blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 9
blaðið
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 9
Sviss:
Sýknað í
Swissair-máli
Dómstóll í Sviss sýknaði
alla nítján sakborningana af
öllum ákæruliðum í Swissa-
ir-málinu í gær, en málið er
stærsta fjársvikamál í sögu Sviss.
Sakborningarnir, sem flestir
voru stjórnendur í svissneska
flugfélaginu Swissair, voru ákærð-
ir fyrir óstjórn og skjalafals í
tengslum við gjaldþrot flugfélags-
ins í októbermánuði árið 2001.
Swissair var fyrsta stóra flug-
félagið sem varð gjaldþrota eftir
hryðjuverkaárásirnar á Banda-
ríkin þann 11. september 2001.1
kjölfar gjaldþrotsins voru eignir
Swissair sameinaðar flugfélaginu
Crossair, sem þýski flugrisinn
Lufthansa keypti árið 2005.
Bandaríkin;
Vilja svör um
draugafanga
Sex mannréttindasamtök, þar
á meðal Amnesty International
og Human Rights Watch, hafa
hvatt Bandaríkjastjórn til að
skýra frá afdrifum 39 manna
sem þau telja hafa verið í haldi
Bandaríkjamanna og ekkert
hefur spurst til um árabil.
Samtökin sex segjast hafa tekið
saman listann eftir að hafa rætt
við fyrrum fanga og heimild-
armenn sína innan stjórnkerf-
isins og í heimi fjölmiðla.
í nýrri skýrslu mannréttinda-
samtakanna er Bandaríkjastjórn
einnig hvött til þess að hætta
við að flytja grunaða hryðju-
verkamenn í leynifangelsi.
Palestína:
Átök á Gasa-
ströndinni
Einn maður lést og tólf
særðust þegar til átaka kom
milli liðsmanna Hamas og
Fatah-hreyfingarinnar á Gasa-
ströndinni i gær.Bardagarnir
breiddust út á götum bæjarins
Rafah, þar sem byssumenn
Hamas og Fatah komu sér fyrir
á húsþökum og settu upp varð-
stöðvar. Mahmoud Abbas, forseti
Palestínumanna, lýsti því yfir á
þriðjudaginn að Palestínumenn
væru á barmi borgarastyrjaldar.
Palestínsk mannréttindasam-
tök telja að 616 Palestínumenn
hafi látið lífið í átökum milli
Hamas- og Fatah-Iiða frá því
að Hamas vann sigur í kosn-
ingum í janúar á síðasta ári.
Orkusölusamningar vegna álvers í Helguvík
Ekki ávísun á álver
Umhverfisráðherra og iðnað-
arráðherra segja bæði að enn sé
margt óleyst áður en álver í Helgu-
vík geti orðið að veruleika.
„Orkusölusamningurinn er ekki
ávísun á álver. Það vita allir,“ segir
Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra og bendir á að
þetta þurfi að fara í gegnum hin
lögboðnu ferli. „Samningarnir lúta
meðal annars að því að öll tilskilin
leyfi fáist og að framkvæmdir
standist umhverfismat."
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra segir stefnu sína og ríkis-
stjórnarinnar vera skýra. „Það er
alveg skýrt að ég sem iðnaðarráð-
herra mun ekki heimila að farið
verði inn á óröskuð svæði fyrr en
rammaáætlun um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma liggur fyrir,“
segir Össur en hann býst við að
rammaáætlunin muni koma fyrir
Alþingi síðari hluta ársins 2009.
Óssur gagnrýnir ummæli
Árna Þórs Sigurðssonar, þing-
manns Vinstri grænna, í Blaðinu
í gær. „Þegar formaður hans var
á hnjánum gagnvart Sjáflstæðis-
flokknum þá lýsti hann því yfir í
viðtali að engin ultimatum yrðu
sett varðandi álver í Helguvík,“
sagði Össur og bætti við: „Við
settum það ultimatum að ekki yrði
farið inn á óröskuð svæði fyrr en
rammaáætlunin lægi fyrir og á það
féllst samstarfslokkurinn."
Orkuveita Reykjavikur og Hita-
veita Suðurnesja hafa samþykkt að
afla orku fyrir fyrsta áfanga álvers
í Helguvík sem mun hafa 100 þús-
und tonna framleiðslugetu. Síðari
áfangar gera ráð fyrir allt að 250
þúsund tonna framleiðslugetu. Til
þess að afla orku til þeirra verður
að virkja á óröskuðum svæðum.
allt á að seljast
25% afsláttur
af fylgihlutum
AKUREYR
Wjjtpr' Heilsudýnur
Stakar dýnur
King dýnur frá kr. 50.000
Náttborð
Höfuðgaflar
Kommóður
Sófasett
Smávara og gjafavara
AKUREYR
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, 461 1150
Oplft virka daga 10:00 - 18:00 - laugardaga 1 1:00 - 15:00
www.svefn.is
Inngangur Klettháls 13