blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 37
Engin veiði
Það hefur lítið frést af veiði í Straumunum í Borgarfirði, þrátt fyrir að veiðimenn hafi barið ána grimmt. En sá
dagur kemur að fiskurinn láti sjá sig á svæðinu. Veiðimenn sem ætluðu að renna fyrir f isk í Seltjörn við Grinda-
vík fyrir fáum dögum komu að tómum kofanum en þar var engin veiði lengur fyrir veiðimenn á öllum aldri.
Veiðimennirnir fóru því bara í Reynisvatn og veiddu vel. Margir hafa líka lagt leið sína í Hvammsvík í Kjós.
Viljálmur opnar Elliðaárnar
Það verður Viljálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri sem opn-
ar Elliðaárnar 20. júní en mjög
góð urriðaveiði hefur verið í ánni
núna í vor. Veiddust yfir 300 urrið-
ar og var Höfuðhylurinn fengsæll
og svæðið fyrir neðan hann.
En hver veiðiáin af annarri er
opnuð þessa dagana og á þriðju-
daginn verður Þverá í Borgar-
firði opnuð og síðan Kjarrá á
föstudaginn.
Erfitt er að henda reiður á
hvort laxinn er mættur í Þverá
og Kjarrá en fróðir menn segja að
hann sé kominn á svæðið og verð-
ur gaman að sjá hvernig opnun
ánna verður á þessu sumri.
Vatnasvæðf Lýsui
a eina kronu
Laxá býður veiðileyfi á eina krónu á vatnasvæði Lýsu
eftir nokkra daga en veiðileyfin seldust upp á nokkrum
mínútum. Ágæt veiði hefur verið á vatnasvæði Lýsu
síðustu daga en veiðimenn sem voru þar fyrir fáum
dögum fengu 6 fallega fiska.
Hraunsfjörðurinn hefur verið að gefa vel af fiski en
veiðimenn sem þar voru fyrir skömmu veiddu helling
af vænni bleikju.
ilÉÉPflíPi
—S—!--;----
Norðurá i Borgarfirði:
Opunarhollið endaði í 9 löxum
„Hollið endaði í 9 löxum og það er
allt í lagi en við hefðum nú viljað sjá
meira af fiski í ánni. En hann kem-
ur,“ sagði Bjarni Júlíusson, formað-
ur Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
er hann var að hætta veiðum í Norð-
urá í gærdag.
„Ég held að næstu dagar eigi eftir
að verða góðir en holl veiðimanna
sem var að byrja fékk mjög gott
veðri. Laxarnir sem við fengum
voru fallegir og laxinn mætir í rík-
ari mæli næstu daga,“ sagði Bjarni
ennfremur.
Laxinn er farinn að sjást víða
þessa dagana eins og í Laxá í Leirár-
sveit, Grímsá og Laxá í Kjós.
Blanda er komin með nokkra laxa
og nokkra sjóbirtinga. Og laxinn er
kominn í Miðfjarðará.
IVIOKVEIPI.IS
Hringið fyrir tilboð 09 ráðgjjöf
Sími 821-7871
Hvalaskoðun, Skemmtisiglingar
Tilvalið fyrir fyrirtæki og starfsmannahópa
SKÚTUVOGUR 4 | 104 R.EYKJAVÍK | SÍMI 581 2121 | www.rbv.is
Glæsilegt aukablað um veiði kemur út
fimmtudaginn
Auglýsingasímar
Kolla s. 510 3722
KATAs. 510 3727
I4.juni
Sjóstawgvcidi - Awdrca
opnunartilboð
Sjostangasett
- góð stöng með vönduðu hjóli.
9.900 kr.
Fjoldi annarra tilboða!
Opið i sumar
Virka daga kl. 10-21 og laugardaga kl. 11-17.
Símar 562 2300, 898 3300. Nánari
upplýsingar.www.sjostong.is, hvalalif@hvalalif.is