blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 blaðið Tólf létust í hvirfilbyl Tólf manns týndu lífi þegar hvirfilbylurinn Gonu gekk yfir Óman á Arabíuskaga í gær. Hvirfilbylurinn var sá sterkasti sem gengið hefur yfir landið um margra áratuga skeið. Byggingar, raflínur og vatnsleiðslur eyðilögðust og tré rifnuðu upp með rótum. ÍTALÍA íslamistar í haldi Lögregla á Ítalíu hefur handtekið að minnsta kosti tíu íslamista sem grunaðir eru um aðild að sprengjuárásunum sem skóku Algeirsborg í apríl síðastiiðnum. Mennirnirvoru handteknir í Mílanó og taldir hafa veitt aðstoð í tengslum við hryðjuverkin sem urðu rúmlega þrjátíu manns að bana. AFGANISTAN Gíslum sleppt fyrir Ifk Dadullah Talsmenn uppreisnarmanna talibana í Afganistan staðfestu í gær að afgönsk yfirvöld hefðu afhent þeim lík talibanska hern- aðarleiðtogans Dadullah í skiptum fyrir lausn nokkurra gísla sem voru í haldi talibana. Mullah Dadullah var drepinn í átökum talibana og erlends herliðs í Helmand-héraði í síðasta mánuði. Heldur liöunum liðugum! heilsa -haföu þaö gott Kemur í veg fyrir markvisst lyfjaeftirlit :i Eigendur markaðsleyfa haldi utan um tilvikin Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Engin lög eða reglugerðir eru til á Islandi sem kveða á um að læknum eða öðru heilbrigðisstarfsfólki beri að tilkynna til Lyfjastofnunar ef til þeirra leita einstaklingar með auka- verkanir af völdum lyfjanotkunar. Mælst er til þess að heilbrigðisstarfs- fólk tilkynni alvarlegar aukaverk- anir lyfja, en þar sem engin viður- lög liggja við því að gera það ekki virðast margir hunsa það, sem getur orðið til þess að lyfjaeftirlit verður ómarkvisst. Eigendur markaðsleyfa eiga þó að halda utan um skráð til- vik aukaverkana. Undanfarna daga hefur töluvert verið fjallað í fjölmiðlum um tvær ís- lenskar stúlkur sem fengu blóðtappa afvöldumYasmin-getnaðarvarnarp- illunnar. Hvorugt þeirra tilvika var tilkynnt til Lyfjastofnunar. „Lyfjastofnun hvetur heilbrigðis- starfsfólk eindregið til að tilkynna allar aukaverkanir lyfja,“ segir Elín Ingibjörg Jacobsen, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun. „En það er ein- ungis um siðferðilega kröfu að ræða en ekki lagalega skyldu. Auðvitað er það slæmt fyrir okkur ef alvar- leg tilvik eru ekki tilkynnt, en það eru engin viðurlög við því. Það má vissulega segja að eftirlit með auka- verkunum lyfja verði ekki nógu markvisst ef heilbrigðisstarfsfólk tilkynnir ekki alvarleg tilvik.“ í sumum Evrópulöndum hvílir lagaleg skylda á herðum starfsfólks heilbrigðisgeirans að tilkynna öll til- vik um einstaklinga með alvarlegar aukaverkanir af völdum lyfjanotk- unar. „Lyfjastofnun viðkomandi lands kemur tilkynningunum áfram til heilbrigðisyfirvalda Evrópusam- bandsins sem safnar tilvikunum í gagnagrunn. Ef eitthvað ber á því að tilkynningum um aukaverkanir vegna einhvers ákveðins lyfs fjölgi er það kannað sérstaklega," segir Elín. Á vef Lyfjastofnunar er að finna rafrænt eyðublað sem bæði þeir sem finna fyrir aukaverkunum lyfja og eins heilbrigðisstarfsfólk sem með- höndlar einstaklinga með aukaverk- anir vegna lyfjanotkunar geta fyllt út og sent til stofnunarinnar. Er þar kveðið svo fast að orði að heilbrigð- isstarfsfólki beri að tilkynna allar alvarlegar aukaverkanir. „Með því orðalegi er verið að höfða til samfé- lagslegrar ábyrgðar, en ekki vísað til laga eða reglugerða," segir Elín, Eigendum markaðsleyfa lyfjanna er þó skylt að halda utan um atvik sem upp koma vegna alvarlegra hliðarverkana þeirra lyfja sem þeir eru með í viðskiptum. Ef þau gera það ekki eiga þau á hættu að missa markaðsjeyfin. Hins vegar eru engin lög eða reglugerðir sem kveða á um að heilbrigðisstarfsfólki beri að til- kynni leyfishöfum um atvikin, þótt Elín segi að vissulega sé ætlast til þess að þau geri það. ERUM FLUTT í FÁKAFEN 9 OPNUNARTILBOÐ AF ÖLLUM VÖRUM FÖSTUDAG OG LAUGARDAG Fókafen 9 (í sama húsi og einu sinni var) S. 555-6688 Himinlifandi Kjartan Lárusson, forstöðu- maður Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi, afhenti Lindu Björk Ómarsdóttur farseðlana fyrir hönd lceland Express. Kaupmannahafnarflug Iceland Express: Gáfu fjölskyldu þriggja daga ferð Fjölskylda á Akureyri, móðir og tvö börn hennar, fékk að gjöf þriggja daga ferð til Kaupmannahafnar með fyrsta beina flugi Iceland Express á þessu sumri frá Akureyri til Kaupmannahafnar ásamt hótelgistingu. Gjöfin er liður í samstarfi Iceland Express og ADHD- samtakanna, stuðningssamtaka fjölskyldna barna og unglinga með athyglisbrest og ofvirkni, en annað barnanna er ofvirkt. Að sögn Lindu Bjarkar, móður barnanna, voru þau himinlifandi þegar i ljós kom hvað stæði til en þetta er fyrsta utanlandsferð þeirra systkinanna. „Það var þrennt sem þau óskuðu sér; að sjá fíl, búa til bangsa í Tívolíinu og kaupa AC Milan- búning. Við ættum alveg að ná því að fara í dýragarðinn, Tívolíið og íþróttavöruverslun," sagði Linda Björk.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.