blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 11
blaðið
FðSTUDAGUR 8. IÚNÍ 2007 11
Tækifæri okkar í orkumálum
Samningar um sölu á raforku til
hugsanlegs álvers í Helguvík voru
afgreiddir á kvöldfundi stjórnar
Orkuveitu Reykjavíkur á mánudag
sl. Samfylkingin greiddi atkvæði
gegn samningnum þar sem samn-
ingurinn þýðir að nær allir þeir
virkjunarkostir sem OR hefur haft
til skoðunar á undanförnum árum
eru með þessu bundnir í orkusölu-
samningum til stóriðju. Samanlagt
kalla stóriðjusamningar Orkuveit-
unnar á orku sem er langt umfram
þá virkjanakosti OR sem komnir
eru í gegnum umhverfismat og
raunar einnig umfram þá virkjun-
arkosti sem geta talist í hendi.
verði frá áætlunum um aukna
sölu inn á almennan markað.
Síðast en ekki síst er óráðlegt að
samþykkja sölu á orku til Helgu-
víkur því enn er ósvarað stórum
spurningum er lúta að þeim nátt-
úrusvæðum sem hugmyndir eru
uppi um að virkja. Heildarmati á
verndargildi og annarri nýtingu
þeirra náttúru- og háhitasvæða
á öllu landinu þar sem virkjanir
koma tiT álita verður ekki lokið
fyrr en í árslok 2009. Skynsamlegt
væri að huga rækilega að áhrifum
þessa áður en samningurinn er
samþykktur því draga má í efa að
álitamálum í þessum efnum verði
fullsvarað þegar fyrirvarar orku-
sölusamningsins til Helguvíkur
renna út í júní 2008. Eftir það mun
áhættan vegna þeirra lögformlegu
leyfa sem ekki verða orðin að
veruleika hvíla á OR nema samn-
ingnum verði rift vegna þessara
óvissuþátta. Þegar á allt er litið
hefði því verið skynsamlegra fyrir
Orkuveitu Reykjavíkur að staldra
við og fullkanna þá fjölmörgu
kosti og tækifæri sem eru að opn-
ast á heimsvísu með stórauknum
áhuga á nýju atvinnulífi og grænni
orku.
Hö^fundur er oddviti Samfylkingarinnar og
Mynd/hther Ir
Stóriðjuvirkjanir - sjálfstæð-
ar rekstrareiningar?
Á fundi stjórnarinnar lagði Sam-
fylkingin fram tillögu um að kann-
aðir verði kostir þess að virkjanir
OR til stóriðju verði sjálfstæðar
rekstareiningar sem standi undir
öllum kostnaði þeim tengdum,
verði fjármagnaðar með verkefna-
fjármögnun en án ábyrgðar eig-
enda. Ekki var fallist á tillöguna en
afgreiðslu hennar var frestað.
Síðast en ekki
síst er óráðlegt
að samþykkja
sölu á o rku til
Dagur B. Eggertsson
Þá hefur Samfylkingin óskað
eftir að í tengslum við þá umfjöllun
eigenda Orkuveitunnar um samn-
inginn sem framundan er verði gerð
sérstök grein fyrir því hvaða aðrir
raforkusamningar eru komnir á, á
hvaða svæðum á að virkja og fyrir
hversu mikilli orkuframleiðslu eru
komin virkjanaleyfi. Einnig þarf
að liggja fyrir hversu stór hluti þess-
ara virkjana hefur farið í gegnum
umhverfismat auk upplýsinga um
önnur rannsóknaleyfi og nýting-
arleyfi. Þessa heildarmynd er ein-
faldlega nauðsynlegt að hafa undir
í umræðunni um samninginn um
Helguvik og þessi heildarmynd
réði afstöðu Samfylkingarinnar í
stjórn OR.
Enn er óvissa um samn-
ingOR viðAlcan
Samfylkingin taldi óráðlegt að
samþykkja samning um raforku-
sölu til álvers í Helguvík á meðan
ekki liggur fyrir hvort OR verður
bundin af samningi um sölu 200
MW til stækkunar álversins í
Straumsvík. Samningurinn um
sölu til Helguvíkur felur í sér skuld-
bindingu á sölu 100 MW og for-
kaupsrétt álversins að 75 MW að
auki. Skuldbindingar samkvæmt
þessum samningum, ofan á sölu
orku til álversins á Grundartanga
þýðir að nær allir þeir virkjunar-
kostir sem OR hefur haft til skoð-
unar á undanförnum árum eru
bundnir í orkusölusamningum til
stóriðju. Einsog áður segir kallar
fullnusta þeirra á orku sem er
umfram þá virkjanakosti OR sem
komnir eru í gegnum umhverfis-
mat eða geta talist í hendi.
Umhverfi, ál og spenn-
andi orkumarkaður
Samþykkt samnings um orku-
sölu til Helguvíkur þýðir að yfir
90% af orku frá nýjum virkjunum
OR munu renna til álbræðslu og
verða bundin álverði. Jafnframt
þýðir þetta að sala OR á orku
verður lítil sem engin til þeirra
fjölmörgu áhugaverðu kaupenda
sem hafa gefið sig fram, svo sem
netþjónabúa og annarra mengunar-
lausra stórkaupenda, nema horfið
A BET
RA VERÐI
Fyrsti bíllinn í
KIA cee’d Crdi dísil 115 hestöfl
2.090.000 kr.
Verö áður 2.345.000 kr.
Vegna hagstœðra samninga við verksmiðjur KIA í
Evrópu getum við boöiö hinn nýja KIA cee'd með
öflugri dísilvél á aðeins 2.090.000 kr.
KIA cee’d er fyrsti bíllinn í Evrópu sem er boðinn
með sjö ára ábyrgð. Þessi staðreynd undirstrikar
hvers vegna KIA er sá bílaframleiðandi sem er í
hvað mestum vexti í heiminum í dag. Glœsileg
hönnun, gœði og hagkvœmni.
Komdu og prófaðu einn athyglisverðasta
fólksbílinn á markaðnum í dag.
Ríkulegur staöalbúnaöur:
• álfeigur
• USB-tengi fyrir iPod
• aðgerðastýri
• sex öryggisloftpúðar
• loftkceling
• 6 diska geislaspilari
• rafrcen stöðugleikastýring
• upplýsingatölva
FM
fLMÉM Nýr KIA ce^etl | Responds to your life
* 7 ára/150.000 km verksmiöjuábyrgö vegna galla i aflrás og 5 ára/150.000 km verksmiöjuábyrgö vegna galla I öörum hlutum bílsins.
Þetta á við um KIA cee’d í öllum EB löndum (auk Noregs, Sviss, íslands og Gibraltar).
0
KIA umboðið á íslandi er í eigu HEKLU.
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • sími 590 5700 • www.kia.is
KIA MOTORS
The Power to Surprise“
HVÍTA HÚSIÐ/SÍA - 8146