blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 18
38 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 blaðið bilar@bladid.net Accord skiptir um grænan tón Honda hefur ákveðið að hætta framleiðslu tvinnbíiaútgáfu Accord í haust. Þess í stað verður bíliinn í boði með nýrri og „hreinni" dísilvél. Honda mun þess í stað einbeita sér að Civic-tvinnbílnum, auk þess að kynna tvo nýja umhverfisvæna bíla árið 2009. Nýr Saab á rúntinum Þrátt fyrir að vera ekki enn farinn í framleiðslu sást þetta prufueintak, eða „vinnuhestsútgáfa", af Saab 9-3 Aero blæjubíl á bílastæði í Svíþjóð á dögunum. Öfugt við marga aðra prufubíla var Saabinn algjörlega óvarinn fyrir augum vegfar- anda, enda hefði það verið algjör synd að hylja hann, miðað við myndina. UR BILSKURNUM Eftir 2. umferö SinELLJ Staðan í Pirelli mótaröðinni í ralli Sæti Ökum./aðst.ökum. Stig 1. Daníel Sigurðsson/Ásta Siguröardóttir 15 2. Jón Bjarni Hrólfsson/Borgar Ólafsson 9 3. Sigurður B. Guðmundss./lsak Guðjónss. 4. JóhannesV. Gunnarss./Eggert Magnúss. 7 5. Óskar Sólmundarson/Valtýr Kristjánsson 4 • Impreza kom fyrst á markað 1992 • Boðnar verða þrjár týpur; 15S, 20S og S-GT sem tekur við af WRX ♦ Nýi bíllinn er stærri á alla kanta en sá eldri • Fjórhjóladrifíð er á sinum stað fyrir þá sem vilja • Fjöðrunin hefur verið endurhönnuð, meðal annars til að tryggja meira farangursrými • Eyðslugrennsta útgáfan verður með 1,5 lítra, 110 hestafla dísilvél • Meðaleyðslan verður um 5,1 lítri á hundraðið • Renault segir að innrétting bílsins veröi enn íburðarmelri en áður og jafnist á við 5 línuna frá BMW Ný Impreza komin á götuna í Japan Síöastliðinn þriðjudag hófu Subaru-bíla- salar um gjörvalit Japan sölu á nýrri Impr- ezu. Bílnum er ætlað að sameina þrjá kosti sem eiga að hitta í mark um allan heim; fágað útlit, notendavænan og þægi- legan notendabúnaö og skemmtilega og traustvekjandi aksturseiginleika. „Gemmér Prius" Ricardo er ansi bjartur Portúgali sem hefur ákveðið að skipta út bílnum sínum, Audi A3 1,8 túrbó, fyrir Toyotu Prius. Hann segir skiptin tilkomin af einskærri ást á umhverfinu en ætlar sér þó ekki að líða fyrir það ástarsamband fjárhagslega. Þess í stað hefur hann opnað vefsíðu, projectprius.com, þarsem lesendur eru hvattir til að gefa rúmar 100 krónur í Prius-sjóðinn sem Ricardo ætlar að vera búinn að safna fyrir 1. ágúst. Við í bílskúrnum hvetjum alla til að kíkja á síðuna, við höfum nefnilega boðist til að losa Ricardo við Audi-inn þegar Priusinn er í höfn, til að hann mengi ekki meira í Portúgal... Nýr Laguna Renault hefur látið frá sér myndir af nýjum Laguna, þrátt fyrir að ekki eigi að frumsýna bílinn fyrr en á bílasýningunni í Frankfurt í segtember. Líkt og með fyrri útgáfur er gert ráð fyrir að meira en helmingur seldra bíla verði með dísil- vélum, þótt ekki sé víst að hlutfallið nái 70% eins og núverandi útgáfa. Fyrir fólk með fjölbreyttan lífsstíl ugmyndin á bak við Sport Trac er svo sem nógu einföld: Tökum vinsælan sportjeppa, í þessu tilfelli Ford Explorer, klippum aft- asta hlutann af hús- inu og setjum pall í staðinn. Frekar en að bisa við að hanna pallbíl frá grunni er stuðst við bíl sem þykir þokkalega vel heppnaður. Nú er komin önnur kynslóð af pallbílnum sem hefur fengið stærri vél, fimm sinnum stífari grind og meira pallrými. Að utan Sport Trac er um 40 sentimetrum lengri en Explorer, enda pallurinn á þeim fyrrnefnda töluvert stærri en farangursrýmið í þeim síðarnefnda. Hann hefur stækkað um rúman fjórðung frá fyrri útgáfu og er nú hinn ágætasti. Reynslubíllinn var búinn dráttarbeisli og loki á palli en það sniðugasta var framlengingar- grind sem kemur í veg fyrir að farm- ur detti af pallinum þótt hlerinn sé opinn. Sniðugur aukabúnaður sem eykur enn við notagildi bílsins. 1 pallinum er ennfremur rafmagns- úttak sem kemur eflaust oft að not- um. Limited-útgáfan kemur með 18” álfelgum, samlita stuðara, veglegra grilli og einu og öðru smálegu til að greina hana frá ódýrari útgáfunum. Að innan Innréttingin í bílnum er alveg eins og í Explorer. Og þá meina ég alveg. Aftursætið er meira að segja það sama, með sama bakhalla og sama fótarými. Ég var reyndar aldr- ei mjög hrifinn af aftursætinu í Expl- orer, fannst það fullgrunnt og stíft fyrir svo dýran bíl, en fyrir pallbíl í þessum stærðarflokki er það óvenju- gott. Rétt er einnig að benda sérstak- lega á afturrúðuna sem hægt er að skrúfa niður með einum hnappi til að auka enn við notagildi bílsins. Bíllinn er vel búinn staðalbúnaði og þægilegur og hæfilega rúmgóður að innan en á einstaka stað er eins og verið sé að nota gamla plastaf- / r t ■ ' 'MSrurK Wm Reynsluakstur ★★★★★ Ford Explorer Limited 4,6 V8 Hagstætt verð (m.v. Explorer), vel búinn, þægiiegur, sterk- byggður og kraftmikill Fjöðrun of mjúk, svolítið þyrstur, viðþragð mætti aðeins þetra. Elnar Elf Magnússon elnarell@bladld.net • 4,6 lítra V8 bensínvél • 292 hestöfl • 406 Nm • 6 þrepa sjálfskipting með tölvustýrðu fjórhjóladrifi, háu og lágu drifi • Eyðsla í blönduðum akstri: 14,7 1/100 km • 4 árekstrarpúðar • StöðugIeikastýring og veltivörn • ABS • Grunnverð (Limited): 3.790.000 • Umboð: Brimborg ganga sem eru mjög úr takt við glæsi- legheitin annars staðar í bílnum. Reynslubíllinn var búinn bæði sætispakka og stafrænum pakka, sem innihalda meðal annars leður- sæti, aksturstölvu, aðgerðahnappa í stýri og tölvustýrða miðstöð. Þrátt fyrir það er verðið enn nokkuð gott, rétt rúmlega 4,1 milljón með öllum aukabúnaði. Akstur V8-bensínvélin hefur stækkað frá eldri bílnum og er orðin 292 hestöfl. Hún togar þokkalega, eða 406 Nm, og fúlsar svo sem ekki við bensíni, sé henni boðið það. Uppgefin eyðsla er 14,7 lítrar á hundraðið, sem er ekkert óskaplegt fyrir 2,17 tonna bíl, en sé viljinn fyrir hendi er auðvelt að renna meiru í gegnum hana. Sex þrepa sjálfskiptingin er mjög í takt við þjóðerni sitt og leyfir vél- inni að snúast heilan helling um leið og stigið er á bensínið og maður býst eiginlega við betra viðbragði. Það er samt fjöðrunin sem ég hefði helst vilja breyta. Sport Trac er kynntur sem mikill torfærubíll og vissulega hefur hann flest það sem góður jeppi þarf að hafa. Eins og Explorer er hann hins vegar á mjög mjúkri, sjálfstæðri fjöðrun. Það hljómar mjög vel, en fyrir minn smekk eru dempararnir of mjúk- ir og bílnum hættir of mikið til að byrja að skoppa og dúa, hvort sem ekið er á ójöfnum og skornum mal- arslóða eða venjulegum íslenskum þjóðvegi. Það má þó ekki gleyma því að bíllinn er með burðargetu upp á 705 kg þannig að búast má við því að hann sé skárri lestaður. Niðurstaða Þar sem Sport Trac er í lægri tollaflokki en Explorer er hann á hagstæðara verði, þrátt fyrir að vera nánast eins búinn. Grunnverðið er 3.390.000 krónur en V8 Limited-týp- an kostar 3.790.000 krónur eins og hún kemur af kúnni. Það nær því í raun að vera samkeppnishæft verð við minni, hrárri og kraftminni bíla, þrátt fyrir að fyrir sama pening get- ir þú líka fengið F350. Bíllinn er hannaður með fjöl- breytt notagildi í huga, fyrir fólk með fjölbreyttan lífsstíl, og í þeirri deildinni skilar hann því sem hann lofar. Fyrir þá sem vilja ameríska pall- bíla en finnst F150 aðeins of stór er Sport Trac fullkominn og ég ímynda mér að hann sé kjörinn fyrir þá sem þurfa til dæmis mikið farangurs- rými um helgar, en hæfilega lipra og þægilega bíla yfir vinnuvikuna. Jeppabreytingar <222^ Pallhús gTJ] Drifléesingar OM £ Gormar Brettakantar ■ ■ ■ ■ , ...v.í;, ,"7~' __ Jeppaþjónustan • Breytir* Formverk Stórhöfða 35,110 Reykjavík S: 567-7722, www.breytir.is Litið hefur horíð á GM Hy-wire sxðan það var fyrst kynnt: Hjólabrettið gleymt og grafið? Árið 2002 kynnti General Motors hugmynd sem hét opinberlega Hy-wire, en hefur aldrei verið kallað annað en skateboard, eða hjólabrettið. Hjólabrettið var grunnplata með fjórum hjólum og öllum drif- og stjórn- tækjum innbyggðum, hönnuð til að bjóða ótakmarkaða möguleika í vali á yfirbygg- ingum og stjórntækjum. Platan, sem er þykkust um 28 senti- metrar, Innheldur rafgeyma, efnarafal og fjóra rafmótora, auk tölvuheila og alls stjórnbúnaðar fyrir hjólin. Það eina sem þarf til að geta ekið hjólabrettinu er að stinga stjórntækjum í samband með einum kapli, koma þeim fyrir á plötunni og keyra af stað. Öll stjórn- og raftæki eru tengd með einu tengi, en yfirbyggingin er fest á 10 stöðum. Það sem var hvað mest heillandi við hjóla- brettið var möguleikinn á að eiga eitt farar- tæki sem gat verið sportbíll, fjölskyldubíll, vörubíll eða hvað annað sem maður þurfti, allt eftir því hvaða yfirbyggingu maður skellti á grunnplötuna þann daginn. Lítið hefur borið á hjólabrettinu á síðustu árum þrátt fyrir yfirlýsingar um að koma því í framleiðslu fyrir 2012. Sögur af veð- máli við Exxon-olíurisann hafa hrundið af stað samsærissögum en líklegra er þó að lágdeyða í uppbyggingu á vetnisgrunnneti neyði bílaframleiðendur til að hvíla efnaraf- alsdrauma sína um sinn. Hvað sem því líður er hjólabrettið stórsnjöll hugmynd og vonandi fara fram- leiðendur í auknum mæli að hugsa út fyrir kassann á þennan hátt.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.