blaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 19
blaðið
FðSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 39
SigmundurO.Steinarson, r~
Morgunblaðið: g
„Eyjólfur er ennþá þjálfari og
því vil ég ekki svara þessari
spurningu. Hins vegar er Ijóst S **' ‘ I
aö þad er ýmislegt aö hjá
landsliöinu og yfirstjórn þess. _ ^
Öll stemning kringum lands- W'
liöið er horfin og mér finnst ýtFwHM
ábyrgöin liggja víöar en hjá þjálfara liösins.
Þorsteinn Qunnarsson, Sýn:
,Ef Eyjólfur ákveður að stíga til
hliðar væri ég til í aö sjá Guö-
jón Þórðarson taka við. Hann
hefur bein í nefinu til þess að
taka til hendinni og frábær
árangur hans með landsliöiö
á sínum tíma talar sinu máli.
Útlendur þjálfari gæti reyndar
veriö góöur kostur..“
Skeytin ir>~
LEIKIRNIR FIMM:
Fullorðnir menn
Mikill fjöldi landsþekktra knatt-
spyrnuþjálfara hefur loks lokið
sérstöku þjálfaranámskeiði, svo-
kallaðri KSÍ A-gráðu, og eru loks
komnir í fullorðinna þjálfara tölu.
Þar á meðal eru þjálfarar yngri
landsliða íslands.
Dagur ns
Dagur Sigurösson var valinn
besti erlendi leikmaðurinn í
austurrísku deildinni í hand-
bolta en hann er leikmaður
og þjálfari Bregenz þar í landi.
Bregenz vann deildakeppnina
undir hans stjórn.
Betur má....
Birgir Leifur Hafþórsson er
númer 168 með 4,3 milljónir í
vinningsfé á Evrópsku mótaröð-
inni eftir níu mót. Um 20 mót
eru enn eftir en Birgir hefur ekki
þátttökurétt á þeim öllum og
þarf því að fara að spýta í lófa til
að halda sér inni á mótaröðinni.
Til þess þarf hann gróft áætlað
að vera meðal 120 efstu í lok
tímabilsins.
við að vera að miklu leyti ungt lið
á NHL-mælikvarðann og eiga því
aðra tilraun að titlinum vísa næstu
árin. Stjörnur Anaheim eru hins
vegar margar á síðustu metrunum
og ólíklegt verður að teljast að Ana-
heim nái viðlíka árangri aftur.
Fremstir smáþjóða
íslenskt íþróttafólk hefur ásamt
Kýpur unnið til flestra verðlauna
á Smáþjóðaleikunum sem fram
fara í Mónakó. Lúxemborg
kemur þar á eftir. Kannski synd
að ekki er keppt í knattspyrnu
því þar ætti íslenska landsliðið
einhverja möguleika. Leikunum
lýkur á morgun.
Jákvæðir punktar
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálf-
ari sér margt jákvætt við 5-0
tap (slands gegn Svíþjóð. Til að
mynda fannst honum ánægju-
legt að prófa nýja leikmenn
liðsins á útivelli gegn einni erfið-
ustu þjóð álfunnar. Það fannst
honum lítið sniðugt þegar blaða-
maður Blaðsins spurði um þetta
fyrir leikinn gegn Liechtenstein
um síðustu helgi en slíkur leikur
hefði að margra mati verið heppi-
legri vettvangur til að tefla fram
næstu kynslóð landsliðsmanna.
ithrottir@bladid.net
HEILA LEIKI hefur Eiður Smári Guðjohnsen
spilað síöastliðna tíu mánuði með félagsliði
sínu Barcelona. Hefur hann spilað alls í
1097 mínútur sem þýðirað hann hefurfeng-
ið rúmlega einn leik í mánuði.
MARKSKOT áttu Islendingar gegn Svíum í
landsleik þjóðanna á miðvikudag samkvæmt
tölfræði Evrópska knattspyrnusambandsins.
Er það einu skoti undir meðaltali íslands í sjö
leikjum liðsins í Evróþukeppninni.
Manchester
United
færekki
grænt ljós ffá
innflytj-
endayfir-
völdum
vegna Brasilíumannsins Anderson
sem keyptur var fyrir skömmu
af Porto. Kveða reglur á um að
leikmenn utan Evrópu þurfi að hafa
spilað 75 prósent landsleikja með
landsliðum sínum síðastliðin tvö
ár. Það skilyrði uppfyllir Anderson
ekki enda hefur hann ekki ennþá
spilað heilan leik með Brasilíu.
T\ onaidinho
w segistánægð-
X.V.urmeðþá
ákvörðun Carlos
Dunga, landsliðs-
þjálfara Brasilíu,
að velja hann
ekkiíhópsinn
fyrir Ameriku-
keppnina sem fram fer í sumar.
Dunga gengur reyndar lengra
og velur engan mann ffá Barca.
Eru þar allnokkrir frambærilegir
Brassar á borð við Sylvinho, Edm-
ilson, Belletti og Motta en enginn
hlýtur náð fyrir augum Dunga
enda landið fullt af hæfileikaríkum
knattspymumönnum.
Dunga sjálfur er
reyndarhálfur
undirfallöxinni.
Þykja tveir síðustu
leikir Brasilíu hafa
verið fyrir neðan
flestar hellur. Jafnt-
efli gegn Englandi
ogTyrklandifára
seint í brasil-
fskar sögubækur
en verra er að ekki
hefur vottað agnarögn
fyrir þeim heimsffæga
sambabolta sem
hefur off ar en einu
sinni gert Brasilíu að
heimsmeisturum.
Hverveitnema
Claudio Ranieri,
nýrþjálfari
Juventus,kaupi
Eið Smára Guð-
jolmsen til sín.
Ranieri kannast
velviðkauðafrá
Chelsea-árum
sínumþegarEiður
spilaðihvaðmest
ogbestoghann
liggur nú undir feldi hvernig best
sé að tryggja endurkomu Juve í hóp
hinna bestu í seríu A eftir ársdvöl í
annarri deild. I það minnsta hefúr
Ranieri gert Chelsea tilboð í Frank
Lampard sem er mikill félagi Eiðs.
Anaheim Ducks sigruðu í NHL-deildinni:
Stanley í sólbað
Heimavöllur vegur afskaplega
þungt í úrslitakeppni eins og sjá
má á meðfylgjandi
töflu. Þar sem Ana-
heim vann fleiri leiki
í deildakeppninni en
Senators fengu þeir
heimavallarrétt. Hefði
Ottawa unnið fimmta
leikinn hefðu tveir
þeir síðustu verið spilaðir í Kan-
ada en ekki kom til þess. Vann
Anaheim afar sannfærandi en
Kanadamennirnir geta huggað sig
Anaheim Ducks frá Kaliforníu eru
NHL-meistarar 2007 eftir að hafa
lagt Ottawa Senators
að velli í fimmta leik
liðanna í úrslitakeppni
íshokkídeildarinnar
vestanhafs. Anaheim
vann örugglega 4-1.
Stanley-bikarinn
verður því geymdur í
fyrsta sinn í sólskinsríkinu næsta
árið en félög norðar í þeirri heims-
álfu hafa jafnan haft meiri reynslu af
því að geyma gripinn gegnum árin.
Islenska landsliðið orðið að athlægi erlendis fyrir hörmulegan leik:
Svíar hlæja að íslendingum ■ Eyjólfur vill meiri tíma ■ KSÍ sammála
Eftir Aibert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
5-0 slátrun Svía á íslenska landsliðinu
í knattspyrnu á miðvikudagskvöldið
í kjölfarið á einhverjum dapurlegasta
jafnteflisleik liðsins hér heima gegn
Liechtenstein virðist ekki duga til að
Knattspyrnusamband íslands íhugi
að skipta um þjálfara. Þvert á móti
segir Geir Þorsteinsson formaður að
Eyjólfur Sverrisson sé góður þjálfari
og fái meiri tíma.
Hávær köll voru víða eftir höfuð-
leðri Eyjólfs eftir hrapallegan leik
Islands gegn Liechtenstein. Baulað
var á leikmenn að leik loknum og
í fjölmiðlum og bloggheimum jusu
margir úr skálum reiði sinnar.
En leikur liðsins gegn Svíþjóð
var síst betri en gegn Liechtenstein
og íslenska liðið er kjöldregið af
sænskum miðlum sem eitt versta lið
sem spilað hefur við Svía í áraraðir.
Ljóst er að fimm breytingar á
liðinu milli leikjanna gerðu ekki
nokkurn skapaðan hlut. Almennt
andleysi var enn til staðar hjá leik-
mönnum liðsins. Islenska liðið átti
heil þrjú tækifæri þær 90 mínútur
sem leikurinn stóð yfir en var þess
á milli rétt utan við sinn eigin víta-
teig. Margir setja einnig stór spurn-
ingarmerki við að leyfa nýjum leik-
mönnum að spreyta sig í slíkum
leik nema landsliðsþjálfarinn hafi
metið það sem svo að tap væri fyr-
irsjáanlegt og því teflt fram ungum
strákum og sagt þeim að sækja.
Fáir, ef nokkrir, bjuggust við að Is-
land næði stigi eða stigum í Svíþjóð
en að leggja upp laupana með þeim
kæruleysislega hætti sem reyndin
varð hlýtur að vera á ábyrgð Eyjólfs.
Blaðið leitaði hófanna hjá valin-
kunnum íþróttafréttamönnum um
hvort skipta ætti Eyjólfi út og þá
hver ætti að koma í hans stað.
GeirMagnússon, RÚV:
„Mérfinnst það engin lausn
að leysa Eyjólf frá störfum.
Fyrir slæmu gengi liðsins geta
legið margar ástæður aðrar
en slæmur þjálfari. Skortur
a samæfingu liðsins er ein
möguleg ástæða. Liðið er að
spila fáa leiki og þetta hefur
allt áhrif."
HenryBirgirGunnarsson, W "
Fréttablaðið: í
„Ég tel að KSÍ eigi að ráða
erlendan mann í starf lands- ... -A &
liðsþjálfara. Mann sem hefur
hvorki tengsl við núverandi
knattspyrnuforystu né á nokk-
urra hagsmuna að gæta. Það
þarf mann með ferska vinda 1
og nýjar hugmyndar og ekki síðar en strax.'
Ducks - Senators 3-2
Ducks - Senators 1-0
Senators - Ducks 5-3
Ducks - Senators 3-2
Ducks - Senators 6-2