blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 15
inu
Frá Hagamel til Hafnarborgar
Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson heldur tónleika í Hafn-
arborg í kvöld kl. 21. Á tónleikunum leikur hann lög af
geisladisknum Hagamelur sem kom út á dögunum.
blaöið
helgin@bladid.net
SSSól á NASA
Hljómsveitin SSSól sem fagnaði tvítugsafmæli
sínu á dögunum heldur dansleik á skemmti-
staðnum NASA við Austurvöll annað kvöld.
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 35-
Menningarhátíð SeKtjarnarness um helgina
UMHELGINA
Bæjarbúum boðið
Dr.Hauschka
Náttúrulegar snyrtivörur
Rósakrem
fyrir þurra og viðkvæma húð
Hf-HauKhka
Rosc
DavCrtam OtHauschka
Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber
hjálpa til við að varðveita rakann í
húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og
veitir henni sérstaka vernd.
Rósakremið innihcldur einungis hrein
náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar
lækningajurtir. Það er án allra kemiskra
rotvarnarefna og ilmefna. lmurinn
er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á
einnig við um aliar aðrar vörur frá
Dr.Hauschka.
dreifing:
Útsölustaöir: Yggdrasill Skólavöröustíg 16, Fræiö
Fjaröarkaup, Lífsins Lind Kringlunni, Lyf ja,
Maöur Lifandi, Lyf og Heilsa Kringlunni og
Hcilsuhornið Akurcyri.
STYLESNOB
í morgunmat
Allir leggjast á eitt Ellen Calmon,
fræðslu- og menningarfulltrúi
Seltjarnarness, segir að Menning-
arhátíðin sameini bæjarbúa og að
allir leggist á eitt við að gera hana
sem glæsilegasta.
Sjór og útgerð fyrr og
nú eru í forgrunni á
Menningarhátíð Sel-
tjarnarness sem hald-
in verður í þriðja sinn
nú um helgina. Fjöldi
sýninga, tónleika og
annarra uppákoma af ýmsu tagi er
á dagskránni sem bæjarbúar á öll-
um aldri taka virkan þátt í. Hátíðin
verður sett í Bókasafni bæjarins kl.
15 í dag og við sama tækifæri verð-
ur opnuð þar listasýning nemenda
leikskólanna Mánabrekku og Sól-
brekku. Þar verða einnig til sýnis
handverksmunir eldri borgara og
munir úr eigu Alberts vitavarðar í
Gróttuvita.
Nesið fyrr og nú
Síðast en ekki síst verður ljós-
myndasýningin Systir með sjóhatt
opnuð en á henni getur að líta ljós-
myndir úr eigu bræðranna Ólafs og
Sigurðar Péturssona.
„Þetta eru myndir sem sýna dag-
legt líf fjölskyldu á Nesinu og niðja
hennar frá því fyrir aldamótin 1900
og fram yfir seinna stríð,“ segir El-
len Calmon, fræðslu- og menningar-
fulltrúi Seltjarnarness. „Þarna eru
til dæmis myndir af Pálsbæ sem
er bærinn sem amma bræðranna
Ólafs og Sigurðar bjó í þar sem
hann stendur einn á risastóru túni
og það er ekkert 1 kring. Valdimar
Leifsson gerði stutta kvikmynd þar
sem hann tekur viðtöl við Sigurð og
fer með honum á staðina þar sem
myndirnar voru teknar. Pálsbær
stendur til dæmis enn i dag og hann
sýnir hann í því umhverfi sem hann
er í nú með allar þessar nýbygging-
ar og umferðina í kring. Maður sér
því glöggt þær breytingar sem hafa
orðið í þessari mynd,“ segir Ellen og
bætir við að myndin verði sýnd sam-
hliða ljósmyndasýningunni.
I fyrramálið býður menningar-
nefnd Seltjarnarness og Nesskip bæj-
arbúum til morgunverðará Eiðistorgi.
„Síðast þegar við gerðum þetta var bú-
ist við 100-200 manns en það mættu
500 þannig að núna gerum við ráð
fyrir 500,“ segir hún. Reynt verður
að skapa sanna útgerðarstemningu
á torginu auk þess sem boðið verður
upp á tónlistar- og dansatriði.
Síðdegis verða tónleikar við hús
björgunarsveitarinnar í Bakkavör
þar sem hljómsveitirnar Benni
Hemm Hemm, Shogun og <3 Svan-
hvít halda uppi stuðinu ásamt bíl-
skúrssveitum bæjarins.
Bæjarbragur og samkennd
Þá munu listamenn sem búa á
Seltjarnarnesi margir hverjir opna
vinnustofur sínar fyrir almenningi
um helgina. Gestum og gangandi
er velkomið að koma og fylgjast
með því sem þeir eru að gera.
„Þó að Seltirningar vilji ekki
vera sveitó þá er hér ákveðinn bæj-
arbragur og samkennd og það er
mjög heimilislegt að heimsækja
listamennina hérna. Þeir eru bara
með opið út og sumir hverjir með
kaffi á könnunni og sumir bjóða
manni nánast inn í stofu,“ segir
hún.
Vinnustofur listamanna verða
opnar laugardaginn 9. júní og
sunnudaginn 10. júní kl. 15-18 og
má nálgast upplýsingar um stað-
setningu þeirra í bæklingi sem gef-
inn var út í tilefni hátíðarinnar og
á heimasíðu bæjarins seltjarnarnes.
is. Þar má enn fremur nálgast dag-
skrá hátíðarinnar í heild sinni.
Ellen segir að hátíð sem þessi
færi bæjarbúa hvern nær öðrum
og að allir leggist á eitt við að gera
hana sem glæsilegasta. Ellen legg-
ur jafnframt áherslu á að þetta sé
ekki aðeins hátíð Seltirninga held-
ur vilji þeir ekki síður bjóða öðrum
að njóta hennar með sér.
„Þetta er auðvitað líka auglýsing
út á við þannig að fólk sem býr til
dæmis í Reykjavík sem er auðvitað
svolítið stærri geti komið og fund-
ið þennan notalega bæjarbrag sem
hér ríkir. Svo er þetta auðvitað bara
góð skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una og verður vonandi til þess að
auka sköpunargleði fólks enn frek-
ar og að það vilji taka þátt og vinna
saman,“ segir Ellen að lokum.
Allir í sund
tíðinni, þar á meðal allar sundlaug-
ar á höfuðborgarsvæðinu og flestar
sundlaugar í stærri bæjum landsins.
Lista yfir þær laugar sem taka þátt
í dagskránni er að finna í bæklingi
sem dreift hefur verið í hús sem og á
heimasíðu Símans siminn.is.
Auk þess að hleypa gestum án
endurgjalds ofan í laugarnar verður
sitthvað gert til að hafa ofan af fyrir
þeim. Ungmenni úr sundfélögunum
standa fyrir sundkennslu og leikjum
milli kl. 13 og 16. Þá eiga gestir enn
fremur kost á að vinna sér inn verð-
laun með þátttöku í leikjum. Sumar-
tónlist verður leikin og gestum boðið
upp á hressingu.
Hátíðin er liður í samstarfi Sund-
sambands fslands og Simans um að
auka áhuga almennings á sundíþrótt-
inni, hvetja landsmenn til að fara í
sund, stunda holla hreyfingu, hress-
andi útiveru og andlega upplyftingu.
Sýníng á Arbæjársafni
Sýning um sögu íþróttafélags
Reykjavíkur verður opnuð í
Árbæjarsafni á sunnudag kl. 14.
en félagið fagnar aldarafmæli á
þessu ári. ÍR-húsið sem stóð á
Landakotshæð hefur verið endur-
gert og er varðveitt í safninu.
Gönguferð um
Höfðaskóg
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
stendur fyrir gönguferð um
Höfðaskóg laugardaginn 9. júní
kl. 16. Sérstaklega verður hugað
að trjám og runnum í trjásýnilundi
félagsins. Lagt verður af stað frá
Selinu, höfuðstöðvum félagsins,
við Kaldárselsveg.
Skylmingamót
í Hafnarfirði
Alþjóðlegt mót í skylmingum með
höggsverði verður haldið í Kapla-
krika í Hafnarfirði dagana 9.-10.
júní. Auk innlendra keppenda
tekur fjöldi erlendra skylminga-
manna þátt í mótinu. Allir eru
velkomnir á pallana og er enginn
aðgangseyrir.
Það verður að öllum líkindum
margt um manninn í sundlaugum
landsins á morgun en þá verður hald-
insundhátíð undiry firskriftinni „ All-
ir í sund“. Frítt verður í valdar laugar
víða um land og því tilvalið fýrir Qöl-
skylduna að skella sér saman í sund.
Alls taka 41 sundstaður þátt í sundhá-
a&steu
Gaman í sundi Buast má við fjölmenni
sundlaugum landsins á sundhátiðinni
Allirisund" á morgun.
BlaM/Porkell |
Stærð 36-41
Litur Beige/svart
Verð 8495.-
(VérM
Skóverslun Kringlunni 8 -12 S: 553 2888