blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 16
36 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 blaðiö Sérfræðinaar _ íi Nælum stangir. splæsum Ifnur og setjum upp. Sporivörugcrðin lif., S»k i |>liol L 5. s. 562 H3H3. veiði veidi@bladid.net Dreifína: Veiðihusíð Hóimjsióð 4,101 Reykjjvík Sifni: 562 0095 - 898 4047 FISHER S Motion, Gore-Tex 6 laga Gore-Tex vöðlur og vöðlu jakkar. 10 ára reynsla á íslandi. Hafa reynst frábærlega að sögn kröfuharðra neytanda. Jk Toppgæði ^k og gott verð! Æk bátalew SkrW* Veiðikeppni 10, júní kl 10-16 Skráning í síma 693-7101 Vegleg verðlaun í boði Hægt er aö leigja stangir og báta. Á staðnum er veitingasala, fjöldi grilla, innisalur og útipallur veidikortid.is ÆZJvatnasvæði fyrír aðeins 5000 krónur! Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl.fylgir! Fæstá ni í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is Fjölmenni við Norðurá Það var fjölmenni við Norðurá í Borgarfirði þegar áin var opnuð, fjölmiðlar flestir viðstaddir nema 365 miðlar sem ekki virðast hafa mikinn áhuga á veiði. Stöð tvö hefur ekki sent fréttamenn á svæðið í fjölda ára, eða allar götur síð- an veiðimaðurinn Eggert Skúlason var upp á sitt besta í fréttamennskunni. Eftir Gunnar Bender veidi@bladid.net Laxveiðin er byrjuð fyrir alvöru. Veiðin er hafin í Norðurá í Borg- arfirði, Straumunum og Blöndu þetta árið. Veiðimaðurinn Þórarinn Sigþórsson veiddi fyrsta laxinn í Blöndu og Bolli Kristinsson þann næsta. Síðan verður hver veiðiáin á fætur annarri opnuð á næstunni. „Við opnum Laxá í Kjós og Langá á Mýrum 16. júní og Grímsá 22. júní,” sagði Gísli Ásgeirsson þegar blaða- maður hitti hann við Norðurá í vik- unni þar sem hann fylgdist spennt- ur með veiðimönnum við ána taka fyrstu köst sumarsins. „Það var meiriháttar að fá þennan lax,” sagði Bjarni Júlíusson, formað- ur Stangaveiðifélags Reykjavíkur, en hann veiddi fyrsta laxinn á þessu sumri í Norðurá í Borgarfirði og honum var mikið létt. „Flugan var brún, tommulöng Black Eyed Prawn,” sagði Bjarni for- maður. „Þetta er léttara en fyrir ári,” sagði Gísli Einarsson fréttamaður og það voru orð að sönnu við Norðurá þenn- an daginn. Fiskurinn sem Bjarni veiddi var 9 pund og sleppti formaðurinn hon- um aftur í ána. Nokkru neðar í ánni var Þor- steinn Ólafs og veiddi 11 punda lax. Hann sleppti fiskinum líka aftur í ána en fiskinn veiddi hann á Stokk- hylsbrotinu. „Þetta var hörkubarátta og stóð yfir í allavega 20 mínútur,” sagði Þorsteinn Ólafs nokkrum mínútum eftir löndun laxins. Eiginkona Þorsteins, Lára Krist- jánsdóttir, setti í lax þarna en hann fór af eftir stutta baráttu og Gylfi Gautur Pétursson var líka var þarna. Svo það var sannarlega líf á svæðinu. „Ég ætla að reyna Kröflu-flugurn- ar, þær hafa reynst mér vel,“ sagði Guðmundur Stefán Maríusson er hann setti rauða Kröflu á við Lax- fossinn og óð síðan út í og kastaði fyrir laxana. Hann varð ekki var þarna en nokkrum klukkutímum seinna veiddi hann fyrsta laxinn sinn á sumrinu. Hann og Halli Eiríksson kíktu á milli fossa og sáu þar fimm laxa og á Berghylsbrotinu veiddi Guð- mundur fiskinn. Skömmu seinna fékk Loftur Atli Eiríksson líka laxa þarna. Góður árangur að vera kom- inn með 2 laxa á fyrsta deginum sem má veiða. Og næsta dag veiddi hann aftur lax á sama stað. Veiðin heldur áfram, laxinn er að gefa sig, hann er að mæta í árnar og veiðin að hefjast i hverri veiðiáinni af annarri þessa dagana. „Það er minna af laxi hérna í Norð- urá en maður átti von á. Tveggja ára laxinum fækkar óðum í veiðiánum,” sagði Bjarni Júlíusson er við heyrð- um í honum á Eyrinni í fyrradag. Um helgina verður Laxá í Aðaldal opnuð og þar munu bændur opna ána. Það verður gaman að sjá hvern- ig opnun verður í henni þetta árið en hún hefur átt erfitt uppdráttar síðustu árin. Vantar þig veiðileyfi? www.svfr.is er máliðl Úrval veiðileyfa - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu Fréttir, greinar, fróðleikur og margt fleira

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.