanum sem hann gaf frá sér,“ sagði Brenner. Varla þarf að taka fram að kær- astan er nú orðin fyrrum kærasta og hefur hún hafið málssókn gegn múraranum. NEYTENDAVAKTIN Verð á Nicorette-tyggigúmmí Lyfjaverslun Garðs Apótek Lyfjaver Apótekið Apótekarinn Lyf og heilsa Lyfja Krónur 4.950 kr. 4.950 kr. 5.758 kr. 5.760 kr. 5.940 kr. 5.943 kr. Nlcorette-tyggigúmmí (Classic) 4 mg. 210 stk. I pakka Upplýslngar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % BÉ= USD 62,08 0,32 ▲ SH GBP 122,68 0,07 ▲ SS OKK 11,20 -0,03 T • JPY 0,51 0,49 ▲ BB eur 83,44 -0,03 ▼ GENGISVÍSITALA 113,12 0,04 A ÚRVALSVÍSITALA 8.158,60 -0,20 ▼ VEÐRIÐ í DAG VEÐUR » 2 NOSTANDAYFIR SU^AHHiic., tlji nOSTANDA' 1 ySTADO A/ cMarcð Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, s: 471 2954

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.