blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ Jón, ertu búinn að kaupa miða?
FirýNST
ÞER?
Ég spila aldrei i lottói, jafnvel þótt hann
sé fimmfaldur.
\.
blaöiö
Jón Magnússon, þingmaður
Miklar umræður hafa verið um óstöðugleika
íslensku krónunnar og hefur Jón líkt gjaldmiðlin-
um okkar við lottó.
HEYRST HEFUR
MIKILL SKJÁLFTI ervístí
herbúðum DV-manna því sögur
herma að blaðið eigi að flytja upp
á Lyngháls þar sem Birtíngur er
til húsa og Stöð 2
var áður. DV og
Birtíngur, það er
íyrrverandi tima-
ritaútgáfa Fróða,
eru bæði í eigu
Hjálms, sem er fyr-
irtæki í eigu Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar.
DV hefur haft
bækistöðvar sínar
í Brautarholti.
OFURBLOGGARINN EUýÁrmanns-
dóttir sjónvarpsþula hefur fallið
úr fyrsta sæti vinsældarlistans á
Moggablogginu og þarf nú að sætta
sig við þriðja sætið. Sumum hefur
fundist að Ellý hafi misst snerpuna
í skrifum eftir að hún varð léttari
en öðrum finnst hún hafa gerst of
klámfengin. Þá hafa
einhverjir verið
þess fullvissir að
Ellýnjótihjálpar
sambýlismanns-
ins við skrifin,
enda hafi hún
sjálf nóg að gera
við umönnun
ungbarns.
ATHAFNAMAÐURINN Óttar
Felix Hauksson hefur sett saman
nýja hljómsveit sem sérhæfir sig i
lögum sjöunda áratugarins en það
tímabil er Óttari sem kunnugt er
afar kært. Hljómsveitin sem hlotið
hefur nafnið Specials mun meðal
annars leika fyrir dansi á Víkinga-
hátíð í Hafnarfirði nú um helgina.
Nafn sveitarinnar er í sjálfu sér ekk-
ert sérstakt og ljóst að hún er ekki
sú fyrsta sem ber það. Skemmst er
að minnast ska-sveitarinnar The
Specials sem gerði garðinn frægan
á pönktímabilinu í Bretlandi með
kröftugri og dansvænni tónlist. Nú
er bara spurning hvort forsprakkar
hinnar fornfrægu
hljómsveitar fari
fram á lögbann á
hljómsveit Óttars
og félaga...
Atvinnuvíkingar Fjöldi
erlendra atvinnuvíkinga
sækir Víkingahátíð í Hafn-
arfiröi heim á ári hverju
en fþeim hópi ermeðal
annars handverksfólk
sem sérhæfirsig í hand-
verki víkingatímans.
Andi víkinga ríkir í Hafnarfirði
BLOGGARINN...
Ég gerði það
Áður en menn fara alveg úr líming-
unum er rétt að útskýra málið. Egill
Helgason skrifaði um stjórnmál á
ritstjórnarhluta Vísis. Það var hluti af
starfssamningi hans við 365 og hann
þáði laun fyrirþað. Eftirað Egill tjáði
mér að hann væri hættur störfum
gerði ég það sem ég geri venjuiega
þegar starfsmenn hætta og bað
um að lokað yrði fyrir aðgang hans
að ritstjórnarkerfi Vísis. Mér sýnist
margir gera því skóna að Ari Edwald
forstjóri 365 hafi fyrirskipað þetta í
reiðikasti. Sú hugmynd passar ágæt-
lega inn iplottið um stríð
k milli hans og Egils, en
i staðreyndin er hvers-
í dagsiegri. Hún er sú
I að ég ráðfærði mig
ekkert við Ara enda
engin ástæða til.
Þórir Guðmundsson
blogg.visir.is/thorir
Davíð bankakarl
Víkingar allra landa sameinast
Víkingahátíð í Hafnarfirði hefst í
dag og stendur þessa helgi og þá
næstu. Þar verður boðið upp á bar-
dagasýningar, víkingaskóla, víkinga-
markað og víkingaveislur svo aðeins
fátt eitt sé nefnt. Þó að hátíðin sé
ekki gömul er hún búin að festa sig í
sessi, ekki aðeins hér á landi heldur í
„víkingaheiminum" öllum. Jóhannes
Viðar Bjarnason á öðrum fremur
heiðurinn af uppbyggingu hátíðar-
innar en hann hefur haldið utan
um hana frá upphafi. „Hátíðin hér
er orðin ein virtasta hátíðin í heimi
víkinga,“ segir hann og bætir við að
víkingahátíðum fari fjölgandi og að
þær séu ábyggilega orðnar yfir íoo
talsins.
„Þetta er sívaxandi og þeir segja
að vopnbærir menn í víkingabún-
ingi séu yfir ro.ooo manns sem er
allstór her. Ég held að við ættum
bara að fara að senda þá sem friðar-
gæslusveit til að reyna að semja frið
í írak. Þeir skjóta ekki á menn með
sverð. Andskotinn hafi það,“ segir Jó-
hannes og hlær.
Uppeldisstöð víkinga
Margir láta sér ekki nægja að koma
á Víkingahátíð einu sinni heldur
mæta til leiks á hverju ári. „Fólk
hefur greinilega gaman af þessu því
að það kemur hingað ár eftir ár með
börnin sín og hér í bænum eru ungir
víkingar farnir að taka fram vopnin
sín, sem þeir keyptu á Víkingahátíð-
inni í fyrra, eða bjuggu til yfir vet-
urinn. Nú fara þessir ungu sveinar
að spranga hér um bæinn í fullum
herklæðum og mæta víkingum sem
þeir eru kannski búnir að bindast
vinaböndum frá því í fyrra,“ segir Jó-
hannes og tekur undir að verið sé að
ala upp litla víkinga. „Já, við erum
að reyna að fá krakka til að gera
annað en að leika sér í tölvu.“
„Þetta ersívaxandi og
þeir segja að vopnbærir
menn í víkingabúningi séu
yfir 10.000 manns sem
er allstór her. Ég held að
við ættum bara að fara að
senda þá sem friðargæslu-
sveit til að reyna að semja
frið í írak.“
Fjöldi erlendra víkinga og hand-
verksmanna sækir Hafnarfjörð
heim á ári hverju í tilefni hátíðar-
innar og verður engin breyting á því
í ár. „Sumir hafa þetta að lifibrauði
að ferðast á milli hátíða í Evrópu því
að þær eru nokkuð margar á sumrin.
Þeir gera ekki annað margir hverjir.
Þetta eru atvinnuvíkingar.
Þetta eru til dæmis handverks-
menn sem búa til rúnasteina fyrir
söfn eða segja frá víkingum á lifandi
hátt,“ segir Jóhannes.
í víking til Sauðárkróks
Fyrri helgi Víkingahátíðar í Hafnar-
flrði lýkur á sunnudag og verður þráð-
urinn tekinn afturupp föstudaginn 15.
júní. 1 millitíðinni halda erlendu gest-
irnir í víking til Sauðárkróks. „Við
gerðum það líka í fyrra og það gerði
gífurlega lukku. Það var hundrað pró-
sent mæting heimamanna og núna
hafa þeir haft eitthvað til að hlakka
til. Þetta sannar það sem ég hef alltaf
sagt því að menn héldu að ég væri
að flytja hingað inn 100 fyllibyttur
með fullt af járni. Menn héldu að þeir
væru bara hérna á fylliríi og að berj-
ast. Þannig er það nú aldeilis ekki.
Auðvitað skemmta þeir sér hérna á
kvöldin en þeir eru mættir galvaskir
að degi til að vinna vinnuna sína.
Sauðkrækingar komust að því enda
komu þeir með hálfum hug síðast en
núna er bara mikil tilhlökkun og það
var mikið gert til að fá okkur aftur,“
segir Jóhannes og bætir við að gott sé
að geta leyft landsbyggðinni að njóta
þessara listamanna sem hingað eru
komnir.
„Ég er búinn að kosta flutning á
þessum mönnum hingað til landsins
og það væri bara synd og skömm ef
aðeins við hér á suðvesturhorninu
fengjum að njóta þess,“ segir Jó-
hannes Viðar Bjarnason að lokum.
Fréttablaðið ídag upplýsirað heild-
arlaun Davíðs Oddssonar, formanns
bankastjórnar Seðlabankans, séu ríf-
lega 1.700 þúsund krónur á mánuði
og að hann sé betur launaður eftir
hækkunina en bæði forseti Islands
og forsætisráðherra. Þar með er
seðlabankastjóradjobbið það best
launaða hjá íslenska ríkinu. Davíð á
svo náttúrlega býsna góðan lífeyris-
rétt samkvæmt lögum um lífeyris-
réttindi þingmanna og ráðherra sem
safnast upp meðan hann erí starfi í
bankanum. Það er sagt að drifkraft-
urinn að baki launa-
hækkununum sé
sú mikla eftirspurn
sem er í bankakerf-
inu eftir starfsmönn-
um Seðlabankans.
Athyglisvert.
Pétur Gunnarsson
hux.blog.ís
Án heimilda
Líkt og Denni var virkur í að benda
á á sinni síðu hér í„gamla daga” þá
ætla ég að gera það núna, en pappa-
blöðin eru ekki virk í að geta heim-
ilda þegarþau stela efni frá öðrum
fréttastofum. Á baksíðu
DVÍdager frétt sem
Litla frjálsa var með á
þriðjudaginn um að
Magnús Ftagnarsson fv.
sjónvarpsstjóri Skjás
eins hefði stefnt 365
miðlum. Óld njúsl!
Jón Axel Ólafsson
Jax.blog.is
þriðjudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
Su doku
3 6 4 7 8
4 3 5 7 1
7 1 2 3
7 4 9 5
9
1 3 2
7 5 8
3
5 8 4 6 3
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
© LaughingStock International IncVdist. by Unlted Media, 2004
HERMAir
eftir Jim Unger
Sko, þú ert brúðguminn og ég svaramaðurinn.
Og nei, við erum ekki að fara að skipta!