blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 blaöiö VEÐRIÐ í DAG Þurrt norðaustanlands Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað og væta með köflum, en þurrt norðaustanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Á FÖRNUM VEGI Hvað tekur þú oft strætó? María Nilsen Ég tek strætó tvisvar á dag. Ingibjörg Eiríksdóttir Ég tek ekki strætó vegna þess að ég bý í Skagafirði. Guðmundur Oddur Eiríksson Ég tek strætó svona tvisvar sinn- um í viku. Helena Arnadóttir Ég var bara að flytja í bæinn og er því ekki byrjuð að taka strætó. Anfta Þula Benediktsdóttir Ég bý á Vesturlandi og tek því ekki oft strætó. ÁMORGUN Lítilsháttar rigning syðra Léttskýjað víða um norðan- og aust- anvert landið. Skýjað sunnan- og suðvestanlands og sums staðar lítilsháttar rigning. Hiti 10 til 19 stig. VÍÐA UM HEIM 1 Algarve 22 Amsterdam 24 Barcelona 24 Berlín 28 Chicago 32 Dublin 17 Frankfurt 30 Glasgow 20 Hamborg 26. Helsinki 24 Kaupmannahöfn 24 London 18 Madrid 30 Montreal 12 New York 17 Orlando 22 Osló 28 Palma 24 París 20 Stokkhólmur 22 Þórshöfn 8 Netvæðing í þéttbýli og dreifbýli á íslandi: Sextíufaldur verð- munur á netþjónustu ■ Mikill munur á hraða Netsins ■ Ein lífæða landsbyggðarinnar ■ Samgönguráðherra skoðar málið Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Internetáskrift er um sextíufalt dýr- ari í dreifbýli en á stærri þéttbýlis- stöðum. Einnig er mikill munur á hraða Internetsins.. Jón Baldur Lor- ange, forstöðumaður tölvudeildar Bændasamtakanna, segir að bæta verði úr þessu sem fyrst ef halda eigi landsbyggðinni á lífi. Kristján Möller samgönguráðherra segist ætla að fara yfir stöðu netmála landsbyggðarinnar í næstu viku. Ekki jafn aðgangur að upplýsingasamfélaginu Miðað við þá mjöguleika sem fólk í dreifibýli hefur til að tengjast Netinu má segja að sextíufaldur verðmunur sé við lýði, miðað við hvert kílóbæt í gagnaflutningum, að sögn Jóns Baldurs, því íbúar í dreifbýli hafa ekki aðgang að ADSL- línu heldur þurfa þeir að notast við ISDN-línu. Er þá greitt ákveðið mín- útugjald og hraðinn einungis um 0,06 megabæt. fbúum stærri þéttbýl- isstaða býðst hins vegar ADSL-lína með föstu mánaðargjaldi og hraða upp á 4 til ío megabæt. Að sögn Jóns kostar hvert kílóbæt að meðal- tali eina til tvær krónur í þéttbýlinu, miðað við ADSL, en 62 krónur í dreifbýli, miðað við ISDN. „Aðstöðumunurinn er alveg hróp- lega mikill. Það á að vera jafnræði um allt land í þessum málum,“ segir Jón. „Það verður að fara að gera eitt- hvað í þessu vegna þess að þetta að- gengi að upplýsingasamfélaginu er orðið svo mikilvægur þáttur í öllu lífi fólks og lífsgæðum. Á næstu tveimur árum verður eitthvað að ger- ast í þessu. Þetta er stór liður í því að fólk er að fara af landsbyggðinni eða að fólk flytur ekki út á land.“ Til að jafna aðstöðumun íbúa dreifbýlisstaða segir Jón að hugarfar stjórnvalda, fyrirtækja og einstak- linga sem koma að Netinu þurfi að breytast. „Staðan í dag er sú að það hefur of lítið verið gert til að bæta þetta og nú hlýtur að vera komið að Lffæð landsbyggðar Brýnt er að gera stóátak í nettengingu á landsbyg- gðinni. Blaóiö/ÞOK því að fara í aðgerðir. Vonandi tekur ný ríkisstjórn þetta föstum tökum. Við bindum miklar vonir við sam- gönguráðherra sem er yfir þessu. Hann verður að beita sér í málinu.“ Dýrara að senda út á lands- vísu af landsbyggðinni Sjónvarpsstöðvar á landsbyggð- inni sem ætla að senda út á lands- vísu þurfa fyrst að senda merki sitt til Reykjavíkur en þaðan er sent út fyrir allt landið. Þurfa stöðvarnar því að bera kostnaðinn af því að koma merkinu til Reykjavíkur. Getur kostnaðurinn hlaupið á hundr- uðum þúsunda en sjónvarpsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu þurfa ekki að standa undir slíkum kostnaði. Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri er að fara að senda út á landsvísu og þarf stöðin þá að bera þennan aukakostnað. Hafa forsvarsmenn stöðvarinnar sent samgönguráð- herra erindi þar sem þeir biðja um að þessi aðstöðumunur milli lands- byggðar og höfuðborgarsvæðis verði jafnaður. Hreyfingin Landsbyggðin lifir heldur byggðaþing á Hvanneyri í samvinnu við Landbúnaðarhá- skólann næstkomandi laugardag klukkan 14 til 18. Verður þar fjallað um málefni landsbyggðarinnar en Jón Baldur er einn þeirra sem halda þar erindi. Nyhedsavisen: Eigið fé uppurið Danska dagblaðið Nyhedsavi- sen tapaði um einum og hálfum milljarði króna á síðasta ári og hefur þar með tapað öllu eigin fé sínu. Útgáfufélagið Dagsbrun Media, sem er að stórum hluta í eigu Baugs, hefur lofað að leggja um þrjá og hálfan milljarð króna í reksturinn árið 2007. Rekstur Nyhedsavisen hefur alla tíð verið mikið í kastljósi annarra danska fjölmiðla, og sýn- ir ársuppgjörið að 1,2 milljarða króna eigið fé fyrirtækisins er uppurið, Dagsbrun Media var stofnað á síðasta ári og var stofn- fé þessúm 4,7 milljarðar króna. Fyrsta tölublað Nyhedsavisen kom út í byrjun október í fyrra. Hreyfill: Kærir útboð Ríkiskaupa Hreyfill svf. hefur kært ramma- samningsútboð Ríkiskaupa til kærunefndar útboðsmála. Boðinn var út leigubifreiða- akstur á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesbraut fyrir hönd opinberra stofnana og fyrirtækja. Ríkiskaup tóku tveimur tilboð- um í akstur á höfuðborgarsvæð- inu, frá Hreyfli og Nýju leigu- bílastöðinni, NL. Síðarnefnda fyrirtækið fékk hins vegar akstur- inn á Reykjanesbraut, en Hreyfill skilaði ekki inn tilboði í þann hluta útboðsins þar sem hans var ekki getið í upphaflegu útboði. Nýr 2007 Renault Trafic stuttur disel. Skilrúm með glugga, plata í botni ofl. Listaverð með þessum búnaði 2.619.480,- me& vsk. Okkar ver5: 2.228.550,- meS vsk 1.790.000,- án vsk. Þú sparar um 390 þúsund. www.sparibill.is Skúlagötu 17 Sími: 577 3344 Stal einni og hálfri milljón frá starfsmannafélagi Norðuráls: Starfsmenn vilja kæra Fyrrverandi gjaldkeri starfs- mannafélags Norðuráls á Grund- artanga hefur orðið uppvls að fjár- drætti úr sjóðum félagsins. Samkvæmt heimildum Blaðsins mun maðurinn hafa dregið sér um það bil eina og hálfa milljón króna úr sjóðum starfsmannafélagsins. Eftir að upp komst um brotið mun hann hafa boðist til þess að greiða féð til baka. Mun stjórn félagsins upphaflega hafa tekið vel í það til- boð og ætlað að láta þar við sitja. Fréttir af fjárdrættinum bárust þó út fyrir raðir stjórnarinnar og til starfsmanna verksmiðjunnar. Eftir það fóru að heyrast kröfur um að gjaldkerinn fyrrverandi yrði kærður fyrir brotið. Ekki liggur enn fyrir hvort maðurinn verður kærður til lögreglu vegna fjárdráttarins.. hefur viðkomandi hafi áður verið Samkvæmt heimildum Blaðsins grunaður um fjármálamisferli. Norðurál Fyrrverandi J gjaldkeri starfsmanna- “ félagsins varð uppvis að fjárdrætti. imwiiAX \ i.m

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.