blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 blaðið INNLENT ÖRYGGISMÁL Börnin laus og illa varin í bílum Tæplega 14% barna er ekiö til leikskóla í óviðunandi öryggisbúnaði samkvæmt könnun Landsbjargar, For- varnahúss Sjóvár og Umferðarstofu. Könnunin var gerð við 58 leikskóla víða um land og var búnaður 1944 barna skoðaður. ÖLDRUNARÞJÓNUSTA Þjálfa erlenda starfsmenn Oroplaugarstaðir og Alþjóðahús undirbúa viðamikið sam- starfsverkefni um þjálfun erlendra starfsmanna í umönnun aldraðra. Markmiðið er að fjölga starfsmönnum í öldrunar- þjónustu. Erlendu starfsfólki sem er að hefja störf verður boðið upp á starfsþjálfunar- og íslenskunámskeið. NÝSKÖPUNARMIÐSTÖÐÍSLANDS Þorsteinn Ingi ráðinn forstjóri Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur ráðið dr. Þorstein Inga Sigfússon í starf forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Islands. Þorsteinn Ingi hlaut nýlega 10 milljónir rúblna í verðlaun eða 27 milljónir króna í tengslum við alheimsverðlaunin Global Energy Intemational Prize fyrir rannsóknir sínar í orkumálum. Össur Skarphéöinsson: Upplýsa á um forsendurnar „Ég er almennt þeirrar skoð- unar að sem mest gagnsæi eigi að ríkja um allt sem viðkemur viðkvæmum deiluefnum sem tengjast virkjunum og stóriðju," segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra þegar hann er spurður hvort hann sé hlynntur því að afnema leynd um sölu- verð raforku til stóriðju hér á landi. Hann bendir þó á að það sé ekki hans að taka ákvarðanir um slíka upplýsingagjöf heldur sé hún á ábyrgð stjórna þeirra fyrirtækja sem selja orkuna. „Ég tel að almenningur eigi að hafa allar forsendur til þess að meta þær ákvarðanir sem teknar eru. Það gildir einu hvort um er að ræða verð, staðsetningu eða ein- hverskonar fyrirhuguð leyfi eða leyfisveitingar." Verðsamanburður: Stóriðjan fær betri kjör Stóriðja á íslandi fær sína orku á töluvert lægra verði en aðrar atvinnugreinar, enda er orkusala til álvera almennt bundin langtímasamningum sem eru ekki gerðir á al- mennum markaði. Garðyrkjubændur greiða þannig 3,64 krónur að meðaltali fyrir hverja kílóvattstund sam- kvæmt upplýsingum frá Friðriki R. Friðrikssyni, varaformanni Sambands garðyrkjubænda. Fiskvinnslufyrirtæki borga enn hærra verð því í erindi Arnars Sigurmundssonar, stjórnarformanns Samtaka fisk- vinnslustöðva, í október síðast- liðnum kom fram að þau væru að greiða á bilinu 5,50 til 6,69 krónur á hverja kílóvattstund af raforku sem þau nýta. yBiapmoiii ar til áívera 1,86 krónur; Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Norðurál mun greiða Orkuveitu Reykjavíkur verð yfir heimsmeðal- tali fyrir raforku vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Meðalverð raf- orku til álvera í heiminum er 1,86 krónur á kílóvattstund, en Frétta- blaðið skýrði frá því í gær að Norð- urál muni greiða OR 2,1 krónu fyrir hverja selda kílóvattstund verði af byggingu álversins í Helguvík. Blaðið hefur undir höndum upp- lýsingar um orkuverð til allraþeirra álvera í heiminum sem eru með gegnsætt reikningshald, en þau eru um 170 talsins. Upplýsingarnar eru úr iðnaðargagnabanka sem tekur þær saman og selur síðan orkufyr- irtækjum, álframleiðendum og rík- isstofnunum. Þegar Blaðið setti sig í samband við fyrirtækið fengust þær upplýsingar að áskriftin kost- aði tæplega 900 þúsund krónur en stæði ekki fjölmiðlum til boða, ein- ungis þeim aðilum sem tengdust iðn- aðinum með beinum hætti. í þeim upplýsingum sem Blaðið hefur undir höndum er einnig að finna meðaltal þeirra upphæða sem álrisarnir Alcan og Alcoa greiða fyrir raforku álvera sinna, en þau fyrirtæki reka álverin í Straumsvík og á Reyðarfirði. Samkvæmt þeim greiðir Alcan að meðaltali 20 dollara á hverja keypta megavattstund, sem samsvarar um 1,26 krónum á hverja kílóvattstund. Alcoa greiðir um sex til sjö dollurum hærra verð að meðaltali á megavattstund, eða 1,67 krónur á hverja kílóvattstund. Vert er að taka fram að þessar tölur end- urspegla greiðslu fyrir orku vegna álvera fyrirtækjanna alls staðar í heiminum, ekki bara á íslandi. f fyrrasumar birtist grein á heima- síðu Alcoa þar sem haft var eftir stjórnarmanni í fyrirtækinu að orkuverð á íslandi væri helmingi lægra en í Brasilíu. Þar var sagt að megavattstund kostaði 30 dollara í Brasilíu og því kostaði hún um 15 dollara hér á landi. Það gerir um 0,94 krónur á hverja selda kílóvattstund. í grein sem Jóhannes Geir Sig- urgeirsson, þáverandi stjórnarfor- maður Landsvirkjunar, ritaði í kjölfarið sagði hann þessar tölur al- rangar. Þar sagði hann að miðað við álverð síðasta árs væri orkuverð frá Kárahnjúkavirkjun á bilinu 28 til 35 dollara á hvert selt megavatt. Það er á bilinu 1,76 til 2,20 krónur og því sambærilegt við það verð sem Norð- urál er að fá frá OR. Bjarni Bjarnason, framkvæmda- stjóri orkusviðs Landsvirkjunar, segir orkuverð til álvera hér á landi vanalega vera svipað eða hærra en meðaltalsverð á alþjóðamarkaði. ,Við getum ekki borið okkur saman i stóriðjunni öðruvísi en alþjóðlega. Orkuverð frá Landsvirkjun er um eða yfir miðbik þess sem er í heim- inum. Þannig að rafmagnsverð hjá okkur til áliðnaðar er tiltölulega hátt.“ Meðalorkuverð I heimtnum 1,87 krónur — anna sjáltra, ekkl verö hverju orkutramleiöslu landi fyrir slg. Þvl þykii eðlílegt að stórlr álhrin sem framlelða milljónii tonna árlega, likt og Alcan og Alcoa, séu mi töluvert hagstæðara verð en til dæmls Chor sem framlelðir nokkur hundruð þúsund tonn: hverju ári. "Meðalorkuverð tll ál- vera I helminum er llkt það er áætlað á árunut 2005 til 2008. Meðalorkuverð til álvera í heiminum (verð í krónum fyrir kílóvattstund) NYJAR VORUR Jakkar Stuttkápur Sumarúlpur \<#HI45IÐ Mörkinni 6, Símí 588-5518 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 Kæra Verkalýðsfélags Akraness a hendur Formaco: Aðgerð gegn undirboðum Lögreglan á Akranesi átti í gær fund með fulltrúa Vinnumálastofn- unar vegna kæru Verkalýðsfélags Akraness á hendur Formaco. Jón Karlsson hjá Vinnumálastofnun sagði að verið væri að fara yfir gögn málsins en vildi að öðru leyti ekki gefa frekari upplýsingar um fram- vindu mála. Kæran snýr að vinnu nokkurra Litháa á vegum Formaco. Vil- hjálmur Birgisson, formaður Verka- lýðsfélags Akraness, segir að Lithá- arnir hafi starfað vítt og breitt um landið án þess að hafa kennitölur sem sé andstætt þeim lögum og reglum sem gilda í landinu. „A þessu verður að taka því fyrirtækið hefur ekki borgað gjöld af þessum starfsmönnum. Ef fyrirtæki ætla í auknum mæli að haga sér með þessum hætti, þá skekkir það klár- lega samkeppnisstöðu annarra fyrirtækja.“ Vilhjáímur segir það stefnu fé- lagsins að taka á félagslegum undir- boðum á íslenskum vinnumarkaði og að kæran sé liður í því. Hann segir að forráðamenn Formaco hafi tjáð sér að Litháarnir séu ekki á launaskrá hjá fyrirtækinu, heldur séu launin greidd út til manna í Lit- háen sem borgi þeim launin. Sjálfur hefur Vilhjálmur rætt við Litháana sem segjast fá laun sín greidd að utan. „Við höfum ekkert fast í hendi hvað er verið að borga þessum mönnum. Svo þarf líka skoða atriði eins og hvíldarákvæði og annað sem því viðkemur.“ Erlendir verkamenn Kæra Verka- lýösfélags Akraness beinist aö Lithá- um sem starfa á vegum Formaco. Ragnarjóhannsson.framkvæmda- stjóri Formaco, sagði að málið væri hjá lögfræðingi og vildi ekki tjá sig um efnisatriði þess.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.