blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 blaðið INNLENT Sturla heiðraður Sturla Böövarsson, fyrrverandi samgönguráðherra, fékk í gær fyrstu heiðursverðlaun Samstöðu fyrir góðan árangur og nýjar áherslur í umferðaröryggis- málum. Samstaða eru grasrótarsamtök sem hafa slysalausa sýn að markmiði í umferðinni. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Óhappagötur Það sem af er af árinu hafa flest umferðaróhöpp orðið á Reykjanesbraut, Miklabraut, Bústaðavegi, Hringbraut og Vesturlandsvegi í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Flest óhöpp verða á Reykjanesbraut. Óhöppum þar fjölgaði nokkuð miðað við fyrstu fjóra mánuði ársins VESTMANNAEYJAR Fikt orsakar eldsvoða Nokkrir 13 ára drengir hafa viðurkennt að hafa valdið elds- voða í timbri í porti þjónustumiðstöðvar þæjarins á mánudag. Þeir höfðu verið að fikta með eld og bensín og misstu tök á eldinum. Lögregla gerði foreldrum drengjanna viðvart en hyggst ekkert aðhafast meira í málinu og telst það upplýst. Egllsstaðir: Kastaði upp fíkniefnum Karlmaður var fluttur með sjúkraflugi frá Egilsstöðum til Reykjavíkur í fyrrinótt vegna gruns um að hann hefði fíkni- efni innvortis. Hann hafði lent í átökum við lögreglumann og var færður á lögreglustöð þar sem hann kastaði upp poka sem inni- hélt hvítt efni. Ekki fundust fleiri efni í manninum og var hann útskrifaður af sjúkrahúsi í gær. Fimm til sex manna hópur manna hefur haldið til í bænum undanfarna daga og hafa lög- reglu borist nokkrar kvartanir vegna þeirra. Þeir tengjast meðal annars tveimur líkams- árásum frá því fyrr í vikunni. Að sögn Oskars Bjartmarz, yfirlögregluþjóns í umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði, eru mennirnir aðkomumenn og hafa þeir dvalið á gistihúsum og í orlofshúsum í og við Egilsstaði. Maðurinn sem fluttur var á sjúkrahús er úr hópi þessara manna. Vaðlaheiðargðng: Þurfa meira fjármagn Þrjú hundruð milljónir króna fara í Vaðlaheiðargöng samkvæmt samgönguáætlun á árunum 2008 til 2010. Kristján Möller samgönguráðherra segir ljóst að ekki verði mikið gert fyrir þessa fjárhæð. Fulltrúar frá Vegagerðinni og samgöngu- ráðuneytinu ætla að funda með Greiðri leið í næstu viku og fara yfir stöðuna. Kristján segir að Vegagerðin hafi átt tvo fundi með Greiðri leið og að á fundinum í næstu viku verði athugað hvað hægt sé að gera til að þoka fram- kvæmdum við göngin áfram. Valgerður Sverrisdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins, sagði Kristján hafa svikið loforð um að fara í Vaðlaheiðargöng strax í fyrirspurn til ráðherra á Alþingi á mánudag. Einnig sakaði hún ráðherrann um að hafa svikið það að þau yrðu gjaldfrjáls. Fjármálafyrirtæki freista margra: Hörð samkeppni um hæfasta starfsfólkið ■ Erfitt að keppa við bankana ■ Ríkið ekki útungunarstöð ■ Spennandi starfsumhverfi Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Hörð samkeppni Seðlabankans um starfsfólk við fjármálafyrirtæki er sögð ástæða þess að bankaráð Seðlabankans ákvað að hækka laun seðlabankastjóra um 200 þúsund krónur. Þetta vekur upp þá spurn- ingu hvort hægt sé að keppa við fjármálafyrirtækin. Erfitt að keppa við bankana „Þetta er stórkostlegt vandamál, ég viðurkenni það. Það er mjög erf- itt fyrir Seðlabankann að elta ólar við þessi risatilboð viðskiptabank- anna,“ sagði Ragnar Arnalds, banka- ráðsmaður í Seðlabankanum, um samkeppni hins opinbera við fjár- málastofnanirnar um starfsfólk. Ekki útungunarstöð „Ég held að margir í opinbera geir- anum finni fyrir því að það er sóst eftir ýmsum sérfræðingum,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt- stjóri. Hann segir að það sé erfitt að keppa við einkageirann í launum en bendir á að menn séu ekki bara í vinnunni fyrir launin. „Vinnu- félagarnir, verkefnin, umhverfið, ábyrgð og frelsi í starfi skipta einnig miklu máli.“ Hann segist þó ekki hafa neinar sérstakar áhyggjur af þessu. „Það eru alltaf einhverjar mannahreyfingar,“ segir Skúli og bætir við: „Því miður hafa sumir þær hugmyndir að ríkið eigi að vera einhverskonar útungunarstöð og að þeir séu bara komnir hingað í starfs- þjálfun og fara svo í einkageirann." Hann segir að það geti verið erfitt að horfa á eftir fólki sem búið er að þjálfa upp en bendir á að þetta sé háð sveiflum og að þetta geti snúist við. Mikil samkeppni um starfsfólk Verkfræðistofur og endurskoðun- arfyrirtæki hafa einnig fundið fyrir aukinni samkeppni við fjármálafyr- irtækin um starfsfólk. f samtölum Blaðsins við starfs- fólk á verkfræðistofum kom fram að þau hefðu fundið fyrir aukinni ásókn fjármálafyrirtækja í verk- fræðinga. „Þetta er ekki vandamál, en auðvitað eru fjármálafyrirtækin að taka verkfræðingana,“ sagði einn viðmælenda Blaðsins. Viðmælendur töldu almennt að samkeppnin hefði harðnað en töldu þetta ekkert vandamál þó að augljóslega væri minna af lausum verkfræðingum á markaðnum en áður. Flestir töldu að verkfræðistofur gætu ekki keppt við fjármálafyrirtækin í launum. Blaðið hafði einnig samband við fólk hjá endurskoðendafyrirtækjum. Þar hafði fólk svipaða sögu að segja og á verkfræðistofunum en taldi sig þó að einhverju leyti geta keppt við fjármálafyrirtækin í launum. Viðmælendur sögðu að ekki væri hægt að neita því að nú væri meiri samkeppni um starfsfólk, en bættu því við að samkeppni væri um allt starfsfólk á íslandi. Spennandi starfsumhverfi „Fólk sækist ekki bara eftir laun- unum heldur líka því áhugaverða starfsumhverfi sem við bjóðum BErfitt fyrir Seðla- bankann að elta ólar 1fið þessi risatilboð Ragnar Arnalds, bankaráðsmaður í Seðlabankanum: upp á,“ sagði viðmælandi Blaðsins í fjármálageiranum. Annar sagði að mikil ásókn væri í störf hjá þeim en þó væri einnig hörð samkeppni um hæft fólk. Viðmælendum bar saman um hvort starfsfólk kæmi ekki bara til þeirra frá öðrum fyrir- tækjum eða ríkisstofnunum heldur líka beint úr námi. Þá kom einnig fram að mest samkeppni væri um fólk með sterkan bakgrunn í BlHargirí opin- bera geiranum finni fyrirþví að það er sóst eftir sérfræðingum Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri: Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Svcrrir Einarsson Hcrmann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • TóniLst • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Lfkflutningar Fundur leiðtoga iðnrikjanna: Samkomulag um loftslagsmál Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims náðu í gær samkomulagi um nauðsyn þess að stefna að því að draga umtalsvert úr losun gróður- húsalofttegunda. Leiðtogarnir eru einnig sagðir hafa sammælst um að samið verði um arftaka Kyoto- sáttmálans á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Angela Merkel, kansl- ari Þýskalands, þrýsti í upphafi fundarins í Heiligendamm í norð- urhluta Þýskalands á um að ríkin átta myndu skuldbinda sig til að minnka útblásturinn um fimmtíu prósent fram til ársins 2050. Merkel sagði aðra leiðtoga hafa markmiðið í huga, en að ekkert benti til þess að skuldbindingar um minnkun út- blásturs kæmu fyrir í lokatexta fund- arins sem lýkur í dag. George Bush Bandaríkjaforeti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu síðdegis í gær, en samband ríkjanna hefur að undanförnu verið stirt vegna fyrirhugaðrar uppsetn- ingar Bandaríkjahers á eldflauga- og ratsjárstöðvum í austurhluta Evrópu. Á fundinum lagði Pútín til að kerfinu yrði frekar komið upp í Aserbaídsjan, en hann hafði áður hótað því að láta beina vopnum að Evrópuríkjum verði kerfinu komið upp í Póllandi og Tékklandi.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.