blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 1
Árborg kynnir sig | Ókeypis morgunmatur |§> Björgvin Þór Rúnarsson og Birgir ! Bæjarbúum á Seltjarnarnesi verður « Wí Nielsen Þórsson eru mennirnir ! boðið í morgunmat um helgina Æ. . á bak við risastóra sýningu á ! þegar menningarhátíð bæjarins jm gj/íl A Selfossi sem verður opnuð í ! hefst en að sögn Ellenar Calmon ■ ■Wm dag þar sem sveitarfélagið ! er búist við að minnsta kosti H Árborg kynnir sig. j 500 manns. Víkingar! - L Jóhannes Viðar ' Ét Bjarnason segir H að Víkingahátíðin ■ í Hafnarfirði sé ■ orðineinsú §f virtasta í heimi. SÉRBLAÐ » 105. tölublaó 3. árgangur föstudaaur 8. júní 2007 FRJÁLST, ÓHÁÐ & Alþjóðlegur samanburður á orkuverði til álvera: Álrisarnir borga minna ■ Alcan greiðir að meðaltali 1,26 krónur á kílóvattstund ■ Meðalverð er 1,86 krónur Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Eigendur tveggja stærstu álveranna á íslandi, Alcan, sem rekur álbræðslu í Straumsvík og Alcoa, sem reisti álver á Reyðarfirði, greiða undir meðal- talsverði fyrir raforku til álvera sinna í heiminum. Þetta kemur fram í upplýsingum bresks iðnaðar- gagnabanka sem Blaðið hefur undir höndum. I samantekt gagnabankans segir að meðaltal þess verðs sem álfyrirtæki greiða fyrir kílóvatt- stund af raforku í heiminum sé 1,86 krónur. Alcan greiðir 1,26 krónur að meðaltali fyrir sína raforku og Alcoa litlu meira, eða 1,67 krónur á hverja keypta kílóvattstund. Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orku- sviðs Landsvirkjunar, segir orkuverð til álvera hér á landi vera svipað eða hærra en meðaltals- verð á alþjóðamarkaði. „Við getum ekki borið okkur saman í stóriðjunni öðruvísi en alþjóð- lega. Orkuverð frá Landsvirkjun er um eða yfir miðbik þess sem er í heiminum.“ Samkvæmt þeim upplýsingum sem Blaðið hefur undir höndum greiðir hollenska álfyrir- tækið Chorus hæsta verð að meðaltali fyrir orku, eða um þrjár krónur á hverja kílóvattstund. Lægsta verðið greiðir Russian Aluminium sem þarf einungis að greiða 0,63 krónur að meðal- tali fyrir hverja kílóvattstund sem fyrirtækið kaupir. Sala á orku til álvera miðar við meðaltal ál- veranna sjálfra, ekki orkuverðið í hverju fram- leiðslulandi fyrir sig. Því er ekki óeðlilegt að fyrirtæki sem framleiða milljónir tonna af áli árlega njóti hagstæðari kjara en þau sem fram- leiða nokkur hundruð þúsund tonn. FRÉTTIR » 4 Sextíufaldur verðmunur Internetáskrift er um sextíufalt dýrari í dreifbýli en á stærri þéttbýlisstöðum. Miklu munar einnig á hraða nettenginga. Bændasamtökin segja að bæta verði úr þessu sem fyrst ef halda eigi lands- byggðinni á lífi. Samgönguráðherra segist ætla að skoða málið í næstu viku. FRÉTTIR » 2 Einar Ágúst Víðisson, tónlistarmaður, um fyrra líferni: Barátta á vígvelli ógæfunnar og ekki nafngreiningar, ég byggi lífsviðurværi mitt á því að það sé fjallað um það sem ég er að gera. Svo get ég ekkert verið að flytja inn fíkniefni og ætlast til að það sé litið framhjá því. Þetta er bara bakreikningur sem maður skrifar upp á.“ Einar ræðir af einlægni við Blaðið í dag um eiturlyfin, tónlist- arbransann og handtöku Kalla Bjarna. JÓNLIST » 42-43 Fjármálafyrirtæki freista margra Hörð samkeppni Seðlabankans við fjármálafyrirtæki um starfsfólk er sögð ástæða þess að bankaráð ákvað að hækka laun seðlabankastjóra. Verkfræði- stofur og endurskoðunarfyrirtæki hafa einnig fundið fyrir aukinni samkeppni. FRÉTTIR » 6 Eftir Atla Fannar Bjarkason „Þegar þú ert að eiga við eitur sem drepur fólk þá má alveg segja frá því held ég,“ segir Einar Ágúst Víðisson, tónlistarmaður, um hvernig fjölmiðlar hafa fjallað mál Idolstjörnunnar Kalla Bjarna. Eins og fram hefur komið var Kalli stoppaður með tvö kíló af kókaíni í Leifsstöð í síðustu viku og situr nú í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. Einar þekkir undirheimana að eigin raun en hefur verið edrú í tæpt ár. 1 viðtali í Kastljósi síðasta þriðjudag sagðist móðir Kalla vera ósátt við fjölmiðla fyrir að nafngreina son sinn svo fljótt - löngu áður en hann hlýtur dóm fyrir glæp sinn. Einar Agúst segir tónlistarmenn og skemmtikrafta verða að átta sig á að þeir séu búnir að biðja um athyglina. „Nafngreiningar Slökktu á viðvörunarkerfinu Reiðir íbúar í bænum Lhoknga í Aceh-héraði í Indónesíu ákváðu að taka flóðbylgjuviðvörunarkerfi staðarins úr sambandi eftir að kerfið fór óvart af stað sem orsakaði mikla ringulreið og mikinn ótta meðal íbúa staðarins. Mikil flóðbylgja sem skall á Aceh-hérað í kjölfar jarðskjálfta á annan dag jóla árið 2004 er íbúum þess enn í fersku minni, en talið er að um 230 þúsund manns hafi látið lífið í hamförunum, langflestir í Aceh-héraði. Talsmaður veðurstofnunar á staðnum segir að íbúarnir hafi klippt á raflínur. Sírenur vældu í um hálf- tíma í bænum á mánudaginn, sem olli því að fjölmargir íbúar flúðu heim- ili sín og leituöu upp í hlíðar fjalla til að forðast flóðbylgju sem þeir töldu vera yfirvofandi. NEYTENDAVAKTIN Verð á Ljóma-smjörlíki Efnalaug Krónur Bónus 105 kr. Fjarðarkaup 112 kr. Krónan 106 kr. Nóatún 149 kr. Samkaup-Úrval 145 kr. Þín verslun Seljabraut 168 kr. Verð á Ljóma-smjörlíki í 500 g pakkningu Upplýsingar frá Neytendasamtökunum $5^$ GENGI GJALDMIÐLA SALA % USO 63,53 1,10 ▲ SS GBP 125,82 0,47 ▲ SS 0KK 11,49 0,71 ▲ • JPY 0,52 0,88 ▲ ■I EUR 85,52 0,70 ▲ GENGISVÍSITALA 115,98 0,04 ▲ ÚRVALSVÍSITALA 8.038,91 -0,60 T VEÐRIÐ í DAG VEÐUR » 2

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.